Bæjarblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 8

Bæjarblaðið - 08.03.1980, Qupperneq 8
Foreldrafélag Grunnskólans: Starfið komið á iulla ierð Á síðasta ári var stofnað for- eldrafélag við Grunnskólann á Akranesi. Hinn 11. febrúar sl. var haldinn aðalfundur í félag- inu og kosin ný stjórn. Undan- fari þessa var fundur í hverri bekkjardeild eftir áramótin, þar sem tveir fulltrúar voru valdir frá hverri bekkjardeild í fulltrúa- ráð félagsins. Fulltrúaráðið kaus síðan stjórn fyrir félagið. Stjórn- in hefur þegar skipt með sér verkum og er þannig skipuð: Hafsteinn Sigurbjörnsson, for- maður, Helga R. Höskuldsdóttir, varaformaður, Guðmundur For- grímsson, ritari, Jóhanna Karls- dóttir og Einar Ólafsson, með- stjórnendur. Stjórnin hefur þegar hafið störf, en með henni vinna skóla- stjóri eða yfirkennari Grunn- skólans. Stjórnin hefur þegar skrifað tveimur aðilum bréf en það eru Slökkvilið Akraness og bæjarráð. SlökkviIiðinu er skrif- að varðandi öryggismál skólans með tilliti til brunamála og rým- ingu skólans í neyðartilfellum. Einnig er áskorun til bæjaryfir- valda um fullnaðarfrágang á skólalóðinni, sem leiksvæði, og farið fram á að haft verði sam- ráð við skólastjórn, kennara og foreldrafélag. í bréfi sem sent verður til forráðamanna nemenda Grunn- skólans er farið fram við þá að þeir kimi með hugmyndir um hvernig leiksvæði skólans ætti að vera. Ef einhverjir hafa slíkar hugmyndir eru þeir hvattir til að hafa samband við skólastjóra. Mikið hefur verið um það rætt og ritað að undanförnu hve kynd- ingarkostnaður er orðinn mikill. Hafa bæjarblöðin velt tölulegum staðreyndum og staðleysum fram og til baka og fengið út ýmsar gerðir af niðurstöðum. Fátt hefur sést í þessum blöð- um til leiðbeiningar fyrir hinn almenna húseiganda til þess að lækka kyndingarkostnaðinn. Bæjarblaðið hefur farið þess á leit við mig að reyna að gera einhverja bót á þessu, og taka fyrir hina ýmsu þætti sem gætu orðið til þess að lækka kynding- arkostnað hjá almenningi, hvort sem hitinn fæst frá hver, kyndi- stöð eða venjulegum húskatli. í þessari grein verður fjallað um tengingu við hitaveitu eða fjarhitun, og þá sérstaklega þann hluta kerfisins sem afmarkast af götuæð annars vegar og rennsl- ismæli inn í húsi, hinsvegar. Eins og margir bæjarbúar hafa orðið áþreifanlega varir við, standa nú hvað hæst tengingar húsa við dreifikerfi sem verið er að leggja fyrir væntanlega hita- veitu. Má segja að beinn hags- munaþáttur húseigandans hefjist þar sem heimæð tengist götu- lögn. Mikilvægt er að heimæð sé vel einangruð og að vel sé geng- ið frá beygjum og öllum sam- skeytum, bæði á röri, einangrun og hlífðarkápu. Far sem heimæð kemur í gegnum húsvegg ber einnig að fylgjast sérstaklega vel með að rörin séu einangruð og að ryðmyndun geti ekki átt sér þar stað, en töluverð hætta er á því þar. Þess má geta að dæmi eru til um að heimæðar hafi ryðgað í sundur þar sem þær fara í gegnum húsvegg á einu til tveimur árum og þá eingöngu vegna lélegs_ frágangs. Þegar komið er inn fyrir hús- vegg er áríðandi að hafa að- rennslið vel einangrað, sérstak- lega ef það er í óeinangruðum rýmum t.d. þvottahúsi eða geymslu. Töluverð kólnun getur átt sér stað í leiðslum við slíkar aðstæður og bitnar sú kólnun á herbergjum sem þurfa varmans meira við. Áður en komið er að rennslismæli er oftast staðsett- ur hitamælir sem fylgist með hita vatnsins inn í húsið. Mikil- vægt er að hann sé þannig stað- settur að hann nái góðri snert- ingu við vatnsstrauminn og gefi sem réttasta mynd af aðrennslis- hitanum. Heppilegasti staður fyr- ir slíkan mæli er á beygju, þann- ig að þreifari mælisins gangi vel inn í rörið og sé allur virkur í vatnsstraumnum. Þá ber einnig að nefna síuna sem er oftast mesti vanlræðavaldurinn á kerf- inu. Mjög gott er að hafa renni- loka staðsetta fyrir framan og aftan mælagrind þannig að ekki þurfi að tæma kerfið þegar þarf að eiga eitthvað við mælagrind, eða að hreinsa áðurnefnda síu. Hún á það til að stíflast af óhreinindum úr götukerfinu og hefta eða trufla aðrennsli heita vatnsins. Og að lokum er það renslis- mælirinn góði sem sér um taln- ingu á rúmmetrafjölda heita vatnsins sem notaðir eru. Þessi mælir þarf að vera þannig stað- settur að auðvelt sé að komast að honum, bæði fyrir húseiganda og ekki síður þann sem les af honum fyrir gjaldheimtuna. Á þessum mæli er hægt að fylgjast með eyðslu frá degi til dags og finna þannig út eitthvað meðal- gildi á eyðslu. Gott er að hafa innsýn í hvað meðalnotkun húss- ins pr. sólarhring er, því ef kerfið fer eitthvað að svíkja, t.d. bil- aður ofnkrani eða eitthvað slíkt, þá er aukinn snúningur á þessum mæli oftast fyrsta vísbendingin. Vonandi gefst tækifæri til þess að halla áfram eftir hita- kerfinu fljótlega og taka fyrir hvern einstakan hluta þess, mönnum til fróðleiks og þá um leið til sparnaðar fyrir þá sem fjármagna kyndingar húsa. — D.ÁR. Daníel Árnason: TEN6ING VID HITAVEITU 1. grein Að undanförnu hefur verið mikið skrifað og rætt um hitaveitu. Hér í Bæjarblaðinu hefur verið skrifað um óeðlilegan kostnað er margir notendur hitaveitu borga. Margir gætu náð honum niður með lagfæringu á kerfinu hjá sér. Við höfum því í framhaldi af þessu fengið Daníel Árnason tæknifræðing til að gefa fólki ábendingar um þá hluti sem það þarf að hafa eftirlit með, þvi á næstu árum mun verða unnið að tengingu flestra húsa á Akranesi. Þessar greinar munu birtast í næstu tölublöðum Bæjarblaðsins. Frá HeilsugœslustöSinni Konur/stúlkur í Akraneslæknishéraði fæddar 1934-1967. Mæling á mótefnum gegn rauðum hund- um verður gerð á rannsóknarstofu Sjúkra hússins eftirtalda daga: Mánudaga, þriðjudaga og miðviku- daga kl. 16-18, á tímabilinu frá 17. mars til 10. apríl. Allar konur fæddar á fyrrnefndu ára- bili eru beðnar að mæta. Mælingin er ókeypis. Heilsugæslulæknar Akranesi 8

x

Bæjarblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.