Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 22
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Dragsenan á Íslandi blómstr-ar í dag en það sama var ekki hægt að segja fyrir aðeins
nokkrum árum. Gógó segir að
dragsenan hafi lifnað við eftir að
sýningar Drag-Súgs hófust. „Með
sínum mánaðarlegu sýningum
opnaði Drag-Súgur sviðið fyrir
f leiri dragdrottningum og drag-
kóngum, þannig að allir sem hafa
áhuga á þessu fengu loksins svið
til að koma oftar fram á. Fyrir utan
Drag-Súg var það bara Dragkeppni
Íslands einu sinni á ári.“
Dragdrottningin Gógó Starr byrjaði með dragsýningar fyrir tæpum 10 árum þegar hún var enn í framhaldsskóla. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Stærsti áhorfendahópur Drag-Súgs
er ungar konur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Dragkeppni Íslands hefur ekki
verið haldin í fjögur ár en Gógó
er meðal þeirra sem standa að
skipulagningu keppninnar í ár. „Ég
er seinasta krýnda Dragdrottning
Íslands og búin að fá að halda
kórónunni í nokkur ár, ég held það
sé kominn tími til að fá einhverj-
um öðrum titilinn.“ Gógó útskýrir
að ástæðan fyrir svo löngu hléi á
keppninni sé sú að aðilinn sem
hélt keppnina á hverju ári f lutti
úr landi og enginn var tilbúinn að
taka við skipulaginu fyrr en nú.
Flipp sem vatt upp á sig
Ferill Gógó Starr hófst á Akureyri
fyrir tæpum tíu árum. „Þá var ég í
framhaldsskóla og að koma út úr
skápnum almennilega. Ég gerðist
meðlimur í Hinsegin Norður-
land, samtökum hinsegin fólks á
landsbyggðinni. Við ákváðum að
setja upp dragkeppni eiginlega
bara upp á flippið. Þá verður fyrst
til Dragkeppni Norðurlands, sem
við rukkuðum einhverjar 500
krónur inn á. Við ætluðum bara að
hafa gaman með vinum okkar, en
svo mætti allt í einu fólk sem vildi
koma og sjá. Þannig að þetta vatt
upp á sig, varð árlegur viðburður
sem er nú orðinn að dragsýningu
sem Hinsegin Norðurland heldur
ár hvert,“ segir Gógó.
„Síðan flutti ég suður, ákvað að
vinna Dragkeppni Íslands og gerði
það auðvitað. Þá langaði mig að
nýta titilinn einhvern veginn. Mig
langaði að sjá f leiri dragsýningar
á Íslandi.“ Gógó Starr var ekki ein
um það og úr varð að Gógó ásamt
sterkum hópi af fólki stofnaði
Drag-Súg. Í dag heldur Drag-Súgur
stærstu dragsýningarnar á Íslandi.
Drag-Súgur er með tvær mán-
aðarlegar sýningar á Gauknum
í miðbæ Reykjavíkur, hin sam-
nefndu og íburðarmiklu Drag-
Súgskvöld annars vegar og Drag-
Lab hins vegar. „Drag-Lab eru fríar
sýningar þar sem fólk kemur til
að spreyta sig á sviðinu. Til dæmis
fólk sem er að koma fram í fyrsta
skipti eða draglistamenn sem eru
að prufukeyra ný atriði.“
Ekki bara einhver klúbbalæti
Gógó hefur fundið fyrir því að
viðhorf almennings til drags hefur
breyst mikið. „Fólki fannst þetta
vera bara eitthvert kynferðislegt
partístand til að byrja með. Maður
fann fyrir frekar sterkum for-
dómum.“
Nú er öldin önnur, dragsýningar
eru tíðari og dragmenningin vin-
sælla fjölmiðlaefni með til dæmis
vinsældum RuPaul’s Drag Race og
Drag-Súgs. „Það að dragdrottn-
ingar eru farnar að koma fram í
stórum tónlistarmyndböndum
og auglýsingum gerir það að
verkum að fólk er farið að sjá þetta
í sínu daglega lífi og líta á drag-
drottningar sem skemmtikrafta í
sama flokki og uppistandarar og
tónlistarmenn. Fólk er almennt
farið að sjá drag sem sviðslist, en
ekki bara einhver klúbbalæti. Ég
vil að fólk sjái dragið sem listina og
skemmtunina sem það er. Vegna
vinsælda drags gat ég til dæmis
verið Fjallkonan í fyrra,“ en Gógó
er fyrsta Fjallkonan sem er jafn-
framt Dragdrottning Íslands.
Meðalmaðurinn tilbúnari að
stíga út fyrir kassann
Gógó vill meina að auknar vin-
sældir drags séu ekki bara skref
fram á við fyrir dragsamfélagið
heldur allt hinsegin samfélagið.
„Ég vil að lítið, skrýtið fólk eins og
ég var, geti séð einhverjar litlar,
skrýtnar furðuverur vera áberandi
í samfélaginu og standa sig vel í líf-
inu. Ég held það sé mjög hvetjandi.“
Upprunalega var búist við að
áhorfendahópur Drag-Súgs yrði úr
hinsegin samfélaginu. „Það kom
hins vegar mjög fljótlega í ljós að
stærsti áhorfendahópurinn er
ungir kvenmenn sem finnst þetta
æðislegt. Mér finnst það vera ótrú-
lega jákvætt hvað það eru margir
ólíkir hópar sem dýrka þetta og
klæða sig upp sem persónur í ein-
hverjum brjáluðum búningum.
Meðalmaðurinn er tilbúnari að
opna kassann, stíga út fyrir hann
og víkka sjóndeildarhring sinn.“
Framhald af forsíðu ➛
Fólki fannst þetta
vera bara eitthvert
kynferðislegt partístand
til að byrja með. Maður
fann fyrir frekar sterk-
um fordómum.
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
NETVERSLUN WWW.BELLADONNA.IS
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
30-80% afsláttur af öllum útsöluvörum
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-6
D
8
0
2
3
7
1
-6
C
4
4
2
3
7
1
-6
B
0
8
2
3
7
1
-6
9
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K