Fréttablaðið


Fréttablaðið - 10.08.2019, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 10.08.2019, Qupperneq 30
Fólk er kynningarblað sem býður aug- lýsendum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@ frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768 Útgefandi: Torg ehf Ábyrgðarmaður: Kristín Þorsteinsdóttir Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@ frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653, Hafrún Ósk segir að jólagjöfin hafi komið henni stórkost-lega á óvart. Hún hafi verið mikill aðdáandi Eds Sheeran og tónleikarnir voru fyrirhugaðir 18. maí 2018. „Ég gat varla beðið. Raunar er ég óendanlega mikill Eurovision-aðdáandi og var dauð- hrædd um að þetta myndi skarast en svo reyndist ekki vera. Hafði hugsað mér að fara til Portúgal og sjá keppnina með eigin augum en fékk ekki miða sem betur fer. Ed Sheeran tónleikarnir voru algjörlega ógleymanleg lífsreynsla og Eurovision-lögin í fyrra urðu að láta í minni pokann þar sem Ed var alltaf á fóninum hjá mér,“ segir Hafrún. „Mig hafði lengi dreymt um að sjá hann á sviði þannig að ósk mín var að rætast. Með gjöfinni fylgdi mynd af mér og Ed sem eiginmaðurinn hafði haft fyrir að fótósjoppa. Sagan er reyndar hálfsögð því ég gleymdi að opna þennan pakka og var farin að taka til eftir pakkaflóðið með sópinn í hendinni þegar gjöfin uppgötvaðist. Ég fór bara að gráta með kústinn upp við öxlina,“ segir Hafrún og skellihlær þegar hún rifjar þetta upp. Með stjörnuna í návígi „Það eru ekki til nein orð sem lýsa því nógu vel hversu geggjaðir þessir tónleikar voru, fóru langt fram úr væntingum. Þeir fóru fram í stórum garði, Phoenix Park, í Dyflinni. Við mættum snemma, upp úr eitt eftir hádegi en svæðið var ekki opnað fyrr en klukkan hálf fimm. Við settumst bara niður og höfðum það notalegt í rosa- lega góðu veðri,“ útskýrir hún. „Reyndar vissum við ekki þá að þeir sem myndu mæta fyrstir á svæðið fengju besta staðinn fyrir framan sviðið. Fimm hundruð manns komust þangað og þar á meðal við.“ Hafrún segir að eiginmann- inum, Birni Albertssyni, hafi ekki litist á blikuna fremst við sviðið. Vildi helst ekki taka pláss frá öllum unglingsstelpunum. „En við vorum þarna allt til enda. Fórum hvorki á salerni né að kaupa bjór. Satt að segja var hver einasta mínúta dásamleg. Á tónleikunum voru um 60 þúsund manns. Það voru þrennir tónleikar í Dyflinni og sami fjöldi á þeim öllum,“ upp- lýsir Hafrún. Allir sungu með Þeir sem komu fram með Ed á tón- leikunum voru hin vinsæla Anne- Marie, Jamie Lawson og Beoga. Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Áhorfendur geta átt von á stórkostlegum tónleikum að því er Haf- rún Ósk segir og hún hefur reynsluna. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR Á tónleikum Eds Sheeran í Dyflinni. Þar voru sextíu þúsund áhorf- endur. Miðarnir sem Hafrún fékk í óvænta jólagjöf frá eiginmanninum. Sviðið var glæsilegt hjá Ed Sheeran. Framhald af forsíðu ➛ Hafrún segir að upphitunin hafi því einnig verið stórkostleg. „Það var geggjað að sjá Anne-Marie. Hún er stórkostleg söngkona. Flutti meðal annars hið vinsæla lag Rockabye. Um leið og tón- leikarnir hófust með upphitun fór fjörið í gang og ótrúleg stemming strax meðal áhorfenda. Allt gekk ótrúlega vel fyrir sig. Ed sjálfur var alveg á réttum tíma og ég minn- ist þess ekki að hann hafi tekið nokkra pásu. Eiginlega trylltist allt þegar hann mætti. Það er svo stór- kostlegt að sjá manninn einan á sviðinu allan þennan tíma og hann hélt áhorfendum heilluðum allan tímann. Ég held að hver einasti maður á svæðinu hafi sungið með honum, allir kunnu textana og lögin. Ég fæ enn gæsahúð yfir því hvað þetta var æðislegt og hlakka rosalega til að sjá hann aftur,“ segir Hafrún og er greinilega orðin mjög spennt. „Ég er samt búin að lofa manninum mínum að standa ekki upp við sviðið að þessu sinni,“ bætir hún við í gamansömum tón. Hafrún segist hafa verið með þeim fyrstu sem keyptu miða á tón- leikana á Laugardalsvelli. „Ég hefði getað fengið miða í stúkunni en langaði frekar að geta hreyft mig og labbað um.“ Magnaður á sviði Ed Sheeran hefur lengi verið í miklu uppáhaldi hjá Hafrúnu og hún segir að það hafi fyrst og fremst verið lögin hans sem heilluðu. „Ég þekki öll lögin og finnst þau æðisleg. Sum lög sem maður tekur ekkert sérstaklega eftir á Spotify verða mögnuð þegar hann flytur þau á sviðinu. Hann skiptir um gítar eftir hvert lag og það er mjög gaman að fylgjast með honum á sviðinu.“ Hafrún hafði ekki áður farið á tónleika erlendis en hún hefur séð nokkrar þekktar hljómsveitar hér á landi, meðal annarra Duran Duran. „Mig hefði langað til að sjá Adele en hún hefur ekki verið með tónleika lengi. Núna hugsa ég bara um Ed Sheeran tónleikana í kvöld. Þeir sem eru með miða eiga eftir að fá stórkostlega og ógleyman- lega upplifun. Maðurinn minn var ekkert spenntur fyrir Ed áður en við fórum til Dyflinnar en núna hlakkar hann líka mikið til. Þetta er rosalegt „show“ og algjörlega einstakt,“ segir Hafrún sem hefur alltaf verið mikill tónlistarunn- andi. Algjör Eurovision-nörd „Ég hef náttúrlega alltaf verið rosalegur Eurovision-nörd og er ákveðin í að fara á keppnina áður en hún verður haldin á Íslandi. Ég er þess fullviss að það verður einhvern tíma,“ segir hún. „Ég hef fylgst með Eurovision síðan ég var barn og ætlaði einu sinni að giftast Johnny Logan,“ segir hún hlæjandi og þakkar fyrir að úr því hafi ekki orðið. Hafrún er 47 ára og segir að hún hafi alls ekki verið elst á Ed Sheeran. „Fólk á öllum aldri er hrifið af lögunum hans. Það er einmitt skemmtilegt hvernig hann höfðar til breiðs aldurshóps. Við erum að fara nokkur saman og ætlum að helga tónleikunum daginn, mæta snemma og upplifa. Ég ætla að njóta alla leið,“ segir hún. Æðislegt sumar Hafrún sem starfar í tölvudeild Heklu og Björn, maður hennar, sem er matreiðslumaður, hafa verið í sumarfríi sem endar um þessa helgi. Þau hafa notið sum- arsins og meðal annars siglt um Suður-Frakkland. „Það var mjög afslappað frí auk þess sem við sáum Frakkland frá nýju sjónar- horni, vínekrur, kastala og litla, fallega bæi. Þetta er búið að vera æðislegt sumar og hápunkturinn verður núna um helgina.“ Evonia er hlaðin bæti- efnum sem næra hárið og gera það gróskumeira. Myndirnar hér til hliðar sýna hversu góðum árangri er hægt að ná með Evonia. Evonia www.birkiaska.isFyrir Eftir Evonia eykur hárvöxt með því að veita hárrótinni næringu og styrk. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 0 -E 5 0 8 2 3 9 0 -E 3 C C 2 3 9 0 -E 2 9 0 2 3 9 0 -E 1 5 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 9 6 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.