Bæjarblaðið - 23.04.1982, Blaðsíða 5
Bœjorblodid
5
Vel heppnað íslandsmót fatlaðra
Sigurvegarar mótsins samankomnir á Hótel Akranesi, en þar var haldin vegleg samkoma, Það var mikið um að vera í sal íþróttahússins, enda margar íþróttagreinar í gangi.
með ræðuhöldum, dansi o.fl. að loknu mótinu.
Um síðustu helgi var haldið í
íþróttahúsinu hér á Akranesi ís-
landsmót fatlaðra íþróttamanna.
Mikill fjöldi þátttakenda var á mót-
inu og þótti það takast vel. Það er
ánægjulegt að við Skagamenn
skulum geta boðið upp á aðstöðu
til slíks móthalds, en á síðasta ári
voru gerðar breytingar á íþrótta-
húsinu til að auðvelda fötluðum
aðgang að því.
Við munum ekki tíunda hér úr-
slit í hinum mörgu íþróttagreinum,
hafa dagblöðin nú þegar gert
það, en Árni S. Ámason, Ijós-
myndari Bæjarblaðsins mætti á
staðinn og festi á filmu hluta af
atburðum helgarinnar.
Spennandi
skákmót
Síðastliðna helgi, dagana
16.-18. apríl var haldið kjör-
dæmismót grunnskólanem-
enda á vesturlandi. Þátttak-
endum er skipt í tvo flokka 7 -
12 ára og 13-15 ára. Mótið
þótti afar jafnt og spennandi.
Árangur Akurnesinga var
mjög góður, í yngri flokki voru
tveir efstir og jafnir, þar af ann-
ar Akurnesingur Pétur Lárus-
son 9 ára gamall. Háðu þeir
því með sér einvígi sem Pétur
tapaði naumlega.
I eldri flokki voru einnig tveir
efstir og jafnir, þar var einnig
háð einvígi og þá sigraði okkar
maður Einar Sveinn Guð-
mundsson glæsilega. Einar
mun því halda áfram keppn-
inni og fara á landsmótið og
keppa fyrir hönd alls vestur-
lands.
^ —
AKURNESINGAR
TAKIÐ EFTIR
FRAMKÖLLUM
allar tegundir litfilma.
Ef filman kemur fyrir kl. 14 fáið þið
myndirnar daginn eftir.
VÖNDUÐ VINNA.
VERSLUNIN AMOR
Kirkjubraut 14
Akranesi
Sími 2322.
Gleðilegt
sumar!
Veitingahúsið Stillholt
ST1LUH0LT1 2 - AKRANESI - Sfcfl (93)2778
i