Fréttablaðið - 10.08.2019, Side 30
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Hafrún Ósk segir að jólagjöfin hafi komið henni stórkost-lega á óvart. Hún hafi verið
mikill aðdáandi Eds Sheeran og
tónleikarnir voru fyrirhugaðir
18. maí 2018. „Ég gat varla beðið.
Raunar er ég óendanlega mikill
Eurovision-aðdáandi og var dauð-
hrædd um að þetta myndi skarast
en svo reyndist ekki vera. Hafði
hugsað mér að fara til Portúgal
og sjá keppnina með eigin augum
en fékk ekki miða sem betur fer.
Ed Sheeran tónleikarnir voru
algjörlega ógleymanleg lífsreynsla
og Eurovision-lögin í fyrra urðu
að láta í minni pokann þar sem
Ed var alltaf á fóninum hjá mér,“
segir Hafrún. „Mig hafði lengi
dreymt um að sjá hann á sviði
þannig að ósk mín var að rætast.
Með gjöfinni fylgdi mynd af mér
og Ed sem eiginmaðurinn hafði
haft fyrir að fótósjoppa. Sagan er
reyndar hálfsögð því ég gleymdi
að opna þennan pakka og var farin
að taka til eftir pakkaflóðið með
sópinn í hendinni þegar gjöfin
uppgötvaðist. Ég fór bara að gráta
með kústinn upp við öxlina,“ segir
Hafrún og skellihlær þegar hún
rifjar þetta upp.
Með stjörnuna í návígi
„Það eru ekki til nein orð sem
lýsa því nógu vel hversu geggjaðir
þessir tónleikar voru, fóru langt
fram úr væntingum. Þeir fóru fram
í stórum garði, Phoenix Park, í
Dyflinni. Við mættum snemma,
upp úr eitt eftir hádegi en svæðið
var ekki opnað fyrr en klukkan
hálf fimm. Við settumst bara niður
og höfðum það notalegt í rosa-
lega góðu veðri,“ útskýrir hún.
„Reyndar vissum við ekki þá að
þeir sem myndu mæta fyrstir á
svæðið fengju besta staðinn fyrir
framan sviðið. Fimm hundruð
manns komust þangað og þar á
meðal við.“
Hafrún segir að eiginmann-
inum, Birni Albertssyni, hafi ekki
litist á blikuna fremst við sviðið.
Vildi helst ekki taka pláss frá
öllum unglingsstelpunum. „En við
vorum þarna allt til enda. Fórum
hvorki á salerni né að kaupa bjór.
Satt að segja var hver einasta
mínúta dásamleg. Á tónleikunum
voru um 60 þúsund manns. Það
voru þrennir tónleikar í Dyflinni
og sami fjöldi á þeim öllum,“ upp-
lýsir Hafrún.
Allir sungu með
Þeir sem komu fram með Ed á tón-
leikunum voru hin vinsæla Anne-
Marie, Jamie Lawson og Beoga.
Elín
Albertsdóttir
elin@frettabladid.is
Áhorfendur
geta átt von á
stórkostlegum
tónleikum að
því er Haf-
rún Ósk segir
og hún hefur
reynsluna.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Á tónleikum
Eds Sheeran í
Dyflinni. Þar
voru sextíu
þúsund áhorf-
endur.
Miðarnir sem Hafrún fékk í óvænta jólagjöf frá eiginmanninum.
Sviðið var glæsilegt hjá Ed Sheeran.
Framhald af forsíðu ➛
Hafrún segir að upphitunin hafi
því einnig verið stórkostleg. „Það
var geggjað að sjá Anne-Marie.
Hún er stórkostleg söngkona.
