Bæjarblaðið - 23.04.1982, Side 3

Bæjarblaðið - 23.04.1982, Side 3
Bœjorblodid Veturinn nálgast sitt skapa- daegur. Hann var langur og kaldur. Ströndin hefur verið ísilögð, fiski- mönnum til óþurftar, og hér hefur ekki séð á dökkan díl. En máttur sólarinnar eykst. Það drýpur af upsum húsanna, og meðfram vegunum hríslast smálaekir, sem boða komu vorsins enda þótt hita- mælirinn skríði niður fyrir núll á nóttunni. Enn er mikill snjór á jörðu, svo að skíðamenn eiga enn góða daga Smáfuglarnir eru farnir að æfa vorljóðin sín, enda þótt vetrarhæsin heyrist enn í röddum þeirra. Á vandamáli eiriu, sem hrjáð hefur okkur í meir en tuttugu ár, er nú loks að finnast lausn. Bamble- hérað hefur langa strönd og sums staðar er hún dáð af sóldýrkend- um. Einn eftirsóttasti hluti hennar er „Hrognaströndin”. Þar er ágæt baðströnd og stórt tjaldsvæði og mikið af sumarbústöðum í grennd. Þar að auki á Norsk-Hydro mikið af leigubústöðum þar, bátahöfn og tjaldsvæði. Þessi staður freist- ar margra, bæði íbúa Bamble og fleiri gesta. Vegurinn til Hrogna- strandar er gamall einkavegur, og hann er vandamálið. Þessi vegur var í upphafi miðaður við hest- vagna, en ekki vélknúin ökutæki. Á góðviðrishelgum eru bílar oft í hundraðatali að reyna að troðast eftir þessum vegi, og\þetta hefur vakið úlfúð og reiði eigenda. Menn hafa rætt og deilt um það, hvar veg skuli leggja og hver eigi að borga hann. Um þessar mundir er loks að finnast lausn á þessu máli. Menn eru nú að verða á eitt sáttir um það, hvemig andvirði vegarins, 3,4 milljónir norskra króna eigi að skiptast milli ríkisins, fylkisins, sveitarfélagsins, Norsk- Hydro, jarðeigendanna og sumar- bústaðaeigendanna. Nú lítur út fyrir, að innan fárra ára verði hægt að aka til Hrognastrandar án þess að aka um komakra bænda til að geta mætt bíl. Basði í Langesund og Stathelle er mikið byggt af íbúðarhúsum. í Langesund eru uppi áætlanir um að endumýja gömlu verslunar- húsið við Ráðhústorgið og byggja þar nýtískulegar verslanir á þrem- ur hæðum með 1500 ferm. gólf- fleti. Ekki eru allir á einu máli um þetta frekar en margt annað. Mörgum finnst Langesund muni missa andlitið ef gömlu timbur- húsin við torgið verði látin hverfa, enda þótt framhliðamar á nýju húsunum eigi að vera í gömlum stíl og falla vel að þeim húsum sem fyrir eru. I Stathalle hefur Sparisjóðurinn lagt drög að því að byggja versi- unarmiðstöð við brúna. Hér er um nokkurt stórt hús að ræða með 4.200 ferm. gólfflöt á þremur hæð- um. Hér á að vera unnt að hafa mikið vöruúrval og þama verða einnig nokkrar skrifstofur. Þessi verslunarmiðstöð mun vafalaust með auknu vöruúrvali stuðla að auknum viðskiptum hér heima og draga úr þeirri sorglegu stað- reynd, að 30% af verslun heima- manna fer fram í nágrannabyggð- unum. Það efast víst enginn um það lengur, að Bamble hefur mikið að- dráttarafl, því hingað flytur fólk al- veg látlaust. Og allir vilja fá þak yfir höfuðið. Nýjasta byggingasvæðið er Coche-svæðið. Þar er búið að skipuleggja allt, og þegar snjórinn hverfur fara gröfumar í gang. Þar verða til að byrja með byggð 40 einbýlishús, en með tímanum verða þau sennilega 200. Bæjar- og héraðsbókasafnið. Aukin starfsemi bókasafnsins: 423 nýir lánþegar á síðasta ári Og nýi bamaskólinn í Lange- sund er næstum tilbúinn og mun verða tekin í notkun í haust. Bæði kennarar og nemendur munu fagna því að losna úr þrengslun- um í gamla skólanum og hefja starf í nýjum og rúmgóðum skóla- stofum. Menn ræða nú um hvað gera skuli við gamla skólann, þegar sá nýi tekur við. Flestir vilja stofna þar framhaldskóla. Framhaldsnám á mörgum námsbrautum hefur ver- ið talsvert vandamál fyrir unglinga hér í Bamble, og margir hafa orðið að leita útfyrir byggðamörkin strax að loknum grunnskóla í leit að framhaldsnámi. En framhalds- skólar eru ekki bara byggðamál. Bæði ríkisstjóm og Fylkisstjóm verða að samþykkja nýjan fram- haldskáoia hér áður en málið er klappað og klárt. Það er einnig á dagskrá að stofna fjölþættan tónlistarskóla með haustinu. Hann mun byrja smátt, en búast má við að hann stækki ört. Hér er mikið af lúðra- sveitum og kórum, svo að ekki er líklegt að skortur verði á nemend- um í slíkan skóla. Allir sem tónlist unna, bíða með óþreyju eftir því að slíkur skóli komist hér í gagnið. Olíuefnaiðnaðurinn á við vandamál að