Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 32
Allir vagnarnir mínir á Pride frá því árið 2010 hafa verið hugsaðir fyrir börn. Sandra Guðrún Guðmundsdóttir sandragudrun@frettabladid.is Dragdrottningin Starína, sem leikin er af Ólafi Helga Ólafs­syni, verður með sögustund í Bókasafni Kópavogs í dag þar sem hún les bókina Fjölskyldan mín fyrir börn. „Ég hef alltaf verið frekar barnvæn dragdrottning. Mig hefur alltaf langað að gera meira fyrir krakka sem Starína og fékk þessa hugmynd að hafa samband við bókasöfnin og bjóða upp á lestur,“ segir Ólafur Helgi. Bókasafn Kópavogs hafði svo samband til baka og úr varð þessi sögustund. „Ég hef heyrt að þetta sé vinsælt í Bandaríkjunum. Mér skilst að það sé hópur af drag­ drottningum sem vinna við það að lesa fyrir börn á bókasöfnum, í dragi. Þau reyna að lesa hinsegin­ vænar bækur, ef svo má að orði komast en mér skilst samt að þau lesi líka bara alls konar bækur.“ Ólafur Helgi segist halda að þetta verði í fyrsta sinn sem dragdrottn­ ing les fyrir börn á bókasöfnum á Íslandi en hann vonar þó að þetta verði ekki í síðasta skiptið. „Þetta er eitthvað sem ég er mjög spenntur fyrir,“ segir hann. „Bókin Fjölskyldan mín er eftir Ástu Rún Valgerðardóttur og Lára Garðarsdóttir myndskreytti. Hún fjallar um mismunandi fjölskyldu­ mynstur. Friðjón á tvær mömmur, hann er í leikskóla og þar kemur í ljós að krakkarnir eiga mis­ munandi fjölskyldur. Sumir eiga tvær mömmur, sumir eiga mömmu og pabba, sumir eiga mömmu, pabba og stjúpforeldra og sum börn eru ættleidd frá útlöndum en eiga mömmu og pabba frá Íslandi. Þannig að ég er að lesa fyrir börnin um fjölbreytileika. Þetta er auð­ lesin og þægileg bók sem ég hef heyrt að krakkar elski.“ Ólafur segir að þó þetta sé í fyrsta sinn sem Starína lesi fyrir börnin á bókasöfnum sé þetta ekki í fyrsta sinn sem hann komi fram fyrir börn. „Allir vagnarnir mínir á Pride frá því árið 2010 hafa verið hugsaðir fyrir börn. Ég var með Disney­þema á vagninum mínum árið 2010 og eftir það ákvað ég að framvegis yrðu vagnarnir mínir spennandi fyrir börn.“ Ólafur segist líka hafa gaman af að koma fram fyrir ungt fólk en hann kemur einnig fram á öðrum viðburði á Hinsegin dögum sem er skipulagður af jafningjafræðslunni í Hafnar­ firði. Viðburðurinn kallast Ung og hinsegin „Þetta er hinsegin kvöld, haldið af ungu fólki fyrir ungt fólk og ég verð einn af listamönnunum sem koma fram þar.“ Frítt verður inn en allur ágóði af viðburðinum rennur til hinsegin félagsmið­ stöðvar Samtakanna ’78. Dragdrottningin Starína les um fjölbreytileika fyrir börn Hinsegin dagar í Reykjavík hófust á fimmtudaginn og standa yfir til 17. ágúst. Tuttugu ár eru liðin frá því hinsegin hátíðahöld hófust í Reykjavík og verður dagskráin í ár fjölbreytt sem aldrei fyrr og eitthvað er í boði fyrir alla aldurshópa. Dragdrottningin Starína ætlar að lesa fyrir börn í dag. Dragdrottningin Starína verður með sögustund fyrir börn í Kópavogi. Starína vill gera meira fyrir börnin. MYNDIR/LOVÍSA SIGURJÓNSDÓTTIR Hin árlega Töfraganga verður haldin á Ísafirði í dag. Gangan hefst klukkan 10.45 við