Fréttablaðið - 10.08.2019, Page 31

Fréttablaðið - 10.08.2019, Page 31
Þegar við erum komin á þann stað að vera í nægilegu jafn- vægi til að taka á mat- aræðinu af krafti, það er að segja, ef við ætlum að léttast, þá er Fat Burner™ eitt af því sem getur hjálpað til. Það inni- heldur kólín sem getur stuðlað að eðlilegu niðurbroti á fitu og stutt við þyngdartap. Hrönn Hjálmarsdóttir heilsumarkþjálfi Flestar jurtir, rætur og fræ hafa verið notaðar í lækninga-skyni í aldaraðir og jafnvel árþúsundir. Vestræn samfélög hafa á síðastliðnum áratugum kannski ekki verið nógu dugleg að leita í þennan „lyfjabrunn náttúrunnar“ þar sem kröfur um faglega þekk- ingu og viðurkenndar rannsóknir hafa aukist mikið. Sem betur fer hefur bæði þekkingu og fræðslu fleytt fram og er nýting okkar nútímafólks á þessum efnum alltaf að aukast og notkun að verða almennari. Innihaldsefnin í Fat Burner™ eru sérvalin með tilliti til meltingar og örvunar á líkamsstarfsemi, sér- staklega fyrir þá sem vilja léttast á náttúrulegan hátt. Eins og með öll önnur þyngdarstjórnunarefni, þá dugir ekki að taka þau inn og viðhalda fyrri venjum því að sjálf- sögðu er grundvallaratriði að laga mataræðið og stunda heilbrigðan lífsstíl. Það getur þó verið gott að fá örlitla hjálp, til dæmis við að draga úr bólgum, losna við bjúg, örva líkamsstarfsemi og niðurbrot fitu. Örvandi og hreinsandi innihaldsefni l Yerba mate: Trjátegund sem vex víða í Suður-Ameríku og hafa greinar og stilkar yfirleitt verið notuð í te í hinum ýmsu útgáfum. Þar er það drukkið bæði heitt og kalt en þar sem það innheldur koffín er það örvandi. Yerba mate er afar ríkt af öðrum innihaldsefnum en það innheldur 196 efnasam- bönd og þar af eru 144 þeirra einnig að finna í grænu tei. Þar á meðal eru öflugir andoxarar, pólífenólar, vítamín og steinefni þannig að það getur haft góð áhrif á ónæmiskerfið, aukið ein- beitingu og orku ásamt því að geta stutt við þyngdartap sam- hliða heilbrigðu mataræði. l Nigella-fræ: Hafa verið notuð til heilsubótar allt frá tímum faraóa í Egyptalandi. Þau eru oft notuð til matargerðar en þau innihalda yfir 100 efnasam- bönd sem geta nýst okkur til heilsubótar og þar á meðal er til dæmis bætt lifrarstarfsemi og lækkun á blóðsykri. Engu að síður þarf víðtækari rannsóknir til að staðfesta það. l Grænt te: Ýmsar verkanir hafa verið tengdar grænu tei og má til að mynda nefna jákvæð áhrif á blóðfitu (lækkun þríglyseríða og kólesteróls), hressandi og örvandi ásamt því að hjálpa fólki í yfirþyngd að léttast. Betri rannsókna er þó þörf til að staðfesta þetta. l Mjólkurþistill: Er fyrst og fremst þekktur fyrir að vera sérlega uppbyggjandi og nær- andi fyrir lifrina og getur því stuðlað að bættri lifrarstarf- semi. Í gegnum tíðina hefur þetta einnig verið notað gegn gallblöðruvandamálum, til að stuðla að framleiðslu brjósta- mjólkur og vernda lifrina gegn snákaeitri, alkóhóli og ýmsum öðrum eiturefnum. l Kólín: Kólín er nauðsyn- legt næringarefni sem er oft flokkað með B-vítamínunum vegna eiginleika þess og áhrifa á líkamsstarfsemina. Það er lífrænt, vatnsleysanlegt efna- samband sem við framleiðum í litlum mæli og því þurfum við einnig að fá það úr fæðunni. Kólín er nauðsynlegt til að minnka kólesteról í lifrinni og því getur skortur á kólíni valdið fitu- og kólesteróluppsöfnun í lifur. Heilbrigður lífsstíll Þegar líf okkar er ekki í jafnvægi, verður mataræðið oft verra og allt hefur þetta áhrif á heilsu okkar og líðan. Að sofa nóg, borða hreina fæðu, stunda hreyfingu, góður félagsskapur og tómstundaiðja er eitthvað sem er nauðsynlegt til að okkur líði sem allra best. Ýmis- legt getur valdið því að við eigum erfitt með að ná jafnvægi og má þá til dæmis nefna streitu sem getur verið afleiðing fjárhagsáhyggja, of mikillar vinnu, vandamála í sam- skiptum o.fl. Gott er að horfa vel inn á við og finna út hvað það er sem við viljum breyta eða þarf að vinna í til að okkur líði betur. Þetta getur verið afar erfitt fyrir suma en alltaf er best að takast á við rót vandans til að ná sem bestum árangri. Þegar við erum komin á þann stað að vera í nægilegu jafn- vægi til að taka á mataræðinu af krafti, það er að segja, ef við ætlum að léttast, þá er Fat Burner™ eitt af því sem getur hjálpað til. Að léttast á heilbrigðan hátt Fat Burner™ inniheldur sérvalin innihaldsefni sem styðja við heilbrigða og skilvirka fitu-brennslu. Jurtir, rætur og fræ ásamt kólíni sem getur stuðlað að eðlilegu niðurbroti á fitu. Innihaldsefnin í Fat Burner™ eru sérvalin með tilliti til meltingar og örvunar á líkamsstarfsemi, sérstaklega fyrir þá sem vilja léttast á náttúrulegan hátt. Hrönn Hjálmarsdóttir, heilsumark- þjálfi. n Stuðlað að heilbrigðri hjartastarfsemi og bætir ónæmiskerfið n Stutt heila-, húð-, lið-, vöðva- og augnheilbrigði n Verndað frumur gegn oxunarskemmdum Astaxanthin Eitt öflugasta andoxunarefni náttúrunnar Astaxanthin frá Algalíf er 100% náttúrulegt hágæða bætiefni, framleitt á sjálfbæran hátt við kjöraðstæður sem tryggja að innhaldið skili sér til neytenda. Astaxanthin er unnið úr örþörungum. Þetta öfluga andoxunarefni getur dregið úr bólgum og verndað gegn sterkum útfjólubláum geislum sólar en aðrir góðir kostir eru m.a. að það getur: Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 1 0 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 9 6 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 9 0 -D 6 3 8 2 3 9 0 -D 4 F C 2 3 9 0 -D 3 C 0 2 3 9 0 -D 2 8 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 9 6 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.