Bæjarblaðið - 23.04.1982, Síða 8

Bæjarblaðið - 23.04.1982, Síða 8
Á landleið til Akraness. MUN MEIRIVERTIBARAFLI EN Á SAMA TlMA IFYRRA - þrált fyrir styttri vertið Heildarafli Akranesbáta á vetr- arvertíðinni var orðinn 4.322 tonn þann 19. apríl sl. Þetta er talsvert meiri afli eri á sama tíma í fyrra, en þá var heildaraflinn 3.860 tonn eða 462 tonnum minni en í ár á sama tíma. Afli netabáta var mjög góður fram að þorskveiðibanninu um páskana, en síðan þá hefur hann verið fremur tregur. Afli þessi er enn athyglisverðari fyrir það, að vertíðin í ár byrjaði óvenju seint eða ekki fyrr en að loknu verkfalli sjómanna upp úr miðjum janúar. Afli einstakra vertíðarbáta fram til 19. apríl, að þeim degi meðtöld- um var sem hér segir: Anna 4291 Grótta 5381 Haraldur 5821 Rán 243t Rauðsey 3771 Reynir 2551 Sigurborg 4811 Sigurfari 4171 Skírnir 5011 Sólfari 4991 Á sama tíma, frá áramótum til 19. apríl, var afli togaranna sem hér segir: Bjami Ólafsson 2251 Haraldur Böðvarsson 1.1381 Krossavík 9851 Óskar Magnússon 9041 Við teljum Bjarna Ólafsson þarna með togurum, en þetta fengsæla loðnuskip hefur undan- farið stundað togveiðar, en eins og öllum er kunnugt mun eitthvað takmarkað vera eftir af loðnu í sjónum og þau skip er stundað hafa loðnuveiðar hafa því orðið að snúa sér að öðrum veiðum. Loðnuskipin mega veiða 800 tonn af þorski og verður það að teljast ágætis skammtur fyrir þau, að minnsta kosti þætti það góður ver- tíðarafli hér á Skaga. Loðnuskip okkar Skagamanna stunda nú öll þorskveiðar, nema flaggskipið Víkingur, sem liggur bundinn við byggju og hefur svo verið það sem af er árinu, en óvíst mun vera á hvaða veiðar hann fer. Eins og áð- ur kom fram er Bjarni Ólafsson á trolli, en hin loðnuskipin, Rauðsey, Skírnir og Sigurfari róa með þorskanet. 54 smábátaeigendur á Akranesi: KREFJAST BETRIAÐSTÖÐU Nýlega sendu 54 smábátaeig- endur á Akranesi, hafnarstjórn bréf, þar sem þess er krafist að nú þegar verði hafist handa við að undirbúa og byggja upp viðlegu- aðstöðu í Akraneshöfn fyrir smá- báta. Benda bréfritarar á hug- mynd Sigurðar Þorsteinssonar hafnarverkstjóra. Uppkast Sigurð- ar er að þeirra dómi mjög álitlegt. Eftir því sem Bæjarblaðið kemst mun staðsetning smábátaað- stöðu samkvæmt hugmynd Sig- urðar vera í krikanum fyrir neðan Akursbraut og Faxabraut fram af skemmu Síldar- og fiskimjöslverk- Næsta Bæjarblað Næsta Bæjarblað kemur út föstudaginn 7. maí nk. Enn sem fyrr viljum við beina því til þeirra sem hyggjast koma auglýsingum eða efni í blaðið að veratímanlega með það og eki seinna en þriðju- daginn 4. maí, þannig að tryggt verði aö það komist fyrir í blaðinu. Auglýsingasímar Bæjarblaðs- ins eru 1919 og 2774 og utaná- skrift blaðsins er Pósthólf 106 - 300 Akranes. Akumesingar, munið að Bæjar- blaðið er eina fréttablaðið á Akra- nesi sem kemur reglulega út, tvis- var í mánuði. Auglýsing í Bæjar- blaðinu bregst ekki. smiðjunnar. Staðsetningu þessa um var Ferju II lagt utan á Akra- telja smábátaeigendur mjög borgarbryggju og hún þannig not- góða, staðurinn sé vel varinn fyrir uð sem flotbryggja fyrir smábáta. sterkum suð-austlægum vindum, Sú bráðábirgðalausn hefur leyst aðkoman mjög góð eftir að fyllt einhvern hluta vandamálsins. En hefur verið upp og aðstaða þessi Ferjan tekur bryggjupláss frá stór- þrengi ekki á neinn hátt rými um bátum auk þess sem erfitt hef- stærri báta. ur verið fyrir smábátaeigendur um , , aðdrætti, þar sem hvorki bílum né Lysa brefntarar yfir fullum vögnum er fært um 5orð ( Ferj. stuðnmgi við tillogu Sigurðar og una Menn hafa þv|- orðiö að |anda vonast þeir tH að fljótt verði hafist af|a vjð bátabryggjuna og ^g]a handa svo að aðstaðan geti venð síðan bátunum við Ferjuna eða tilbuin vorið 1983. viðlegufæri. Fjöldi smábáta er mjög mikill Það er því full þörf á aðstöðu hér á Skaga og fjölgar enn. Að- fyrir þessa báta, en auk þess sem staða fyrir þessa báta hefur verið að framan greinir þá eru margir mjög af skornum skammti og þessara báta nýlegir og mjög raunar til skammar í svo stórum verðmætir og eðlilegt því að eig- bæ sem Akranesi. Fyrir fjórum ár- endur vilji hafa þá í öruggri höfn. Ferja II vlð Akraborgarbryggju. Eina flotbryggjan fram til þessa. Bœjorblodid 23. apríl 1982 Verð kr. 9.00 Framkvæmdaáætlun 1982: Samjiykkt samhl jóða í bæjarstjórninni Einhugur um framkvæmdir sumarsins Framkvæmdaáætlun Akranes- kaupstaðar fyrir árið 1982 var samþykkt á fundi bæjarstjórnar sl. þriðjudag með 9 samhljóða at- kvaeðum. Helstu liðir í áætluninni eru gatnaframkvæmdir og holræsa- framkvæmcjir. Áætlað er að leggja varanlegt slitlag á götur og gang- stíga fyrir 3.815.000 krónur. Esju- braut frá Kalmansbraut að Þjóð- braut verður steypt. Þá verður Faxabraut frá hringtorgi að Jað- arsbraut steypt, jafnframt því sem vatns- og skolplagnir þar verða endumýjaðar. Háholt frá Vestur- götu að Heiðarbraut verður mal- bikað og gangstétt þar steypt. Sunnubrautin frá Akurgerði að Merkigerði verður einnig malbikuð og gangstétt steypt. Þá verður lögð gangstétt meðfram Kirkju- braut frá Skagabraut að Stillholti og einnig verður lagður olíumalar- borinn gangstígur meðfram Kal- mannsbraut frá Stillholti að gang- stíg að Esjuvelli. Framkvæmdir við malargötur eru áætlaðar fyrir kr. 3.049.000. Helstu framkvæmdir í þeim efnum er undirbygging fjögurra botnlanga við Garðabraut og undirbygging botnlanga við Vogabraut ásamt endumýjun á holræsalögnum í báðum þessum götum. Þá verður Dalbrautin margumrædda undir- byggð frá Esjubraut og út að Raf- veituhúsi auk þess sem holræsa- lögn verður endurnýjuð. I nýja miðbænum verður lögð 100 m löng gata meðfram nýbyggingu Skagavers hf. Þá verður lagt mal- arlag yfir eldri hluta Jörundarholts og lagður nýr botnlangi frá Jör- undarholti. Fyrir utan framangreindar hol- ræsaframkvæmdir, er áætlað að endumýja úthlaup í Kalmansvík út fyrir stórstraumsfjöruborð og hið sama verður gert við úthlaup niður undan Stillholti auk nýlagnar frá Smiðjuvöllum. Athyglisverðast við þesa fram- kvæmdaáætlun er að nú verður gert átak í gangstéttarmálum en framkvæmdir við gangstéttir hafa verið litlar undanfarin ár og hefur þar eflaust ráðið mestu um, að hitaveitulagnir áttu þá eftir að komast í jörð. Þá er athyglisvert að bæjaryfirvöld skuli nú loksins taka upp á því að leggja skolplagnir í fjörum út fyrir stórstraumsfjöru- borð, en því hefur ekki verið að heilsa hér áður, og mætti gera þar mun meira átak en áætað er. Nú svo er alltaf ánægjulegt að götur skuli vera lagðar bundnu slitlagi, þó svo að lítið sé um slíkt nú. í þeim efnum er malbik nú að ryðja sér til rúms hér á Skaga, en í fyrra var fyrsta gatan hér malbikuð, Faxabrautin frá Akraborgar- bryggju að Akursbraut. Hingað til hafa götur ýmist verið steyptar eða bomar olíumöl, en olíumöl hefur ekki reynst alltof vel hér í bæ. Á bæjarstjómarfundinum á þriðjudag gat Magnús Oddsson, bæjarstjóri þess að malbik á Há- holtsbútinn, sem lagt verður á í sumar, sé um 200 þúsund krónum ódýrara en steypa. Malbikið er framleitt í Reykjavík, en flutt hing- að á bílum með Akraborg og að sögn bæjarstjóra gafst það mjög vel, en sem kunnugt er þarf malbik að vera heitt þegar það er lagt. En sem sagt framkvæmdaáætl- unin var samþykkt með atkvæð- um allra bæjarfulltrúa og slíkt ger- ist ekki á hverjum degi. Helgi Ingólfsson forseti Kiwanisklúbbsins Þyrils afhendir Baldri Gísla- syni formanni Björgunarsv. Hjálpin peningagjöfina. Góð gjöf Kiwanismanna til björgunarsveitarinnar Kiwanisklúbburinn Þyrill afhenti nýlega Björgunarsveitinni Hjálpin að gjöf kr. 10.000 tiíkaupa á fjarskiptabúnaði fyrir sveitina. Björgun- arsveitin Hjálpin hefur að undanförnu unnið að endurnýjun á fjar- skiptabúnaði sínum og hefur hún leitað af þeim sökum til fyrirtækja og félagasamtaka um fjárstuðning til framkvæmdar þessarar. Auk endurnýjunarinnar er hugmyndin að kaupa ný fjarskiptatæki sem myndu verða notuð í bifreið sveitarinnar. Björgunarsveitin Hjálpin vill færa öllum þeim sem lagt hafa málefni þeirra lið til þessara framkvæmda með fjárframlögum bestu þakkir, en alls hafa í dag safnast um 40.000 kr. —

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.