Bæjarblaðið - 25.10.1984, Blaðsíða 1
17. tbl. — 6. árg. — 25. október 1984
Fréttablað Akurnesinga — Óháð pólitískum flokkadrætti
Uppboðinu á Óskari
Magnússyni frestað
Reynt að tryggja áframhaldandi útgerð skipsins héðan
Uppboöinu sem vera átti á
togaranum Óskari Magnús-
syni í dag hefur nú verið
frestað. Vegna prentaraverk-
fallsins hefur Lögbirtingablað-
ið ekki komið út um nokkurn
tíma og því hefur bæjarfógeti
ekki getað auglýst uppboð
þetta eins og lög gera ráð fyrir.
Þrátt fyrir þessa frestun þá
vofir uppboðið senn yfir og
undanfarna daga hafa staðið
yfir viðræður bæjarstjóra við
ýmsa aðila í þeim tilgangi að
koma í veg fyrir að skipið verði
selt úr bænum. Þá hefur
bæjarstjóri haldið fundi með
stjórn Krossvíkur hf. að
undanförnu og eftir því sem
Bæjarblaðið kemst næst þá
hafa þar verið ræddir mögu-
leikar á að Krossvík hf. taki við
rekstri togarans. Krossvík hf.
er, sem kunnugt er, í eigu
bæjarfélagsins og frystihús-
anna hér.
Bæjarstjórn ræddi þessi mál
á lokuðum fundi í fyrrakvöld og
er Bæjarblaðið spurðist fyrir
um þessi mál hjá bæjarstjóra
varðist hann allra frétta af því
að sinni en Ijóst er að fjölmörg
atriði spila inn í þetta mál og
þessa dagana er unnið hörð-
um höndum að því að finna
lausn á því með það að mark-
miði að þetta mikla atvinnu-
tæki verði gert út héðan áfram.
Síldarsöltunin hjá HB og Co:
Búið að salta í
2600 tunnur
Síldarsöltun hefur verið í fullum
gangi hjá Haraldi Böðvarssyni &
Co að undanförnu. Þegar Bæjar-
blaðið fór í prentun hafði verið
saltað þar í 2.600 tunnur af síld.
Tveir bátar hafa verið á síld-
veiðum með hringnót héðan
undanfarið. Skírnir hefur landað
hér 366 tonnum og er því búinn
með sinn kvóta en veiðir nú úr 350
tonna aukakvóta. Sigurborgin
landaði hér um síðustu helgi 33
tonnumafsíld. Báðirhafa bátarnir
verið að veiðum við Vestmanna-
eyjar en þegar Bæjarblaðið fór í
prentun var bræla á miðunum þar
og síldarflotinn í höfn í eyjum.
Allar líkur eru nú á að þriðji síld-
arbáturinn bætist við innan
skamms en það er Haraldur AK
10 og mun hann hafa tvo kvóta til
ráðstöfunnar eins og Skírnir og
Sigurborg.
Menn á öllum aldri hjálpast að
þegar síld berst að landi
— Mynd: hb.
Kökur og
körfubolti
Körfuboltafólk er nú komið á
fulla ferð og í gærkvöldi lék mfl.
karla við lið ÍS, æfingaleik hér á
Akranesi. Leiknum lauk með
naumum sigri ÍS 96-92. Verkföll
opinberra starfsmanna hafa sett
strik í fslandsmótið þar sem nokk-
ur íþróttahús er lokuð þeirra
vegna.
A morgun kl. 15 mun körfu-
boltafólk verða með kökubasar í
Skagaveri til fjáröflunar fyrir
starfsemina og að sögn þeirra
verða þar á boðstólnum gómsæt-
arkökurágóðu verði.
Rauða kross deild Akraness:
Gáfu sambýlinu
myndbandstæki
Deild Rauða krossins hér á
Akranesi afhenti fyrir skömmu
sambýli fjölfatlaðra við Vest-
urgötu, myndbandstæki að
gjöf. Tækið er af gerðinni JVC
og var það afhent með viðhöfn
ásambýlinu.
Myndbandstækið er án efa
vel þegið af íbúum sambýlis-
ins, en eins og kom fram í við-
tali við forstöðukonu sambyNs-
ins í ágúst sl., þá er sjónvarpið
ein helsta afþreying íbúanna
og eins og allir vita hefur ekki
farið mikið fyrir dagskrá þess
fjölmiðils undanfarið.