Flutti meðal annars hið vinsæla
lag Rockabye. Um leið og tón-
leikarnir hófust með upphitun fór
fjörið í gang og ótrúleg stemming
strax meðal áhorfenda. Allt gekk
ótrúlega vel fyrir sig. Ed sjálfur var
alveg á réttum tíma og ég minn-
ist þess ekki að hann hafi tekið
nokkra pásu. Eiginlega trylltist allt
þegar hann mætti. Það er svo stór-
kostlegt að sjá manninn einan á
sviðinu allan þennan tíma og hann
hélt áhorfendum heilluðum allan
tímann. Ég held að hver einasti
maður á svæðinu hafi sungið með
honum, allir kunnu textana og
lögin. Ég fæ enn gæsahúð yfir því
hvað þetta var æðislegt og hlakka
rosalega til að sjá hann aftur,“
segir Hafrún og er greinilega orðin
mjög spennt. „Ég er samt búin að
lofa manninum mínum að standa
ekki upp við sviðið að þessu sinni,“
bætir hún við í gamansömum tón.
Hafrún segist hafa verið með þeim
fyrstu sem keyptu miða á tón-
leikana á Laugardalsvelli. „Ég hefði
getað fengið miða í stúkunni en
langaði frekar að geta hreyft mig
og labbað um.“
Magnaður á sviði
Ed Sheeran hefur lengi verið í
miklu uppáhaldi hjá Hafrúnu
og hún segir að það hafi fyrst
og fremst verið lögin hans sem
heilluðu. „Ég þekki öll lögin og
finnst þau æðisleg. Sum lög sem
maður tekur ekkert sérstaklega
eftir á Spotify verða mögnuð þegar
hann flytur þau á sviðinu. Hann
skiptir um gítar eftir hvert lag og
það er mjög gaman að fylgjast með
honum á sviðinu.“
Hafrún hafði ekki áður farið
á tónleika erlendis en hún hefur
séð nokkrar þekktar hljómsveitar
hér á landi, meðal annarra Duran
Duran. „Mig hefði langað til að sjá
Adele en hún hefur ekki verið með
tónleika lengi. Núna hugsa ég bara
um Ed Sheeran tónleikana í kvöld.
Þeir sem eru með miða eiga eftir
að fá stórkostlega og ógleyman-
lega upplifun. Maðurinn minn var
ekkert spenntur fyrir Ed áður en
við fórum til Dyflinnar en núna
hlakkar hann líka mikið til. Þetta
er rosalegt „show“ og algjörlega
einstakt,“ segir Hafrún sem hefur
alltaf verið mikill tónlistarunn-
andi.
Algjör Eurovision-nörd
„Ég hef náttúrlega alltaf verið
rosalegur Eurovision-nörd og er
ákveðin í að fara á keppnina áður
en hún verður haldin á Íslandi.
Ég er þess fullviss að það verður
einhvern tíma,“ segir hún. „Ég hef
fylgst með Eurovision síðan ég var
barn og ætlaði einu sinni að giftast
Johnny Logan,“ segir hún hlæjandi
og þakkar fyrir að úr því hafi ekki
orðið. Hafrún er 47 ára og segir
að hún hafi alls ekki verið elst á
Ed Sheeran. „Fólk á öllum aldri
er hrifið af lögunum hans. Það
er einmitt skemmtilegt hvernig
hann höfðar til breiðs aldurshóps.
Við erum að fara nokkur saman
og ætlum að helga tónleikunum
daginn, mæta snemma og upplifa.
Ég ætla að njóta alla leið,“ segir
hún.
Æðislegt sumar
Hafrún sem starfar í tölvudeild
Heklu og Björn, maður hennar,
sem er matreiðslumaður, hafa
verið í sumarfríi sem endar um
þessa helgi. Þau hafa notið sum-
arsins og meðal annars siglt um
Suður-Frakkland. „Það var mjög
afslappað frí auk þess sem við
sáum Frakkland frá nýju sjónar-
horni, vínekrur, kastala og litla,
fallega bæi. Þetta er búið að vera
æðislegt sumar og hápunkturinn
verður núna um helgina.“
Evonia er hlaðin bæti-
efnum sem næra hárið
og gera það gróskumeira.
Myndirnar hér til hliðar
sýna hversu góðum árangri
er hægt að ná með Evonia.
Evonia
www.birkiaska.isFyrir Eftir
Evonia eykur
hárvöxt með því
að veita hárrótinni
næringu og styrk.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
0
-E
5
0
8
2
3
9
0
-E
3
C
C
2
3
9
0
-E
2
9
0
2
3
9
0
-E
1
5
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K