Bæjarblaðið - 23.04.1982, Page 6
Æ
Islensku skífumar
eru í meirihluta
Enn á ný birtist skagapoppið
lesendum blaðsins, en nú með
nokkuð breyttu sniði. Áður voru
tveir listar birtir, annar unninn úr
sölulista Portsins en hinn úr Bjargi
Nú hafa þessir listar verið sam-
einaðir í einn sem ætti að geta
gefið enn skýrari og afmarkaðri
mynd af vinsældavali Skaga-
manna.
Hér kemur þá listinn:
1. Beint i mark....................Ýmsir
2. Breyttirtímar....................Ego
3. Gæti eins verið......Þursaftokkurinn
4. Freeze Frame...........J. Geiles Band
5. Five Miles out.........Mike Oldfield
6. Beauty and The Beat.........Go Go’s
7. Our Lips are Sealed.........Go Go’s
SKAGA
POPP
8. Grýlumar...............Grýlumar
9. Rokk í Reykjavík..........Ýmsir
10. Næst á dagskrá...........Ýmsir
Það er mjög ánægjulegt að sjá
að íslensku skífumar eru í meiri-
hluta á listanum, svo virðist sem
landinn sé að sættast við „klaka-
popparana". Ef l'itið er nánar á list-
ann má sjá að enn ein peninga-
platan frá Steinum hf. hefur borið
tilætlaðan árangur, þar sem hún
trónir nú í efsta sætinu. Breyttir
tímar Egosins fylgja fast á eftir -
uppgjörs- og aðskilnaðarskífa
Bubba gamla við gaddavírs-
flækjumenninguna. Þursaflokkur-
inn fær enn eina skrautfjöðrina (
hattinn með tilkomu „Gæti eins
verið“. Annað markvert er að Go
Go’s grýlumar verma tvö sæti list-
ans með báðar breiðskífumar sín-
ar og síðan fylgja okkar íslensku
Grýlur fast á eftir. Þá hefur nýút-
komin skífa „Rokk í Reykjavík
þegar komist inn á listann og á
sjálfsagt eftir að færa sig uppávið.
VERKSTJÓRAR
AKRANESI
Þeirsem hafa áhuga á að nota sumar-
húsið að Húsafelli í sumar hafið sam-
band við Steindór í síma 1117 eða
1321 vikuna 25/4 til 1/5 n.k.
Húsnefnd.
piilijjj AKRANESKAUPSTAÐUR
Umsjónarmaður
við gæsluvöll
Starf umsjónarmanns við gæsluvöll við
Stekkjarholt er laust til umsóknar. Skrif-
legum umsóknum er tilgreini aldur,
menntun og fyrri störfsé skilað á bæjar-
skrifstofuna Kirkjubraut8fyrir3. maí nk.
Nánari upplýsingar hjá undirrituðum í
síma 1211.
Félagsmálastjóri.
Verslunarmenn
Akranesi athugið!
Umsóknir um dvöl í orlofshúsi V.A. í
Húsafelli þurfa að berast til skrifstofu fé-
lagsins Kirkjubraut 40 eða í pósthólf 51
fyrir 5. maí 1982.
Skrifstofan verður opin föstudaginn 30.
apríl og þriðjudaginn 4. maí frá kl. 16.00
-19.00 báða dagana. Úthlutun fer fram
laugardaginn 8. maí frá kl. 14.00 -
17.00.
Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni
á auglýstum opnunartíma og í af-
greiðslu verkalýðsfélaganna.
Verslunarmannafélag Akraness
Orlofsnefnd.
Boojorblodid
Frá ráðstefnunni Tölvur og skóli.
Athyglisverð ráðstefna haldin hér á Akranesi:
TÖLVUR OG SKÓLI
Undanfarin 2 til 3 ár hefur átt sér
stað gífurleg breyting á tölvunotk-
un í skólum landsins. Skólamir
hafa keypt tölvur og notað til
kennslu í forritun og tölvuvinnslu.
Einnig hafa tölvur verið notaðar
lítillega við kennslu annarra
greina (kennsluforrit).
Mest af þessu hafa verið fálm-
kenndar prófanir í einstökum skól-
um. Því ákvað Vesturlandsdeild
Hins íslenska kennarafélags með
kennara úr Fjölbrautaskólanum á
Akranesi í broddi fylkingar að
standa fyrir ráðstefnu um þessi
málefni. Dagana 2. og 3. apríl var
haldin ráðstefna í Fjölbrautaskól-
Prentvillur
á prent-
villur ofan
Baksíða síðasta Bæjarblaðs
var heldur Illa haldin af slæm-
um og villandi fyrirsögnum. Ein
þeirra var: „íþróttahúsið fær
kúfinn af kökunni” og er það al-
rangt. Það er Iþróttabandalagið
sem kúfinn fær, en ekki þó í
beinhörðum peningum því
280.000 kr. eru í formi tíma í
íþróttahúsinu. Önnur fyirir-
sagnavillan var sú að Dalbraut-
in var nefnd Dalsbraut, en sú
villa er nú minniháttar. Þriðja
fyrirsögnin var yfir grein um
nýtt húsnæði Verkfræði- og
teiknistofunnar, en þar sagði
að stofan hefði flutt í nýtt og
glæsilegt húsnæði í tilefni af 20
ára afmæli fyrirtækisins. Auð-
vitað var það ekki bara í tilefni
af afmælinu, þó að svo
skemmtilega stæði á hjá fyrir-
tækinu. Húsnæðisþörfin hafði
einfaldlega aukist og og var
það ástæðan.
