Fréttablaðið - 18.07.2019, Síða 46
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
EFTIR VELGENGNI
LAGSINS ÁKVÁÐUM
VIÐ AÐ GERA LAG Í SAMEININGU
ALVEG FRÁ GRUNNI OG ÚR ÞVÍ
SAMSTARFI KOM UPP TIL HÓPA.
Ingi Bauer er einn efnilegasti house-tónlist ar pródúser landsins og hefur gefið út hvern smellinn á fætur öðrum síðastliðið ár. Hann kemur fram á Stóra sviðinu á
Þjóðhátíð í Eyjum í ár og fær til sín
marga af helstu samstarfsmönnum
sínum. Þeirra á meðal eru Chase
Anthony og Ezekiel Carl en á morg-
un kemur út afrakstur samstarfs
þeirra með Inga, lagið Áttavilltur.
Hóf ferilinn með Áttunni
Ferill Inga hófst á því að hann fram-
leiddi tónlistina fyrir Áttuna, þar á
meðal smellinn Nei, nei, sem varð
gífurlega vinsæll.
„Ég var byrjaður að fikta við tón-
listargerð og þekkti þá sem stóðu
að baki Áttunni. Þannig að við
ákváðum að slá til og prófa að gera
lag saman. Í kjölfarið urðu svo öll
þessi helstu lög Áttunnar til og
gekk bara mjög vel,“ segir Ingi.
Ingi gerir lög oftast í samstarfi
við aðra listamenn, en spilar þó
sjálfur sem plötusnúður um land
allt og segist mest vera að spila á
menntaskólaböllum.
„Þetta byrjaði samt allt þegar
ég hafði samband við rapparann
Herra Hnetusmjör og spurði hvort
ég mætti endurhljóðblanda lagið
Spurðu um mig, sem hann tók
vel í. Ég kláraði það samt aldr-
ei en sendi samt á hann það
sem ég var kominn með.
Honum leist vel á það
og byrjaði að spila þá
útgáfu á tónleikum.“
Amman fílar
Upp til hópa
Endurhljóðblöndun
Inga fór vel í áhorf-
endur og fólk fór
að forvitnast um
þessa nýju útgáfu.
„Fólk var for-
v it ið u m þ að
hvaða lag þetta
væri, þannig að
loksins kýldum
við á það og gáfum
það út. Það gekk
svo alveg fáránlega
vel, miklu betur en
okkur hafði grunað.
Eftir velgengni lags-
ins ákváðum við að
gera lag í sameiningu
alveg frá grunni og úr
því samstarfi kom Upp til
hópa,‘‘ segir Ingi.
Upp til hópa hefur setið
á lista yfir topp fimmtíu
vinsælustu lögin á Íslandi á
streymisveitunni Spotify
í heilt ár, sem verður að
teljast einstaklega vel
gert. Hann segir það hafa
1 8 . J Ú L Í 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R38 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Ingi Bauer spilar á Stóra sviðinu
á Þjóðhátíð á föstudagskvöld-
inu. MYND/KETCHUP CREATIVE
Ingi hefur haft nóg að
gera að spila um land allt
síðastliðið ár.
MYND/SUMARGLEÐIN
Ingi Bauer er einn
heitasti „pródúser-
inn“ í dag og spilar á
Stóra sviðinu á Þjóð-
hátíð í Eyjum í ár. Á
morgun gefur hann
út lagið Áttavilltur
með þeim Chase
Anthony og Ezekiel
Carl.
Vinsældirnar komu
Inga á óvart
komið virkilega að óvart hversu vel
lagið hefur gengið og til hve breiðs
hlustendahóps það nær.
„Mamma mín og pabbi og meira
að segja amma mín tala um hvað
þeim finnist þetta gott lag og hafa
gaman af því. Sem er smá ótrúlegt
því maður hefði haldið að það væru
langmest menntaskólakrakkar sem
fíluðu svona tónlist.“
Eftir vinsældir Upp til hópa
byrjaði fólk að kannast betur við
nafn Inga og hann hefur síðan þá
haft nóg að gera að spila um allt
land. Um samstarf hans og hljóm-
sveitarinnar Séra Bjössi segir Ingi
þá hafa hist á Egilsstöðum og stefnt
á samstarf.
„Fyrsta skiptið sem við hittumst
gekk ekki alveg nógu vel en svo
hittumst við aftur og út úr því kom
lagið Dicks. Fyrir þetta þekktumst
við ekki neitt. En Dicks hefur líka
verið mjög vinsælt,“ segir Ingi.
Nýja lagið varð til um miðja nótt
Ingi hefur áður spilað á Þjóðhátíð
en í ár er hann í fyrsta sinn á Stóra
sviðinu.
„Ég spilaði með Áttunni árið
2017 en þá var ég í raun bara að ýta
á Play-takkann fyrir þau,“ segir Ingi
hlæjandi og heldur svo áfram: „Svo
var ég í Tuborg-tjaldinu í fyrra sem
var mjög gaman líka. En ég er mjög
spenntur fyrir því að spila á Stóra
sviðinu.“
Á morgun kemur svo út lagið
Átt av illtur með Inga, Chase
Anthony og Ezekiel Carl.
„Við erum að gera sem sagt okkar
útgáfu af laginu Þú vilt ganga þinn
veg með Einari áttavillta. Við vorum
bara í stúdíói klukkan þrjú um nótt
og einhvern veginn óvart byrjuðum
við að gera lagið. Svo kláruðum við
það bara tíu um morguninn,“ segir
Ingi.
Hægt er að nálgast lagið Áttavillt-
ur á öllum helstu streymisveitum
frá og með morgundeginum.
steingerdur@frettabladid.is
1
8
-0
7
-2
0
1
9
0
5
:0
5
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
7
1
-6
3
A
0
2
3
7
1
-6
2
6
4
2
3
7
1
-6
1
2
8
2
3
7
1
-5
F
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
8
s
_
1
7
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K