Byggðasafnið í Neðsta Kaupstað og endar við Edin­ borgarhúsið. Eftir gönguna verður boðið upp á töfrasýningu, söng og leiki. Síðan verða bornir fram réttir frá Pakistan, Írak, Þýska­ landi, Nígeríu, Taílandi, Banda­ ríkjunum, Króatíu, Póllandi og Íslandi. Fólk er hvatt til að mæta í litríkum klæðnaði eða búningum. Gangan er haldin af skipuleggj­ endum Tungumálatöfra, sem er námskeið ætlað 5­11 ára gömlum börnum. Tilgangur námskeiðsins er að ef la íslenskukunnáttu barna af erlendum uppruna sem búa á Íslandi og íslenskra barna sem hafa alist upp annars staðar en hér á landi. Á töfragöngunni munu 43 börn af 10 þjóðernum, sem hafa tekið þátt í Tungumálatöfranám­ skeiði, f leyta f löskuskeytum. „Það verður sent eitt, stórt f löskuskeyti sem þessi 43 börn eru búin að búa til saman,“ segir Anna Hildur Hildibrandsdóttir, formaður framkvæmdastjórnar Tungu­ málatöfra. Þau senda skilaboð sem þau eru búin að teikna og skrifa á renning sem verður settur í f löskuskeytið.“ Í skeytinu verða upplýsingar um Tungumálatöfra svo hver sá sem finnur skeytið getur haft samband. „Við vitum ekki hvert það rekur en erum spennt að vita hvort það komi einhvers staðar á land.“ Vaida Bražiūnaitė er verkefna­ stjóri göngunnar og námskeiðsins sem var haldið í sumar, hún segir það spennandi hvernig bæði nám­ skeiðið og gangan sé að þróast. „Börnin læra íslensku í gegnum söng og myndlist og í ár bættist töframaður við í kennarahópinn,“ en það er töframaðurinn Einar Mikael Mánason. „Þema ársins á námskeiðinu og í göngunni á morgun er því töfrar og töfra­ brögð.“ Senda flöskuskeyti á Töfragöngu 43 börn hafa skrifað skilaboð í flöskuskeytið sem rekur vonandi á land. Þann 19. ágúst næstkomandi verða liðin 80 ár frá stofnun Blindrafélagsins. Af því tilefni býður stjórn Blindrafélagsins til hátíðarsamkomu kl. 16:00 á Hilton Reykjavík Nordica. Á dagskrá verða ávörp frá forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessyni, og formanni Blindrafélagsins, Sigþóri U. Hallfreðssyni. Félags- og barnamálaráðherra Ásmundur Einar Daðason skrifar undir samstarfssamning við Blindrafélagið um fjármögnun leiðsöguhundaverkefnis. Samfélagslampi Blindrafélagsins verður afhentur. Nokkrir af framúrskarandi tónlistarmönnum meðal félagsmanna munu sjá um tónlistarflutning á samkomunni. Allir félagsmenn, bakhjarlar, stuðningsmenn og velunnarar Blindrafélagsins eru boðnir velkomnir á samkomuna á meðan húsrúm leyfir. Til að geta gert nauðsynlegar ráðstafanir varðandi veitingar óskum við eftir því að þeir sem hyggjast mæta skrái sig í síma 525 0000 eða í afgreidsla@blind.is. Fyrir hönd stjórnar Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi. Sigþór U. Hallfreðsson formaður Blindrafélagið, samtök blindra og sjónskertra á Íslandi 80 ára BOÐSKORT 4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 0 -0 8 -2 0 1 9 0 5 :0 9 F B 0 9 6 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 3 9 0 -D 1 4 8 2 3 9 0 -D 0 0 C 2 3 9 0 -C E D 0 2 3 9 0 -C D 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 9 6 s _ 9 _ 8 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.