Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 66
Sólrún
Freyja Sen
solrunfreyja@frettabladid.is
Benjamín Sigurgeirsson, gekk til liðs við samtök grænkera árið 2017 og er formaður
þeirra. „Tilgangur okkar er að veita
fræðslu um hvaða ávinningur felst
í því að borða frekar plöntur en
dýr. Ávinningurinn er allt í senn
siðferðislegur, umhverfislegur og
heilsufarslegur.“
Stærstu viðburðirnir sem sam-
tökin halda eru Vegan hátíðin og
Veganúar sem sífellt f leiri taka
þátt í að sögn Benjamíns. „Með
því að halda þessa viðburði viljum
við vekja almenning til vitundar
um þessi mál og auka eftirspurn
eftir plöntufæði. Þannig minnkum
við samverkandi eftirspurn eftir
fæðu sem er unnin úr dýrum eða
dýraafurðum.“
Auðvelt að vera vegan í dag
Benjamín segir að í boði verði alls
kyns vegan matur á hátíðinni,
bæði heitur og kaldur. Á hátíðinni
verða Anamma, Junkyard, Ramen
Momo, Restaurant A. Hansen og
Murica Iceland með matarvagna.
Auk þess verður súrkál, sveppir,
kaffi og fæðubótarefni til sölu.
„Við höfum oft verið með vegan
pylsur í boði og svo verða líka ýmis
fyrirtæki að kynna sínar vegan
vörur. Yfirleitt höfum við líka
boðið listamönnum að koma sem
vinna verk sín út frá vegan sjónar-
miðum.“ Yllir og Birki, Jurtaætan
og Hjartahraun verða með list sína
til sýnis og plötusnúðurinn Bróðir
Big heldur uppi stemmingunni.
Benjamín telur það mun auð-
veldara í dag að gerast vegan
heldur en fyrir nokkrum árum.
„Það er hægt að fá vegan vörur
út í búð og vegan rétti á veitinga-
stöðum, svo eru meira að segja
komnir nokkrir veitingastaðir á
Auðvelt að vera vegan í dag
Benjamín segir það ekki erfitt að tileinka sér vegan lífsstílinn í dag. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Á hátíðinni eru oftast vegan pylsur í boði.
Súrkál, sveppir, kaffi og fæðubótar
efni verða til sölu á hátíðinni.
Anonymous for
the Voiceless
stunda friðsam
leg mótmæli úti
á borgargötum
heimsins.
NORDIC PHOTOS/
GETTY
Vegan hátíðin
verður haldin á
morgun af sam-
tökum græn-
kera á Íslandi,
á Thorsplani í
Hafnarfirði eins
og vanalega.
landið sem eru alfarið vegan. Það
gengur ekki lengur fyrir fólk að
segja að það sé of erfitt að tileinka
sér þennan lífsstíl. Það eru ein-
faldlega rök sem gilda ekki í dag,
allavega ekki hér á Íslandi.“
Standa fyrir Sannleiks
kubbum í Reykjavík
Stjórnendur í Samtökum græn-
kera á Íslandi verða á hátíðinni
með bæklinga og fræðslu. Hópur
úr alþjóðlegu hreyfingunni Ano-
nymous for the Voiceless, sem
hefur staðið fyrir svokölluðum
Sannleikskubbamótmælum hér í
Reykjavík, munu koma og fræða
hátíðargesti. Mótmæli Ano-
nymous for the Voiceless felast í
því að nokkrir úr hreyfingunni
standa úti á götu með skjái. Á
skjáunum eru sýndar myndir af
dýrum í verksmiðjubúgörðum og
sláturhúsum. „Sjálfur er ég ekki
meðlimur í þessum hóp en sumir í
stjórn Samtaka grænkera á Íslandi
eru það,“ segir Benjamín. „Þau hafa
staðið að þessum mótmælum í
hverri einustu viku hátt í tvö ár.“
Vigdís Þórðardóttir er einn
skipuleggjenda Anonymous for
the Voiceless hér á landi. Hún segir
að hreyfingin hafi verið stofnuð í
Ástralíu árið 2016 og eigi nú deildir
í yfir þúsund borgum um allan
heim. Mótmælendur í hreyfing-
unni fylgja ströngum reglum frá
stjórnendum hreyfingarinnar,
þeir eru alltaf í svörtum fötum
með grímur og mega hvorki vera
of fáir eða of margir í einu. „Fólk
getur labbað fram hjá okkur ef það
vill ekki tala við okkur eða skoða
þetta,“ segir Vigdís. Ef einhver
stoppar hjá mótmælendum fær
viðkomandi fræðslu og hvers kyns
spurningum svarað.
Íslendingar kaldir yfir þessu
Hér í Reykjavík hafa Anonymous
for the Voiceless haldið yfir 80
viðburði frá árinu 2017 þegar
hreyfingin var stofnuð á Íslandi.
Vigdís segir að margir sem stoppa
hjá mótmælendunum hafi aldrei
séð annað eins, en oftast eru það
ferðamenn. Vigdís telur marga
Íslendinga þekkja úrvinnsluferli
kjöts og dýraafurða að allavega
einhverju leyti. „Ég myndi halda
að fjölmargir Íslendingar þekki
þetta. Þeir eru flestir frekar kaldir
yfir þessu.“ Sjálf var hún í sveit og
hefur komið í sláturhús þannig að
hún þekkir það ferli vel sem kjöt
fer í gegnum áður en því er pakkað
snyrtilega í plastumbúðir. „Hvort
manni finnst þetta ferli ógeðslegt
eða ekki fer algjörlega eftir ein-
staklingnum.“
Vigdís segir að Anonymous for
the Voiceless stundi alltaf friðsam-
leg mótmæli. „Þessi samtök stunda
engar truflanir. Það eru mjög stífar
reglur um hvernig mótmæli á
þeirra vegum fara fram. Mótmælin
eru mjög friðsamleg og mild. Það
eru engin læti eða neitt.“ Á Vegan
hátíðinni verða Anonymous for
the Voiceless með fræðslubás um
hreyfinguna og málefnin sem hún
stendur fyrir.
Fæst í apótekum,
heilsubúðum og
heilsuhillum stórmarkaða.
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 0 . ÁG Ú S T 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
0
-D
6
3
8
2
3
9
0
-D
4
F
C
2
3
9
0
-D
3
C
0
2
3
9
0
-D
2
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K