stríða. Heimsmark- aðsverðið á framleiðslunni er nú í lágmarki og samkeppnin er afar hörð. Forstjórinn í Norsk-Hydro á Rafnesi er samt sem áður furðu bjartsýnn. Hann heldur^því fram, að verksmiðjurnar hér sé vel rekin fyrirtæki og hljóti því að standa sig á markaðnum. „Þegar við kom- umst aftur upp úr öldudalnum, þá verðum við ofan á”. Iðnaður allra landa virðist mjög slappur um þessar mundir, - en hver veit nema Eyjólfur hressist fyrr en var- ir. Vonandi halda blysin á Rafnesi áfram að loga um langa framtíð. Það sem upptekur hugi Norð- manna mest á þessari stundi er heimsmeistaramótið á skíðum, sem ferfram í Osló þessa dagana. Kaupmennirnir kvarta um skort á viðskiptavinum, en þeir sitja allir negldir niður við sjónvarpið og fylgjast með hverri hreyfingu skíðakappanna. Norræna félagið í Bamble held- ur aðalfund næstu daga og getur státað af viðburðarríku ári. Hér var vinabæjamót í sumar með 100 þátttakendum frá öllum vinabæj- unum, en auk þess fengum við margar heimsóknir. Hingað kom lúðrasveit frá Nárpes, danshljóm- sveit frá Vástervik og íþróttafólk frá Tönder. Allt bendir til að árið sem nú er hafið verði einnig við- burðarríkt. Við sendum okkar bestu kveðj- ur til allra vina í vinabæjum okkar, og óskum öllum gæfu á komandi sumri. Þetta er er ferðaár hjá Nor- rænu félögunum, - hvernig væri nú að gera það meir en orðin tóm? Bamble 1. mars 1982 Björg Nilsen HÆTTIR FISK- BÚÐIN? Bæjarblaðið hefur fregnað að miklar líkur séu á að fiskbúðin hætti brátt rekstri. Ástæðan mun vera sú að Sigurði Ingimarssyni eiganda hennar hefur gengið erf- iðlega að fá húsnæði undir fisk- vinnslu hér á Skaga. Hörgull á fiskbúðum hefur lengi verið mikið vandamál hér á Skaga, og er vonandi að húsnæð- isvandamál núverandi fiskbúðar leysist svo ekki komi til stöðvunar á þessari bráðnauðsynlegu þjón- ustu. Nýlega barst Bæjarblaðinu yfir- gripsmikil ársskýrsla Bæjar- og héraðsbókasafnsins á Akranesi. í skýrslunni er víða komið við og munum við stikla á stóru í gegnum hana. Safnið er nú opið 22 tíma á viku og varð aukning þar á í september í fyrra en áður höfðu opnunartímar verið 18 á viku. Þessi lenging opn- unartímans hefur gefið mjög góða raun bæði fyrir lánþega og starfs- fólk. Þá hafa bókaverðir verið með upplýsingaþjónustu á mánudags- og fimmtudagskvöldum og er þetta annað árið sem sá háttur hefur verið á. Rétt er að geta þess að sú þjónusta er að sjálfsögðu fyrir alla bæjarbúa. Um síðustu áramót voru skráðir lánþegar 2926. Á árinu voru af- greidd 423 ný lánþegaskírteini og er það mikil aukning frá fyrra ári. 17.399 lánþegar fengu lánaðar bækur heim á árinu. Auk þeirra komu mjög margir aðrir gestir í safnið í þeim tilgangi að skoða og lesa blöð, bækur og tímarit á les- stofum, skila bókum og afla sér alls kyns heimilda og upplýsinga. Mun láta nærri, að annað hvert barn og fjórði hverfullorðinn, sem í safnið koma, taki ekki bækur með sér heim. Má þannig ætla að gestir alls hafi verið um 32.400. Bein útlán safnsins vom 52.158 bindi, en árið áður vom þau 49.420. Þetta er 3,6% aukning, en að viðbættum áætiuðum lesstofu- lánum em þetta 79.203 bindi á móti 75.183 árið áður og er aukn- ingin þá 5.3% á milli ára. í þessum tölum em innifalin bókalán til skipshafna, Dvalarheimilisins Höfða og talbækur til blindra og sjónskertra. Á síðasta ári voru keyptar 1222 bækur en 54 bókum fleira en árið áður. Mjög erfiðlega hefur gengið að fá bundnar inn bækur fyrir safnið, en á síðasta ári voru bundnar inn 122 bækur. Sam- kvæmt aðfangaskrá var bóka- kostur safnsins um síðustu ára- mót 26.351 bindi. Á síðasta ári voru haldnar sjö sýningar í sýnignarsal safnsins. Verkfræði- og teiknistofan sf. og Hitaveitan hafa nú flutt af efri hæð bókasafnsins og vonast því bóka- safnsstjórn til að safnið fái nú það húsnæði til afnota. Fastráðnir starfsmenn safnsins eru nú fimm og einn starfsmaður er lausráðinn. í stjórn Bæjar- og héraðsbókasafnsins em nú: Ön- undur Jónsson, formaður, Bragi Þórðarson, varaformaður, Ólafur Þórðarson, ritari, Gunnlaugur Bragason og Sigurður Sigurðs- son. Bæjarbúar Bæjarbúar Muniö herðatrjásölu Lions- klúbbs Akraness Takið sölubörnum okkar vel. Söludagur er nk. föstudagur, 30. apríl. Ágóðinn rennur til líknarmála. Lionsklúbbur Akraness.

x

Bæjarblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.