Fréttablaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 18.07.2019, Blaðsíða 42
Risastórt skref fyrir mannkynið Á laugardaginn er hálf öld liðin síðan Neil Armstrong steig fyrstur manna fæti á tunglið. Því risaksrefi er til- valið að fagna með því að horfa á sígildar bíómyndir sem gerast í hinu endalausa nágrenni tunglsins. 2001: A Space Odyssey (1968) Þetta sjónræna meistaraverk Stanleys Kubrick er beintengt tunglinu þar sem geimfarar finna þar furðuhlut sem sendir frá sér merki til Júpíters. Geimskipið Discovery er gert út þangað og þar með hefst marglaga epískt ferðalag í kvikmynd sem er ráðgáta í sjálfri sér. Ofurtölvan HAL 9000 reynist mikill örlagavaldur á ferðalaginu enda í raun mannlegri en geimfararnir um borð. Tví- mælalaust besta geimmynd allra tíma og ein af bestu myndum kvikmyndasögunnar. The Right Stuff (1983) Myndin er byggð á bók Toms Wolfe um sögu geimferðaáætlunar Bandaríkjanna og hverfist um geimfarana sjö sem kenndir eru við fyrstu áætlanirnar um að senda mannað geimfar út fyrir gufuhvolfið. Sam Shepard leikur Chuck Yeager sem skráði sig á spjöld sögunnar með því að rjúfa hljóðmúrinn. NASA kynnti sjömenn- ingana til leiks í apríl 1959 en kappið var meira en forsjáin þarna í upphafi geimferðakapphlaupsins með tilheyrandi karlagrobbi og töffarastælum. Alien (1979) Tímamótaverk Ridleys Scott er og verður einhver magnaðasta og besta hryllingsmynd allra tíma. Þarna teflir hann einnig fram í fyrsta sinn geim- faranum og hörkutólinu Ellen Ripley sem gerir sig heldur betur gildandi í geimnum og því karla- veldi sem hann varð um leið og mannkynið fór að nema þar lönd. Ripley tekst á við snarmorðóða geimveru sem stelur heldur betur senunni sem ágætis áminning um að við vitum ekkert hvað bíður okkar úti í endalausri óvissunni. First Man (2018) Fagmannlega unnin og snotur mynd um Neil Armstrong og aðdraganda þess að hann varð fyrsti maðurinn til þess að spóka sig á tunglinu þann 20. júlí 1969. First Man er um margt van- metin mynd sem fékk ekki verðskuldaða athygli en meðal annars hefur verið fundið að því að Armstrong hafi ekki verið nógu spennandi manneskja til þess að bera uppi bíómynd. Ryan Gosling leikur tunglfarann og Claire Foy eigin- konu hans, Janet Armstrong. Gravity (2013) Leikstjórinn Alfonso Cuarón bauð áhorfendum í heillandi geimferð með Gravity þar sem svifið var í þyngdarleysi með tveimur strandaglópum sem eiga litla lífsmöguleika eftir að geimfar þeirra eyðileggst. Sandra Bullock hefur sjaldan verið betri en einmitt þarna í hlutverki geimfara sem berst hetjulega fyrir lífi sínu. George Clooney er svo sannur gleðigjafi í þann allt of stutta tíma sem hann fær að njóta sín. Capricorn One (1977) Spennutryllir um sviðsetta lendingu manna á Mars. Umheimurinn heldur að um raunverulega lendingu sé að ræða en lendingin er tekin upp í stúdíói. Ljóst er að fórna verður geimförunum til að koma í veg fyrir að svikamyllan opinberist. Þeir leggja á flótta og eru hundeltir. Elliott Gould, James Brolin, Sam Waterston og hinn alræmdi O.J. Simpson eru í aðalhlutverkum. Diamonds Are Forever (1971) James Bond skrapp út í geim í Moonraker 1979 en rakst þó ekki á óværuna sem Ellen Ripley tókst á við það árið. Bond hafði áður horft til himins í Diamonds Are Forever en þurfti þó ekki út fyrir gufuhvolfið til þess að bjarga heiminum þá. Hann kom hins vegar við á sviði þar sem verið var að æfa sviðsetningu á falskri tungllendingu og snerti þar á vinsælli samsæriskenningu um að Armst- rong hafi aldrei komið til tunglsins. Apollo 13 (1995) Tom Hanks, Bill Paxton og Kevin Bacon leika geimfarana Jim Lovell, Fred Haise og Jack Swigert í sannsögulegri mynd um þrettánda Apollo-leið- angur Bandaríkjamanna 1970. Litlu mátti muna að þetta yrði hið mesta feigðarflan þegar allt fer úrskeiðis og Tom Hanks neyðist til þess að senda þessi skilaboð til jarðar: „Houston, við erum í vandræðum.“ kolbrunb@frettabladid.is toti@frettabladid.is 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R34 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð LÍFIÐ 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 6 F B 0 4 8 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 1 -7 C 5 0 2 3 7 1 -7 B 1 4 2 3 7 1 -7 9 D 8 2 3 7 1 -7 8 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.