Mikil vanskil
er ástæðan fyrir auknum lántökum
Á bæjarstjórnafundi í fyrradag
skýrði bæjarstjóri frá því að lán-
tökur Akraneskaupstaðar á
þessu ári væru nú þegar komnar
um einni og hálfri milljón fram úr
fjárhagsáætlun, en lántökur
bæjarins nema nú 16,7 milljónum
króna.
Bæjarstjóri sagði ástæðuna
fyrir þessum auknu lántökum fyrst
og fremst þá að vanskil á út-
svörum og aðstöðugjöldum væru
mun meiri en gert hafði verið ráð
fyrir í fjárhagsáætlun, en vanskilin
næmu nú um 6 milljónum króna.
Togaraaflinn
í byrjun vikunnar komu þrír
togarar hér inn til löndunnar, en
það voru Skipaskagi, Haraldur
Böðvarsson og Krossvík. Afli
togaranna frá áramótum er nú
sem hér segir:
tonn
Haraldur Böðvarsson 4.110
Krossvík 2.530
Óskar Magnússon 2.750
Skipaskagi 2.480
Þetta er einungis sá afli er land-
að hefur verið hér heima en
Krossvíkin hefur þrisvar selt afla
sinn erlendis og voru það samtals
310 tonn, þannig að heildarafli
hennar er 2.840 tonn.
Ríkið vill byggja
Áfengis- og tóbaksverslun
ríkisins hefur nú hug á að byggja
yfir útsölu sína hér á Akranesi.
Fyrir skömmu barst bæjarstjórn
bréf frá ÁTVR með fyrirspurn um
lóð fyrir nýbyggingu. Bæjarstjórn
tók vel í erindið og benti á lóðir á
nýja miðbæjarsvæðinu.
Áfengisverslunin er sem kunn-
ugt er í leiguhúsnæði hér, en svo
er einnig um margar aðrar stofn-
anir á vegum ríkisins og vegna
þess hefur oft komið til tals að ríki
og bær taki sig saman og byggi
stjórnsýsluhús á miðbæjarsvæð-
inu nýja, sem hýstgæti skrifstofur
bæjarins, bæjarfógeta, lögreglu,
skattstofu og jafnvel áfengisút-
söluna.
Slökkviliðið 50 ára
útköll liðsins 6 á þessu ári
Slökkvilið Akraness er 50 ára
um þessar mundir og af því tilefni
hefur brunamálanefnd bæjarins
ákveðið að bjóða bæjarbúum að
skoða aðstöðu og búnað slökkvi-
liðsins. Ekki hefur enn verið
ákveðið hvenær það verður.
Útköll slökkviliðsins munu nú
vera orðin sex talsins á þessu ári
og lætur nærri að það sé svipað
og verið hefur á liðnum árum, en
sem betur fer eru brunar ekki
algengir hér á Skaga.
Flatahverfið
botnlaust
Eins og við skýrðum frá í
síðasta Bæjarblaði hafa að
undanförnu staðið yfir undir-
búningsmælingar fyrir nýtt
íbúðarhverfi á landssvæði
umhverfis Steinsstaði. Tals-
vert langt er síðan fyrst var
fjallað um skipulag þessa
landssvæðis og var t.d. rætt
um skipulagssamkeppni
þessa hverfis fljótlega eftir að
byrjað var að úthluta lóðum í
Jörundarholti.
í síðustu viku lágu svo fyrir
fyrstu mælingar á jarðvegi á
umræddu svæði og gefa þær
síður en svo tilefni til bjartsýni
um að lóðaúthlutun hefjist
þarna á næstunni.
Samkvæmt heimildum
Bæjarblaðsins er yfir 4 metra
djúpt niður á fast á um 60%
landssvæðisins og á stórum
hluta þess sem eftir er munu
vera yfir 3 metrar niður á fast.
Bæjarráð hefur ekki enn
fjallað um hvað gera skuli
vegna þessara breyttu að-
stæðna, en líklegt verður þó
að telja að horfið verði frá
framkvæmdum þarna að sinni
og koma þá helst til greina
landssvæði við norðanverðan
Akranesveg, gegnt innan-
verðu iðnaðarhverfi eða þá
landssvæði úr landi Fögru-
brekku upp með Grundahverfi
og Jörundarholti.