Bæjarblaðið - 08.03.1980, Page 10
BœJorbladitf
3. tbl. 8. mars 1980 2. árg.
Þeir era að fá ’ann
Mjög góður afli hefur verið
hjá netabátunum að undanförnu.
Afli Akranesbáta frá áramótum
og fram til 5. mars er þessi:
tonn
Anna 109
Grótta 321
Haraldur 295
Reynir 301
Sigurborg 249
Skírnir 69
Sólfari 273
Rán 77
Bátarnir eru allir á netum,
nema Rán sem er á trolli. Skírnir
hóf fyrir stuttu síðan netaveiðar
en hann var á loðnu. Rá hefur
Rauðsey nýlega hafið veiðar í
net og Sigurfari er einnig að
byrja netum. Aðeins tveir Akra-
nesbátar eru þá enn á loðnu-
veiðum, Bjarni Ólafsson og Vík-
ingur.
Afli togaranna frá áramótum
og fram til 5. mars er þessi:
tonn
Haraldur Böðvarsson 891
Krossvík 712
Óskar Magnússon 874
Á yfirstandandi loðnuvertíð
hefur verið landað 21.000 tonn-
um af loðnu á Akranesi, þ.e.a.s
til 5. mars.
Loksins!
LOKSINS — LOKSINS, og
upphrópunarmerki á eftir,
blasir við, þegar nýjasta blað
Dögunar er lesið. Ætla mætti
að ritstjórn Dögunar hafi náð
æðsta takmarki lífsins. Ekki
er nú svo, tilefnið er að þeir
eru svo sjálfumglaðir að telja
sér trú um þeir fjalli einir um
málefni er snerta unglinga.
Bæjarblöðin minnist ekki á
þá. Ritstjórn Dögunar skal
bent á, að efni það, sem þeir
fjalla um á unglingasíðu sinni
hefur fengið álíka mikið rúm í
Bæjarblaðinu og hjá þeim.
Eini munurinn er, að við flokk-
um fólk ekki niður eftir aldri
eða kynferði.
Nú bíðum við bara eftir
kvennasíðu og síðu fyrir aldr-
aða, og hvað skyldu svo hin-
ar síðurnar heita? Við lýsum
eftir því.
Á þeim merka degi 29. febr-
úar sl. (hlaupársdag) fæddist
drengur á Sjúkrahúsi Akraness.
Hann vó 3450 g. og var 52 cm.
langur. Þar sem piltur þessi kem-
ur aðeins til með að eiga afmæli
fjórða hvert ár, og slíkt hlýtur
að teljast viðburður, þá fór Bæj-
arblaðið í heimsókn til hans og
móður hans á Sjúkrahúsinu.
Foreldrarnir eru Svanhildur Páls-
dóttir og Hermann Magnússon
og eru frá Ólafsvík. Þetta er
þeirra fjórða barn — og síðasta,
að því er Svanhildur sagði. Er
við spurðum hana álits á afmæl-
isdegi sonarins, sagði hún að
þetta væri ekkert nýtt í fjölskyld-
unni, hann ætti átta ára gamlan
frænda, sem einnig væri fæddur
29. febrúar.
Oj - gellur í
Pað verður æ algengara
með árunum að ríkisstarfs-
menn fái mat á vinnustað sín-
um fyrir lítinn eða engan pen-
ing. Aðrir þjóðfélagsþegnar
horfa öfundaraugum til þess-
ara staða, því oft er veislu-
matur á borðum og þykir
það tíðindum sæta ef svo er
matinn
ekki. Grundartangi er einn
slíkur staður. Heyrst hefur,
að í einum matartímanum fyr-
ir nokkru, hafi allt orðið vit-
laust á tanganum. Menn hafi
janfvel talað um að reka
þyrfti kokkana. Og hver var
ástæðan? Jú, það voru gell-
ur í matinn!
Opin vika
í Fjölbrautaskóianum:
Allt d fullu ollsstaðor
„Opin vika“ verður í Fjöl-
brautaskólanum dagana 9. til 14.
mars. — En hvað er opin vika?
í Brautargengi, blaði Fjölbrauta-
skólans, segir að markmið dag-
skrárinnar sé að beina skóla-
starfinu að verkefnum sem ekki
eru snar þáttur í daglegri starf-
semi skólans. Skólinn verður,
eins og í fyrra, opinn fyrir al-
menning og er bæjarbúum boðið
að taka þátt í dagskrárliðum svo
sem húsakostur frekast leyfir.
Fjölmörg og ólík atriði eru á
dagskrá opnu vikunnar. Sérstak-
lega er vert að benda bæjarbúum
á, að þeir geta átt von á heim-
sóknum vegna skoðanakannanna
og er fólk hvatt til að taka nem-
endum vel í því sambandi. Pá
er ýmislegt athyglisvert í um-
ræðuhópum og ættu allir bæjar-
búar að finna þar eitthvað við
sitt hæfi. Meðal viðfangsefna
umræðuhópanna eru: Fljúgandi
furðuhlutir, trúmál, málefni
þroskaheftra, skipulagsmál Akra-
ness, stjörnuspár, skipan iðn-
fræðslu o.fl.
Of langt mál yrði að telja upp
alla þá liði sem eru dagskrá, en
með ólíkindum er hvað þeir eru
margir. Pá er rétt að geta þess
að mjög þekktur myndlistarmað-
ur, Theodor Paukstadt mun sjá
um skreytingu skólahúsnæðisins
og hefur nú þegar hafist handa.
Að lokum má geta þess að
kvikmyndasýningar og leiksýn-
ingar verða í fullum gangi bæði
í skólanum og Bíóhöllinni. T.d.
verður kvikmyndin Soldier Blue
sýnd í Bíóhöllinni. Pá verður
leikritið Elsku Rut sýnt í skól-
anum.
TrésmiBja
Sigurjóns & Þorbergs hf,
Byggingavörudeild sími 2722
Þjóðbraut 13 Akranesi.