Fréttablaðið - 18.07.2019, Side 46

Fréttablaðið - 18.07.2019, Side 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is EFTIR VELGENGNI LAGSINS ÁKVÁÐUM VIÐ AÐ GERA LAG Í SAMEININGU ALVEG FRÁ GRUNNI OG ÚR ÞVÍ SAMSTARFI KOM UPP TIL HÓPA. Ingi Bauer er einn efnilegasti house-tónlist ar pródúser landsins og hefur gefið út hvern smellinn á fætur öðrum síðastliðið ár. Hann kemur fram á Stóra sviðinu á Þjóðhátíð í Eyjum í ár og fær til sín marga af helstu samstarfsmönnum sínum. Þeirra á meðal eru Chase Anthony og Ezekiel Carl en á morg- un kemur út afrakstur samstarfs þeirra með Inga, lagið Áttavilltur. Hóf ferilinn með Áttunni Ferill Inga hófst á því að hann fram- leiddi tónlistina fyrir Áttuna, þar á meðal smellinn Nei, nei, sem varð gífurlega vinsæll. „Ég var byrjaður að fikta við tón- listargerð og þekkti þá sem stóðu að baki Áttunni. Þannig að við ákváðum að slá til og prófa að gera lag saman. Í kjölfarið urðu svo öll þessi helstu lög Áttunnar til og gekk bara mjög vel,“ segir Ingi. Ingi gerir lög oftast í samstarfi við aðra listamenn, en spilar þó sjálfur sem plötusnúður um land allt og segist mest vera að spila á menntaskólaböllum. „Þetta byrjaði samt allt þegar ég hafði samband við rapparann Herra Hnetusmjör og spurði hvort ég mætti endurhljóðblanda lagið Spurðu um mig, sem hann tók vel í. Ég kláraði það samt aldr- ei en sendi samt á hann það sem ég var kominn með. Honum leist vel á það og byrjaði að spila þá útgáfu á tónleikum.“ Amman fílar Upp til hópa Endurhljóðblöndun Inga fór vel í áhorf- endur og fólk fór að forvitnast um þessa nýju útgáfu. „Fólk var for- v it ið u m þ að hvaða lag þetta væri, þannig að loksins kýldum við á það og gáfum það út. Það gekk svo alveg fáránlega vel, miklu betur en okkur hafði grunað. Eftir velgengni lags- ins ákváðum við að gera lag í sameiningu alveg frá grunni og úr því samstarfi kom Upp til hópa,‘‘ segir Ingi. Upp til hópa hefur setið á lista yfir topp fimmtíu vinsælustu lögin á Íslandi á streymisveitunni Spotify í heilt ár, sem verður að teljast einstaklega vel gert. Hann segir það hafa 1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð Ingi Bauer spilar á Stóra sviðinu á Þjóðhátíð á föstudagskvöld- inu. MYND/KETCHUP CREATIVE Ingi hefur haft nóg að gera að spila um land allt síðastliðið ár. MYND/SUMARGLEÐIN Ingi Bauer er einn heitasti „pródúser- inn“ í dag og spilar á Stóra sviðinu á Þjóð- hátíð í Eyjum í ár. Á morgun gefur hann út lagið Áttavilltur með þeim Chase Anthony og Ezekiel Carl. Vinsældirnar komu Inga á óvart komið virkilega að óvart hversu vel lagið hefur gengið og til hve breiðs hlustendahóps það nær. „Mamma mín og pabbi og meira að segja amma mín tala um hvað þeim finnist þetta gott lag og hafa gaman af því. Sem er smá ótrúlegt því maður hefði haldið að það væru langmest menntaskólakrakkar sem fíluðu svona tónlist.“ Eftir vinsældir Upp til hópa byrjaði fólk að kannast betur við nafn Inga og hann hefur síðan þá haft nóg að gera að spila um allt land. Um samstarf hans og hljóm- sveitarinnar Séra Bjössi segir Ingi þá hafa hist á Egilsstöðum og stefnt á samstarf. „Fyrsta skiptið sem við hittumst gekk ekki alveg nógu vel en svo hittumst við aftur og út úr því kom lagið Dicks. Fyrir þetta þekktumst við ekki neitt. En Dicks hefur líka verið mjög vinsælt,“ segir Ingi. Nýja lagið varð til um miðja nótt Ingi hefur áður spilað á Þjóðhátíð en í ár er hann í fyrsta sinn á Stóra sviðinu. „Ég spilaði með Áttunni árið 2017 en þá var ég í raun bara að ýta á Play-takkann fyrir þau,“ segir Ingi hlæjandi og heldur svo áfram: „Svo var ég í Tuborg-tjaldinu í fyrra sem var mjög gaman líka. En ég er mjög spenntur fyrir því að spila á Stóra sviðinu.“ Á morgun kemur svo út lagið Átt av illtur með Inga, Chase Anthony og Ezekiel Carl. „Við erum að gera sem sagt okkar útgáfu af laginu Þú vilt ganga þinn veg með Einari áttavillta. Við vorum bara í stúdíói klukkan þrjú um nótt og einhvern veginn óvart byrjuðum við að gera lagið. Svo kláruðum við það bara tíu um morguninn,“ segir Ingi. Hægt er að nálgast lagið Áttavillt- ur á öllum helstu streymisveitum frá og með morgundeginum. steingerdur@frettabladid.is 1 8 -0 7 -2 0 1 9 0 5 :0 5 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 1 -6 3 A 0 2 3 7 1 -6 2 6 4 2 3 7 1 -6 1 2 8 2 3 7 1 -5 F E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 7 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.