Bæjarblaðið biðst velvirðing-
ar á þessum mistökum og við
skulum vona að lítið verði um
svona villur í framtíðinni.
anum á Akranesi sem nefndist
Tölvur og skóli.
Til hennar var boðið kennurum
úr framhaldsskólum landsins.
Ýms fróðleg erindi voru flutt:
Oddur Benediktsson dósent við
Háskóla (slands, fjallaði um notk-
un tölva í íslenskum framhalds-
skólum. í því erindi greindi hann
frá störfum hóps á vegum
menntamálaráðuneytisins, sem
er að kanna notkun tölva í fram-
haldsskólum landsins, með hvaða
hætti sú notkun er og hvernig
henni geti verið háttað í framtíð-
inni. Margt fróðlegt kom fram í máli
hans en starfshópurinn hefur ekki
lokið störfum þannig að niðurstöð-
ur og tillögur hafa enn ekki litið
dagsins Ijós. En menn vænta mik-
ils af þessu starfi. Það getur vænt-
anlega orðið grundvöllur stefnu-
mótunar í þessum málum í fram-
tíðinni og getur vonandi leitt í Ijós
að hve miklu leyti samræmingar
er þörf við kaup á tækjabúnaði í
skólunum og gerð hugbúnaðar.
Jón Torfi Jónasson lektor við
Háskóla íslands flutti erindi um
notkun tölva í kennslu en hann
hefur m.a. kynnt sér slíka notkun
erlendis. Fram kom að honum
fannst kennsluforrit sem hann
hafði kynnst oft vera tiltölulega
einföld að uppbyggingu og ekki
nýta alla þá möguleika sem tölvur
gefa. Hann greindi frá því að gífur-
lega vinnu þarf að leggja í að út-
búa góð kennsluforrit.
Hann taldi jafnframt að kennar-
ar ættu að vera einn helsti aðili að
slíkri vinnu. Ef svo á að vera þarf
að bæta aðstöðu kennara og gera
þeim kleift að sinna slíkum auka-
störfum, en það er ekki í sjónmáli.
Á þessari ráðstefnu var stofn-
aður samstarfshópur þeirra sem
forrita og nota tölvur í framhalds-
skólunum en eins og áður segir
hefur nánast ekkert samstarf verið
um tölvunotkun í skólum til þessa.
í umræðum á þessari gagn-
merku ráðstefnu leiddi m.a. það í
Ijós að hægt væri að nota tölvur
mjög víða sem hjálpartæki í
kennslu og á það við um flestar
námsgreinar (kemur til greina að
þjálfa nemendur í ýmsum þátt-
um hinna ólíku greina málfræði,
reikning í stærðfræði og eðlis-
fræði, aðstoð við tilraunagerð,
notkun við textavinnslu og tengist
það vélritunarkennslu en þróun
slíkra véla á þessu sviði hefur
fleygt fram að undanförnu).
Seinni dag ráðstefnunnar var
eins og áður sagði haldin tölvu-
sýning. Þar sýndu 11 fyrirtæki
vöru sína og verður að teljast að
sýningin hafi gefið gott yfirlit yfir
það sem til er á þessu sviði tölvu-
iðnaðarins.
Aðstandendur ráðstefnunnar
telja að hún hafi reynst gagnleg
enda tímabært að fjalla um þessi
mál í alvöru. Hún leiddi m.a. í Ijós
stöðu þesara mála í framtíðinni og
að nauðsynlegt er að huga að
þessum málum nú þegar ef skól-
arnir eiga ekki að dragast aftur úr
á þessu sviði. En það má alls ekki
gerast.
Vegna mótmæla Dalbrautaríbúa:
Akranesbær á sóða-
legustu lóðina
i síðasta tölublaði Bæjarblaðsins
skýrðum við frá mótmælum ibúa við
Dalbraut og bréfi sem þeir sendu til
Bæjarstjómar og Olíufélgsins hf. Jafn-
framt var sagt að íbúamir hefðu út-
nefnt lóð Olíufélagsins við Dalbraut
sóðalegustu lóðina og birt var mynd af
umræddri lóð.
Nú hefur Bæjarblaðið hins vegar
fregnað að nægilegt hefði verið fyrir
íbúa Dalbrautar að senda bæjarstjóm
einni bréf, þar sem Olíufélagið á alls
ekki þá lóð sem um er rætt. Akranes-
kaupstaður á umrædda lóð og því er
einungis við bæjaryfirvöld að sakast
vegna hennar.
í lóðasamningi Olíufélagsins við
Akraneskaupstað, frá 1. júlí 1980,
segir að Olíufélaginu sé leigð lóðin nr.
9 við Þjóðbraut til þess að reka á vöru-
bílastöð. Lóð þesi er að flatarmáli
4875 ferm. Með þessum lóðasamningi
var felldur úr gildi samningur um þessa
lóð, dagsettur 21. júlí 1967, gerður við
þáverandi lóðahafa, Vörubílstjórafé-
lagið Þjót.
í þeim samningi sem gerður var við
Þjót mun umrædd lóð við Dalbraut
hafa verið, en þegar Olíufélagið tekur
við lóðinni fær bærinn 2275 ferm. lóð
við Dalbraut. Bæjarstjóm mun meira
að segja hafa úthlutað þessari lóð til
byggingar einu sinni en sá aðili hefur
síðan hætt við að byggja á henni.
Þama virðist þvi um einn allsherjar
misskilning að ræða og ómaklega ráð-
ist að Olíufélaginu hf., sem hefur nú
nýlega snyrt lóð sína við Þjóðbraut og
malbikað, þannig að sómi er af.