Fréttablaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@ frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Dragsenan á Íslandi blómstr-ar í dag en það sama var ekki hægt að segja fyrir aðeins nokkrum árum. Gógó segir að dragsenan hafi lifnað við eftir að sýningar Drag-Súgs hófust. „Með sínum mánaðarlegu sýningum opnaði Drag-Súgur sviðið fyrir f leiri dragdrottningum og drag- kóngum, þannig að allir sem hafa áhuga á þessu fengu loksins svið til að koma oftar fram á. Fyrir utan Drag-Súg var það bara Dragkeppni Íslands einu sinni á ári.“ Dragdrottningin Gógó Starr byrjaði með dragsýningar fyrir tæpum 10 árum þegar hún var enn í framhaldsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Stærsti áhorfendahópur Drag-Súgs er ungar konur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Sólrún Freyja Sen solrunfreyja@frettabladid.is Dragkeppni Íslands hefur ekki verið haldin í fjögur ár en Gógó er meðal þeirra sem standa að skipulagningu keppninnar í ár. „Ég er seinasta krýnda Dragdrottning Íslands og búin að fá að halda kórónunni í nokkur ár, ég held það sé kominn tími til að fá einhverj- um öðrum titilinn.“ Gógó útskýrir að ástæðan fyrir svo löngu hléi á keppninni sé sú að aðilinn sem hélt keppnina á hverju ári f lutti úr landi og enginn var tilbúinn að taka við skipulaginu fyrr en nú. Flipp sem vatt upp á sig Ferill Gógó Starr hófst á Akureyri fyrir tæpum tíu árum. „Þá var ég í framhaldsskóla og að koma út úr skápnum almennilega. Ég gerðist meðlimur í Hinsegin Norður- land, samtökum hinsegin fólks á landsbyggðinni. Við ákváðum að setja upp dragkeppni eiginlega bara upp á flippið. Þá verður fyrst til Dragkeppni Norðurlands, sem við rukkuðum einhverjar 500 krónur inn á. Við ætluðum bara að hafa gaman með vinum okkar, en svo mætti allt í einu fólk sem vildi koma og sjá. Þannig að þetta vatt upp á sig, varð árlegur viðburður sem er nú orðinn að dragsýningu sem Hinsegin Norðurland heldur ár hvert,“ segir Gógó. „Síðan flutti ég suður, ákvað að vinna Dragkeppni Íslands og gerði það auðvitað. Þá langaði mig að nýta titilinn einhvern veginn. Mig langaði að sjá f leiri dragsýningar á Íslandi.“ Gógó Starr var ekki ein um það og úr varð að Gógó ásamt sterkum hópi af fólki stofnaði Drag-Súg. Í dag heldur Drag-Súgur stærstu dragsýningarnar á Íslandi. Drag-Súgur er með tvær mán- aðarlegar sýningar á Gauknum í miðbæ Reykjavíkur, hin sam- nefndu og íburðarmiklu Drag- Súgskvöld annars vegar og Drag- Lab hins vegar. „Drag-Lab eru fríar sýningar þar sem fólk kemur til að spreyta sig á sviðinu. Til dæmis fólk sem er að koma fram í fyrsta skipti eða draglistamenn sem eru að prufukeyra ný atriði.“ Ekki bara einhver klúbbalæti Gógó hefur fundið fyrir því að viðhorf almennings til drags hefur breyst mikið. „Fólki fannst þetta vera bara eitthvert kynferðislegt partístand til að byrja með. Maður fann fyrir frekar sterkum for- dómum.“ Nú er öldin önnur, dragsýningar eru tíðari og dragmenningin vin- sælla fjölmiðlaefni með til dæmis vinsældum RuPaul’s Drag Race og Drag-Súgs. „Það að dragdrottn- ingar eru farnar að koma fram í stórum tónlistarmyndböndum og auglýsingum gerir það að verkum að fólk er farið að sjá þetta í sínu daglega lífi og líta á drag- drottningar sem skemmtikrafta í sama flokki og uppistandarar og tónlistarmenn. Fólk er almennt farið að sjá drag sem sviðslist, en ekki bara einhver klúbbalæti. Ég vil að fólk sjái dragið sem listina og skemmtunina sem það er. Vegna vinsælda drags gat ég til dæmis verið Fjallkonan í fyrra,“ en Gógó er fyrsta Fjallkonan sem er jafn- framt Dragdrottning Íslands. Meðalmaðurinn tilbúnari að stíga út fyrir kassann Gógó vill meina að auknar vin- sældir drags séu ekki bara skref fram á við fyrir dragsamfélagið heldur allt hinsegin samfélagið. „Ég vil að lítið, skrýtið fólk eins og ég var, geti séð einhverjar litlar, skrýtnar furðuverur vera áberandi í samfélaginu og standa sig vel í líf- inu. Ég held það sé mjög hvetjandi.“ Upprunalega var búist við að áhorfendahópur Drag-Súgs yrði úr hinsegin samfélaginu. „Það kom hins vegar mjög fljótlega í ljós að stærsti áhorfendahópurinn er ungir kvenmenn sem finnst þetta æðislegt. Mér finnst það vera ótrú- lega jákvætt hvað það eru margir ólíkir hópar sem dýrka þetta og klæða sig upp sem persónur í ein- hverjum brjáluðum búningum. Meðalmaðurinn er tilbúnari að opna kassann, stíga út fyrir hann og víkka sjóndeildarhring sinn.“ Framhald af forsíðu ➛ Fólki fannst þetta vera bara eitthvert kynferðislegt partístand til að byrja með. Maður fann fyrir frekar sterk- um fordómum. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS ÚTSALAN Í FULLUM GANGI 30-80% afsláttur af öllum útsöluvörum 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 7 1 -6 D 8 0 2 3 7 1 -6 C 4 4 2 3 7 1 -6 B 0 8 2 3 7 1 -6 9 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.