Fréttablaðið - 18.07.2019, Qupperneq 44
Horfðu á
heildarmyndina
Uppsetning á interneti innifalin.
Kynntu þér málið á vodafone.is, í síma 1414, í næstu verslun
eða hjá umboðsaðilum okkar um land allt.
Ótakmarkað
Internet
Netbeinir og WiFi
framlenging
Ótakmarkaður
heimasími
Sjónvarps-
þjónusta
+ Afþreying frá
Stöð 2
Allt í einum pakka á lægra verði
Rikki snýr aftur
Flestir þeir sem ólust upp á tíunda
áratugnum muna eflaust eftir
taugaveiklaða rugludallinum Rikka
og félögum hans í þættinum Nú-
tímalíf Rikka, eða Rocko’s Modern
Life eins og þeir kölluðust á ensku.
Þættirnir voru framleiddir frá
1993 til 1996 fyrir sjónvarpsstöð-
ina Nickelodeon og nutu gríðar-
legra vinsælda, bæði hjá
börnum og ekki
síður fullorðnum
enda var oft
deilt um
hvort
um
barna-
efni væri að
ræða þar sem
sumir brandaranna þóttu heldur
vafasamir fyrir ungviðið.
Nýtt líf á Netflix
Streymisveitan Netflix sendi frá
sér á dögunum stiklu af teikni-
mynd í fullri lengd um hann Rikka
og sérkennilega vini hans. Myndin
ber heitið Rocko’s Modern Life:
Static Cling og skartar öllum leikur-
unum sem fóru með helstu hlut-
verkin á sínum tíma. Einnig snýr
höfundur þáttanna, Joe Murray,
aftur til að aðstoða Rikka og félaga
Gamlir kunningjar
boða komu sína
Kvikmyndahornið
Edda Karítas Baldursdóttir
eddakaritas@frettabladid.is
við að laga sig að breyttum tímum.
Myndin verður aðgengileg á Net-
flix frá og með 9. ágúst.
Greta skrifar Barbie
Greta Gerwig og Noah Baumbach
munu skrifa handrit kvikmyndar,
sem þegar er orðin umdeild, um
hina einu sönnu Barbie. Gerwig
er einnig orðuð við leikstjórn
myndarinnar en hún er hvað
þekktust fyrir að hafa leikstýrt og
skrifað handrit hinnar stórgóðu
Lady Bird.
Lady Bird hlaut fjöldann allan af
verðlaunum auk þess sem hún var
í fyrra tilnefnd til fimm Óskars-
verðlauna, fyrir leikstjórn, handrit,
bestu leikkonuna, bestu auka-
leikkonuna og sem besta myndin.
Lafði Barbie ætti því að vera í
nokkuð góðum málum.
Lengi er von á einni
Áform um að gera leikna mynd um
Barbie hafa verið uppi um nokkurt
skeið eða frá 2014. Grínistinn
Amy Shumer var fyrst orðuð við
hlutverk Barbie en sú hugmynd
féll víða í svo grýttan jarðveg að
Shumer hætti við. Óskarsverð-
launaleikkonan Anne Hathaway
var ráðin í hennar stað en neyddist
til þess að sleppa takinu af Barbie
vegna annarra verkefna.
Sony frestaði þá framleiðslunni
og hætti síðan alfarið við myndina.
Warner Bros.
Bæjarhátíðin Húnavaka hefst á Blönduósi í dag og nær síðan venju sam-k væmt há ma rk i u m helgina með tónlist og
skemmtun af ýmsu tagi. Á móti sól
gefur tóninn með stórtónleikum í
félagsheimilinu á föstudagskvöld
þegar segja má að ballið byrji fyrir
alvöru.
Fjöldi tónlistar fólks, margir
sjaldséðir á þessum slóðum, mætir
til leiks, þar á meðal Friðrik Dór,
Hildur og sjálfur Helgi Björns-
son, ókrýndur sveitaballakóngur
Íslands með SSSól á sínum tíma.
„Það eru bara ár og dagar síðan
ég hef spilað, skemmt og komið
fram í Húnavatnssýslu svo því sé
haldið til haga,“ segir Helgi í sam-
tali við Fréttablaðið og bætir við
að hann líti alltaf á sig sem „smá“
Húnvetning.
„Vegna þess að einhverjar ættir á
ég að rekja þarna til Strandamanna,
Húnavatnssýslumegin. Ætli for-
feður mínir hafi ekki stolið hestum
þarna einhvern tímann og riðið
hratt í burtu,“ segir Helgi og hlær.
Helgi segist alltaf hafa haft
gaman af því að spila á Blönduósi.
„Það er kátt og jákvætt fólk þarna í
Húnavatnssýslunni þannig að það
er mikil tilhlökkun að koma þarna
á Húnavöku í fyrsta skipti.“
Helg i kemur f ram á k völd-
skemmtun í Fagrahvammi á laugar-
dagskvöldinu ásamt Gunna Helga,
Daða Frey, Gunna Óla og Einari
Ágústi úr Skítamóral.
Helgi segist mæta til leiks með
bland í poka. „Við verðum með eitt-
hvað nýtt og eitthvað gamalt. Það
sem fólk vill heyra,“ segir hann og
bendir á að á skemmtunum sem
þessari hafi lítið upp á sig að vera
með tilraunastarfsemi í lagavali.
„Maður tekur þekkt númer.“
toti@frettabladid.is
Bland í poka á Húnavöku
Helgi Björns er með
reyndari mönnum
þegar kemur að því
að keyra upp sveita-
ballastemningu og
er til í tuskið á
Blönduósi.
Brot úr dagskránni
Fimmtudagur 18. júlí
Bæjarbúar plokka og gera fínt í
bænum.
Fjör á skólalóðinni. Ærslabelgur-
inn, kastalinn, aparólan, battó-
völlur, körfuboltavöllur, skatepark
og fleira.
Föstudagur 19. júlí
Sýning um hafís í Hafíssetrinu í
Hillebrandtshúsinu.
Tækifæri til að komast í
návígi við ísbjörn í Hille-
brandtshúsinu.
Leikhópurinn Lotta –
Litla hafmeyjan.
Tónlistarveisla í
Fagrahvammi.
Laugardagur
20. júlí
Opna Gámaþjón-
ustumótið í golfi á
Vatnahverfisvelli.
Skráning á golf.is
Dorgað á bryggj-
unni.
Fjallahjólakennsla
og stutt fjallahjóla-
ferð fyrir alla fjöl-
skylduna.
Blönduhlaup USAH.
Hestar á skólalóðinni.
Teymt undir börnum.
Kvöldskemmtun í Fagra-
hvammi. Umhverfisverð-
laun, tónlistarveisla og
varðeldur.
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R36 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
6
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
1
-7
7
6
0
2
3
7
1
-7
6
2
4
2
3
7
1
-7
4
E
8
2
3
7
1
-7
3
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K