Bæjarblaðið - 08.03.1980, Page 6
I TILEFNI KONUDAGSINS
Nú fyrir skömmu var konudagurinn haldinn hátíð-
legur um allt land. Yið hér á Bæjarblaðinu ákváðum
að ganga úr skugga um hvort Skagamenn fögnuðu
deginum á sama hátt og aðrir landsmenn og tókum
okkur því stöðu fyrir utan blómabúðina árla morguns
þennan merka dag. Þarna biðum við, vopnaðir mynda-
vél og fjórum spurningum og gripum eiginmenn
„glóðvolga“ að afloknum blómakaupum. Við lögðum
fyrir þá eftirfarandi spurningar:
1) Hverjum á að gefa blómin?
2) Færðir þú henni kaffi í rúmið í morgun?
3) Ertu búinn að gera þetta lengi?
4) Veistu hvað blómin, sem þú keyptir, heita?
Steingrímur Bragason.
Ég ætla að gefa frúnni þau.
Nei, ég gaf henni ekki kaffi.
Ég geri þetta á hverju ári.
Jú, þetta eru túlipanar, páska-
liljur og íris.
Helgi Aðalsteinsson.
Konunni.
Nei ég gaf henni ekki kaffi, en
ætla hins vegar að bjóða henni
út að borða á nýja matsölustaðn-
um.
Ég geri þetta á hverju ári. Einu
sinni þurfti ég að vísu að láta
kaupa blómin fyrir mig, því ég
var úti á landi og komst ekki til
þess.
Nei, ég veit ekki hvað þessi
blóm heita.
Þorsteinn Björnsson.
Konunni.
Nei, það gerði ég nú ekki, en ég
ætla að sjá um matinn í staðinn
og er meira að segja búinn að
setja hann upp.
Ja, ég gerði þetta allavega í
fyrra.
Nei ég veit ekki hvað þetta blóm
heitir. Þetta er pottablóm og
konan vill þau miklu heldur en
hin, sem hún kallar gerfiblóm.
Guðmundur Árnason.
Konunni.
Auðvitað ge'rði ég það.
Já, í tvö ár.
Nei.
Magnús Oddsson, bæjarstjóri:
Orkuverðið í athugun
Ég vil þakka ritstjórn Bæjar-
blaðsins, fyrir að gera ráð fyrir
svari frá mér vegna greinar þess
um verðlagningu á orku frá
kyndistöðinni.
Þegar verðlagning var ákveðin
í upphafi, fengum við útreikninga
frá okkar verkfræðilegu ráðgjöf-
um. Þeir reiknuðu dæmið út á
þrjá mismunandi vegu, sem gáfu
mjög svipaða niðurstöðu.
í þessum tilfellum þurfti að
meta ákveðnar forsendur, svo
sem stærð markaðar, brennslu-
nýtni, töp í dreifikerfi og áætla
annan rekstrarkostnað.
Ég vil minna á að hér er um
olíuupphitun að ræða og að
verð svartolíunnar er í dag lið-
lega 64% af verði gasolíunnar.
í kyndistöðinni er kynnt með
stórum kötlum með tiltölulega
hárri brennslunýtni, en á móti
kemur, að talsverð orka tapast
í dreifikerfinu þar sem það ligg-
ur í götum bæjarins. Rekstrar-
kostnaður er og nokkur auk fjár-
magnskostnaðar, en við teljum
að orkuverðið í dag sé liðlega
70% af meðalorkuverði, ef not-
endur hita hús sín með gasolíu.
í upphafi var við það miðað,
að stöðin yrði rekin á þann veg
að orkukostnaður færi ekki upp
fyrir 85% af meðalorkukostnaði
með venjulegri olíukyndingu. Við
teljum að við það hafi verið stað-
ið.
Með tilliti til þess að nú hefur
stöðin verið í svo til fullri notk-
un síðustu mánuði, ætlum við að
endurskoða verðlagningu með til-
liti til fenginnar reynslu. Jafn-
framt höfum við farið af stað
með könnun á því hvernig út-
koman hefur orðið hjá notendum
og höfum við í því sambandi
skrifað öllum notendum á svæð-
inu og óskað eftir upplýsingum
frá þeim um olíunotkun áður en
hús þeirra tengdust veitunni og
þá sérstaklega frá þeim, sem
telja að upphitun þeirra sé nú
dýrari, en ef þeir hefðu kynt
áfram með olíu, en raddir höf-
um við heyrt þar að lútandi.
Þegar hafa allnokkrir haft
samband við okkur og veitt um-
beðnar upplýsingar og ég býst
við að þessi athugun okkar þurfi
ekki að taka langan tíma. Að
svo stöddu vil ég ekki svara
grein Bæjarblaðsins frekar, en
bíða eftir niðurstöðu á fyrr-
nefndri könnun.
Akranesi 4. mars 1980,
Magnús Oddsson.
Hlutavelta
Kvennadeild Slysavarnafélagsins heldur hina
árlegu hlutaveltu, sunnudaginn 16. mars nk.
kl. 3,30 í Slysavarnahúsinu.
Gengið verður í hús dagana 12. og 13. mars.
Treystum á stuðning bæjarbúa eins og ávallt
áður.
Með kæru þakklæti,
nefndin.
6