Fréttablaðið - 10.08.2019, Qupperneq 48
Inga Rún ráðin til
Fréttablaðsins
Inga Rún Sigurðardóttir, ensku- og fjölmiðlafræðingur, hefur verið ráðin umsjónarmaður
Tilverunnar í Fréttablaðinu. Hún
hefur starfað sem blaðamaður
síðustu tvo áratugi, mestallan tím-
ann á Morgunblaðinu, þar af lengst
á Sunnudagsblaði Morgunblaðsins og
sem menningarblaðamaður og umsjónar-
maður dægurmenningarmála blaðsins auk starfa á mbl.
is um tveggja ára skeið. Hún hefur enn fremur skrifað í
sýningarskrár fyrir listasöfn og gallerí, f leiri erlend og
íslensk blöð og tímarit, þar á meðal Berliner Zeitung í
gegnum evrópskan blaðamannastyrk.
Inga Rún er menntuð frá Háskóla Íslands og Háskól-
anum í Amsterdam.
Tilveran er þemaefni sem birt er í hverju fimmtudags-
blaði Fréttablaðsins þar sem áhugaverð samfélagsmál eru
krufin á læsilegan máta.
Inga Rún er búsett í Árbænum og elskar göngur í Ell-
iðaárdalnum, sundferðir með fjölskyldunni, bóklestur,
umhverfismál, hönnun og matarmarkaði.
Inga Rún hóf störf 1. ágúst.
Nýtt fólk
Díana Óskarsdóttir nýr
forstjóri HSU
Díana Óskarsdóttir hefur verið skipuð í starf forstjóra Heil-brigðisstofnunar Suður-
lands til næstu fimm ára. Díana er
menntaður geislafræðingur með
meistaranám í lýðheilsuvísindum
og hefur að auki stundað nám
í stjórnun og rekstri á sviði heil-
brigðisþjónustu.
Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna
og er ákvörðun ráðherra tekin að undangengnu mati lög-
skipaðrar hæfnisnefndar sem metur hæfni umsækjenda
um stöður forstjóra heilbrigðisstofnana. Sex sóttu um
stöðuna.
Díana er með B.S.-gráðu í geislafræði, meistarapróf
í lýðheilsuvísindum og hefur að auki stundað nám í
stjórnun og rekstri á sviði heilbrigðisþjónustu. Hún hefur
gegnt starfi deildarstjóra á röntgendeild Landspítalans
frá árinu 2015, samhliða lektorsstöðu við Háskólann í
Reykjavík. Áður starfaði hún í sjö ár sem geislafræðingur
hjá Hjartavernd auk þess að vera námsbrautarstjóri í
lektorsstöðu við Háskóla Íslands í tíu ár. Díana hóf fyrst
störf sem geislafræðingur árið 1990 og hefur frá þeim tíma
meðal annars unnið á Heilbrigðisstofnun Suðurlands,
Landspítalanum og hjá Geislavörnum ríkisins.
Ingvar Freyr ráðinn
hagfræðingur Samorku
Ingvar Freyr Ingvarsson hefur verið ráðinn í starf hagfræðings hjá Samorku, samtökum orku- og
veitufyrirtækja á Íslandi.
Ingvar lauk meistaragráðu í
hagfræði með áherslu á orku- og
loftslagshagfræði frá Landbún-
aðarháskólanum að Ási (Norges
miljø- og biovitenskapelige unversi-
tet – NMBU) árið 2016, kennsluréttind-
um frá Háskóla Íslands árið 2012 og B.S.-gráðu í hagfræði
frá sama skóla árið 2011.
Samhliða námi starfaði hann sem sérfræðingur hjá
Hagfræðideild Landsbankans og við tölfræðilegar
greiningar hjá Seðlabanka Íslands. Þá hefur hann kennt
hagfræði og skyldar greinar, bæði í menntaskóla og við
Opna háskólann í Reykjavík, sem kennari í Háskóla
Íslands og við NMBU.
Ingvar hefur verið hagfræðingur Samtaka verslunar og
þjónustu frá árinu 2016.
Ingvar Freyr mun hefja störf hjá Samorku í september.
