Fréttablaðið - 18.07.2019, Side 24
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
Ég kaupi kannski eina til tvær nýjar f líkur á ári. Ég kaupi annars allt notað. Ég geri
það fyrst og fremst af umhverfis-
verndarástæðum. Það er svo
mikið framleitt af fötum sem fara
svo í ruslið. Fólk heldur kannski
að með því að gefa fötin áfram
fari þau öll til nýrra eigenda,
en það er ekki endilega þannig.
Mikið af notuðum fötum selst
ekki og ýmis lönd, sem áður hafa
tekið við notuðum fötum frá
Vesturlöndum, eru hætt að taka
við þeim. Það truf lar þeirra eigin
hagkerfi og framleiðslu. Þannig
að ég kaupi notað til að reyna að
taka ekki þátt í þessari ofneyslu
og offramleiðslu,“ segir Hafdís.
Hafdís segir að henni takist
yfirleitt að finna öll þau föt sem
Kjóll með hestamynstri í uppáhaldi
Hafdís keypti þessu föt í Trendnet markaði með notuð föt. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Tónlistarkonan
Hafdís Bjarna-
dóttir hefur
mjög gaman af
tísku en forðast
að kaupa ný föt.
hana vantar notuð. Mikið af
þeim finnur hún á Bland eða
Facebook og svo hefur hún líka
farið á fataskiptimarkaði. „Bland
er sérstaklega gott ef mann
vantar útivistarföt, gönguskó og
íþróttaskó og þess háttar. Svo hef
ég fundið fín spariföt á Facebook,
en líka hversdagsföt. Kvenfélaga-
samband Íslands hefur tvisvar
verið með umhverfisdag með
fataskiptimarkaði og ég hef nýtt
mér það. Þá eru þær með sauma-
vélar og maður getur komið
og fengið aðstoð við að laga og
breyta fötum. Á Loft hosteli er
fata skipti markaður einu sinni í
mánuði og þar hef ég oft fundið
eitthvað sniðugt,“ segir Hafdís.
Fataskiptimarkaðirnir virka
þannig að fólk getur komið með
fötin sín þangað og skilið eftir og
tekið eitthvað í staðinn. En það
er líka í lagi að skipta ekki heldur
skilja bara eftir föt eða sækja
föt þangað. „Hugsunin bak við
markaðina er aðallega að nýta
fatnaðinn,“ útskýrir Hafdís.
Eins og fjársjóðsleit
Hafdís segist hafa mjög gaman
af tísku. „Ég er eiginlega svolítil
tískudellumanneskja svo fyrir
mér er þetta svolítið eins og að
vera að leita að gulli eða vera
í fjársjóðsleit. Mér finnst rosa
gaman að finna eitthvað hér og
þar og þá kannski eitthvað sem er
ekkert endilega eins og allir aðrir
eru að nota. Eins og hjá Kven-
félagasambandinu, þar leynast
kannski einhver svakalega falleg
vintage föt sem eldri konurnar
hafa fundið inni í skáp hjá sér og
koma með. Það er oft eitthvað
sem okkur sem erum aðeins
yngri finnst æðislega skemmti-
legt að fá.“
Ein af eftirminnilegustu f lík-
unum sem Hafdís hefur keypt
sér nýlega er kjóll með hesta-
mynstri sem hún segir að sé í
miklu uppáhaldi. „Þetta er mjög
skemmtileg dönsk hönnun. Ég
fann kjólinn á Facebook-hóp með
hönnunarvörum. En svo stofnaði
ég Facebook-hóp sem heitir Zero
Waste – Fataskipti, þar skipti
ég nýlega við eina konu og fékk
nokkra kjóla sem ég nota mikið.“
Hafdís segir að úrvalið af
notuðum fötum á Íslandi hafi
aukist mikið síðasta árið. Extra-
loppan og Trendport eru nýjar
verslanir á höfuðborgarsvæðinu
þar sem fólk leigir bás og selur
fötin sín í umboðssölu. Starfs-
fólk verslananna sér svo um að
selja fötin fyrir fólk. „Ég hef gert
rosagóð kaup í Trendport. Þar hef
ég fengið mjög „trendí“ föt fyrir
lítinn pening. Ég myndi segja að
Trendport og Extraloppan séu
mjög sniðugir staðir fyrir þá sem
eru ekki vanir að kaupa notuð föt
en langar að gera meira af því til
að vernda umhverfið. Þar er hægt
að fá bæði mjög venjuleg föt og
tískufatnað. Það hentar kannski
fólki sem sér sig ekki fyrir sér sem
Rauðakross- og Hjálpræðishers-
týpur,“ segir Hafdís og bætir við
að Rauði krossinn og Hjálpræðis-
herinn séu samt mjög góðar búðir
líka og hún hafi gert góð kaup
þar. „En úrvalið er að aukast fyrir
fólk sem vill kannski líta út eins
og það hafi verið að kaupa ný föt
frekar en notuð,“ segir Hafdís að
lokum.
Ég er eiginlega
svolítil tískudellu-
manneskja svo fyrir mér
er þetta svolítið eins og
að vera að leita að gulli
eða vera í fjársjóðsleit.
Hafdís Bjarnadóttir
Holtasmára 1
201 Kópavogur
(Hjartaverndarhúsið)
Sími 571 5464
NETVERSLUN WWW.TISKUHUS.IS
ÚTSALAN Í FULLUM GANGI
30-80% afsláttur af öllum útsöluvörum
Útsalan í fullum gangi
40-50% afsláttur
Kr. 7.900.-
Str. 36-52
Fleiri litir
buxur
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
1
-5
9
C
0
2
3
7
1
-5
8
8
4
2
3
7
1
-5
7
4
8
2
3
7
1
-5
6
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K