Fréttablaðið - 10.08.2019, Page 4
Þrjú í fréttum
Íslensk tunga,
laxagengd og
verðlaunahafi
Richard Simcott
tungumála sérfræðingur
kann yfir fimmtíu
tungumál. „Ég
lærði íslensku á
námskeiði við
Háskóla Íslands
fyrir sex árum
en hef ekki talað
hana lengi og því
þurfti ég að rifja tungumálið upp,“
segir Simcott sem tekur fram að
hann skilji íslensku betur en hann
tali hana.
Jim Ratcliffe
auðmaður og jarðaeigandi á
Norðausturlandi
segist vilja efla
laxastofna á
svæðinu. „Nátt-
úruvernd hefur
alltaf verið og
verður áfram eini
tilgangur aðkomu
minnar á Norðausturlandi Íslands,“
segir Ratcliffe sem á 40 til 50 jarðir í
landshlutanum.
Toni Morrison
rithöfundur
lést síðastliðinn
mánudag, 88
ára gömul. Hún
var fyrsta konan
af afrískum
uppruna til að
hljóta bókmennta-
verðlaun Nóbels. Þekktasta verk
Morrison er Beloved, eða Ástkær,
sem hún hlaut Pulitzer-verðlaunin
fyrir. Hún sendi frá sér sína fyrstu
bók 39 ára.
TÖLUR VIKUNNAR 04.08.2019 TIL 10.08.2019
50.000
áhorfendur eru væntanlegir á
tónleika Eds Sheeran um helgina.
17%
fækkun varð á ferðamönnum í júlí
miðað við sama mánuð í fyrra.
500.000.000
króna gætu tapast í norðlenskri ferðaþjónustu vegna gjald
þrots ferðaskrifstofunnar Super Break.
10%
veiði er í sumum laxveiðiám
miðað við sama tíma í fyrra.
10%
alls útflutnings frá Íslandi
fara til Bretlands.
JEEP® GRAND CHEROKEE
FÁANLEGUR MEÐ 33” EÐA 35” BREYTINGU
®
ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF
• 3.0L V6 DÍSEL
• 250HÖ / 570 NM TOG
• 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING
• LOFTPÚÐAFJÖÐRUN
• LÆSING Í AFTURDRIFI (TRAILHAWK OG OVERLAND)
jeep.is
JEEP® GRAND CHEROKEE KOSTAR FRÁ 9.990.000 KR.
UMBOÐSAÐILI JEEP® Á ÍSLANDI • ÍSLENSK-BANDARÍSKA • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
Rangt var farið með nafn
viðmælanda í frétt um
skipulagsmál á Akureyri í blaðinu
í gær. Hann heitir Hjörleifur
Hallgríms Herbertsson en ekki
Hjörleifur Hallgrímsson.
LEIÐRÉTTING
SVEITARSTJÓRNIR Stefnt er að því í
drögum reglugerðar Sigurðar Inga
Jóhannssonar, ráðherra sveitar-
stjórnarmála, að lögfest verði að
lágmarksstærð sveitarfélaga verði
þúsund íbúar. Um helmingur
sveitarfélaga á Íslandi er með færri
en eitt þúsund íbúa og því munu
þessar breytingar hafa áhrif á stór-
an hluta sveitarfélaga hér á landi.
72 sveitarfélög eru nú á landinu
og hefur fækkað hægt en örugg-
lega síðustu áratugi en um miðja
síðustu öld voru hér vel á annað
hundrað sveitarfélaga. Sigurður
Ingi hefur boðað breytingar í þá
átt að gera sveitarfélögin öflugri og
betur í stakk búin til að takast á við
þau verkefni sem þeim eru falin í
nútímaþjóðfélagi
Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri
í Hveragerðisbæ og formaður sam-
bands sveitarfélaga, sat í nefnd á
vegum samgöngu- og sveitarstjórn-
arráðherra sem skilaði til ráðherra
tillögum sínum sem kynntar voru á
ríkisstjórnarfundi á fimmtudaginn.
Hún segir einnig mikilvægt að sveit-
arfélögin geti sinnt þeim skyldum
sem sveitarfélögunum ber.
„Þessar tillögur verða kynntar
í samráðsgátt stjórnvalda á næstu
dögum. Í tillögunum er gert ráð
fyrir að í þrepum verði settur lág-
marksfjöldi íbúa í sveitarfélögum.
Þannig er sveitarfélögum veitt ráð-
rúm til að kanna möguleika sína.
Aðal atriðið er að sveitarfélög hér
á landi verði öll sterk og gert kleift
að sinna sínum verkefnum fyrir
íbúa sína,“ segir Aldís. „Fjölmörg
sveitarfélög eru fámenn og mikil-
væg verkefni unnin með öðrum
sveitarfélögum. Þegar svo er komið
eru ákvarðanir kannski komnar
nokkuð langt frá íbúum sveitar-
félaganna.“
Mikil gerjun hefur átt sér stað á
síðustu árum. Til að mynda kannaði
Akureyrarkaupstaður möguleika
annarra sveitarfélaga í Eyjafirði til
sameiningar ekki alls fyrir löngu
og bæði hafa orðið sameiningar á
Reykjanesi og á Austurlandi. Einn-
ig eru uppi hugmyndir um samein-
ingar í Þingeyjarsveit.
Aldís bendir á að jöfnunarsjóður
sveitarfélaga verði nýttur til góða
fyrir þau sveitarfélög sem sam-
einast. „Til þess að sameiningartil-
raunir takist með ágætum munum
við í þessum tillögum nýta jöfnun-
arsjóð sveitarfélaga og styrkja veg-
lega þau sveitarfélög sem samein-
ast til að standa straum af ýmsum
kostnaði. Það er mikilvægt að vel
takist til í þetta skiptið og þessar
tillögur miða að því að sveitarfélög
og íbúar þeirra njóti góðs af mögu-
legum sameiningum.“
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins var málinu frestað á fundi
ríkisstjórnar síðastliðinn fimmtu-
dag og ekki tekin ákvörðun um að
birta þetta strax. Vildu menn setjast
aðeins yfir málið og skoða það áður
en það yrði birt almenningi.
sveinn@frettabladid.is
Lágmarksstærð sveitarfélaga
verði lögfest við þúsund íbúa
Nýjar tillögur formanns Framsóknarflokksins um eflingu sveitarstjórnarstigsins fela í sér að lágmarks-
stærð sveitarfélaga verði sett á laggirnar, verður miðað við þúsund íbúa.. Formaður Sambands sveitar-
félaga segir mikilvægt að sveitarfélögum verði gert kleift að sinna lögbundnum hlutverkum sínum.
Áður hugað að sambærilegri lagasetningu
Árni Magnússon, sem var félagsmálaráðherra árin 20032006, var sá
ráðherra sem hvað mest hefur haft sig í frammi á þessari öld í sam
einingu sveitarfélaga. Óskaði hann þess helst að frjálsar sameiningar
myndu ganga á sem flestum stöðum. Yrði það ekki raunin sagði hann
eðlilegt að hugað yrði að lagasetningu um lágmarksstærð sveitar
félaga til að knýja á um sameiningar. Ekkert varð úr þeirri lagasetningu
en nokkurt vatn hefur runnið til sjávar síðan þá og hafa nokkur
sveitarfélög sameinast.
Sandgerði og Garður sameinuðust í eitt sveitarfélag í fyrra í kjölfar íbúakosninga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
0
-E
0
1
8
2
3
9
0
-D
E
D
C
2
3
9
0
-D
D
A
0
2
3
9
0
-D
C
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K