Tilkynningar um nýtt fólk Atvinnublað Fréttablaðsins
kemur út á laugardögum í viku hverri. Umsjónarmaður
blaðsins er Hrannar Helgason. Blaðið birtir valdar
greinar um ráðningu nýrra starfsmanna. Sendið til-
kynningar ásamt mynd af viðkomandi á netfangið:
nyttfolk@frettbladid.is
Kennsluráðgjafi
Staða kennsluráðgjafa fyrir leik- og grunnskóla á starfssvæði Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er laus til umsóknar.
Um er að ræða 100% stöðu. Á svæðinu eru sjö leikskólar, sex grunnskólar og tveir leik- og grunnskólar.
Hjá Skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings starfar öflug liðsheild sérfræðinga sem vinnur í þverfaglegu samstarfi um málefni ein-
staklinga og hópa. Það eru forstöðumaður, teymisstjóri og kennsluráðgjafi, sálfræðingar, talmeinafræðingar og félagsráðgjafar.
Leitað er eftir metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að taka þátt í þróun þjónustunnar og samstarfi, m.a við sérfræðinga ART
teymis og heilbrigðisþjónustu.
Umsóknarfrestur er til og með 18. ágúst 2019
Umsóknir sendist rafrænt á netfangið hrafnhildur@arnesthing.is. Umsókninni skal fylgja ferilskrá um störf umsækjanda, menntun
og nöfn tveggja umsagnaraðila. Einnig skal fylgja greinargerð þar sem fram koma hugmyndir umsækjanda um sérfræðiþjónustu og
tilgreina þau verkefni sem viðkomandi hefur unnið að og varpað geta ljósi á færni hans til að sinna starfinu. Í samræmi við jafnréttis-
stefnu sveitarfélaganna eru bæði karlar og konur hvött til að sækja um starfið. Laun og starfskjör eru samkvæmt kjarasamningi Sam-
bands Íslenskra sveitarfélaga og Skólastjórafélags Íslands. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. september 2019 eða eftir samkomu-
lagi. Nánari upplýsingar um starfið veitir Hrafnhildur Karlsdóttir teymisstjóri og kennsluráðgjafi hrafnhildur@arnesthing.is
Starfssvið
• Forvarnarstarf og ráðgjöf um snemmtæka íhlutun með áherslu á
sjálfbærni skóla við lausn mála sem upp koma.
• Þverfaglegt samstarf með starfsfólki leik- og grunnskóla.
• Fræðsla og/eða handleiðsla vegna einstaklinga eða hópa.
• Stuðningur við nýbreytni- og þróunarstarf skóla m.a. með
ráðgjöf við stjórnendur og starfsmenn leik- og grunnskóla.
• Skipulagning á símenntun starfsfólks leik- og grunnskóla og
stuðningur við starfsþróun.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Leyfisbréf sem grunnskólakennari.
• Framhaldsmenntun á sviði uppeldis- og menntunarfræða.
• Farsæl kennslureynsla í grunnskóla, kennslureynsla í leikskóla
æskileg.
• Góðir skipulagshæfileikar,
• Lipurð í samskiptum, reynsla og áhugi á teymisvinnu.
ATVINNA
Við óskum eftir að ráða fólk til starfa
á endur vinnslustöðvar SORPU.
Í starfinu felst:
afgreiðsla og þjónusta
dagleg umhirða og þrif stöðvarinnar
móttaka viðskiptavina og leiðsögn
mat á farmi og aðstoð við flokkun
innheimta á gjaldi vegna úrgangs
umsjón skilagjaldsskyldra umbúða
annað sem tilheyrir starfinu
•
•
•
•
•
•
•
RIDDARAR
HRINGHAGKERFISINS
STARFSFÓLK ÓSKAST
Á ENDURVINNSLUSTÖÐ
SORPA | Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa.is
Leitað er að starfsfólki með hæfni í mannlegum
samskiptum, ríka þjónustulund og góða fram komu.
Snyrtimennska og íslenskukunnátta eru skilyrði
auk þess sem reynsla af þjónustu störfum og áhugi
og þekking á umhverfismálum eru kostir.
Unnið er í vaktavinnu í um 84% starfshlutfalli.
Sótt er um á heimasíðu SORPU á sorpa.is/starf
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is
Þarftu
að ráða starfsmann?
Ráðum sérhæfir sig í ráðgjöf og ráðningum.
Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum
lausnir sem henta hverjum viðskiptavini.
16 ATVINNUAUGLÝSINGAR 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
9
1
-2
0
4
8
2
3
9
1
-1
F
0
C
2
3
9
1
-1
D
D
0
2
3
9
1
-1
C
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K