Fréttablaðið - 10.08.2019, Síða 70
Að fæða og grípa mitt eigið barn á mínum forsendum er það mag naða st a sem ég hef gert,“ segir Ronja Mogensen, 22
ára myndlistarkona, sem eignað-
ist aðra dóttur sína með Klemens
Hannigan, söngvara hljómsveit-
arinnar Hatara, á heimili þeirra
í miðbænum þann 24. júní. Við
heimafæðingu eldri dóttur þeirra,
Valkyrju, sendu ljósmæður Ronju
á sjúkrahús til að fæða. Í kjölfarið
tók hún þá ákvörðun að hún vildi
fæða barn sitt á eigin spýtur til
að forðast óþarfa inngrip frá heil-
brigðiskerfinu.
„Þegar þú ert að fæða ertu ber-
skjölduð, bæði líkamlega og and-
lega, og ert svo ótrúlega opin og
hrá að þegar einhverjir koma inn
í þitt rými þá hafa þeirra skoðanir
og ótti áhrif á þína reynslu og upp-
lifun.“
Ronja vildi hafa fullkomið vald
yfir eigin aðstæðum og Klemens
var því sá eini sem var viðstaddur
fæðinguna.
Ekki læknisfræðilegur viðburður
„Þú þarft ekki að vita eða læra neitt
til þess að fæða barn. Líkami þinn
veit hvernig hann á að gera það,
alveg eins og hann vissi hvernig
hann átti að búa barnið til. Ég
treysti líkama mínum og ég treysti
konum til að vita hvað er þeim
og börnunum þeirra fyrir bestu.
Konur hafa þróast í milljónir ára
til að geta fætt börnin sín og lifað
það af. Fæðingar eru ekki læknis-
fræðilegur viðburður.“
Ósk Ronju um rómantíska
laugarfæðingu eftir að hún gekk
með eldri dóttur sína rættist ekki.
„Ég var með yndislegar heima-
ljósmæður en mér varð strax ljóst
að þær stjórnuðu aðstæðunum.“
Þegar líða fór á fæðinguna vildu
ljósmæðurnar fara með hana upp
á sjúkrahús. „Ég skildi þetta ekki,
þetta var erfiðisvinna en mér leið
ekkert illa, en um leið og ég heyrði
þær segja þetta sannfærðist ég um
að það hlyti að vera eitthvað að og
að ég væri að skynja líkama minn
vitlaust.“
Á endanum eignaðist Ronja Val-
kyrju á sjúkrahúsi. „Ég fékk mænu-
deyfingu sem var svo sterk að ég
þurfti að bíða þar til hún rann af
mér til að geta fætt.“ Fæðingin var
að hennar sögn ekki slæm en skildi
eftir óbragð í munninum. „Mér
leið svo ótrúlega undarlega af því
að fyrir fæðinguna hafði ég verið
svo ótrúlega örugg en missti síðan
allt traust á sjálfri mér og streittist
gegn því sem var að gerast í líkama
mínum með því að samþykkja að
fara á spítala.“
Ákveðin fæðingarþráhyggja hel-
tók Ronju eftir að Valkyrja kom í
heiminn og sankaði hún að sér öllu
efni sem hún komst í um fæðingar.
Eftir heilmikla rannsóknarvinnu
fékk hún ákveðna hugljómun. „Ég
rakst á fæðingarsögu frá konu, sem
var fyrrverandi ljósmóðir og hafði
fætt öll sín börn sjálf, bara heima
með manninum sínum.“
Þetta var vendipunktur í líf i
Ronju. „Það talar enginn um að þú
getir gert þetta sjálf en um leið og
ég heyrði þetta þá var það svo
Tók á móti eigin barni
í baðkarinu heima
Ronja Mogensen tók þá ákvörðun að eignast dóttur sína ein og óstudd á heimili sínu í
miðbænum. Hún segir fæðingar vera náttúrulegan viðburð og vildi sjálf forðast óþarfa
inngrip af hendi heilbrigðisstarfsfólks. Mikilvægast finnst Ronju að konur fái sjálfar að
velja þær aðstæður sem þeim líður best í til að fæða börnin sín, sama hvar það er.
Fæðing eldri dóttur Ronju var að hennar sögn mun erfiðari. „Mér leið mér eins og það væri verið að biðja mig um að kúka á mig fyrir framan þúsund
manns. Fyrir mér var mun einfaldari lausn að gera þetta sjálf heima hjá mér,“ segir Ronja Mogensen um heimafæðingu dóttur sinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
↣
ÉG TREYSTI LÍKAMA
MÍNUM OG ÉG TREYSTI
KONUM TIL AÐ VITA HVAÐ
ER ÞEIM OG BÖRNUNUM
ÞEIRRA FYRIR BESTU.
Kristlín Dís
Ingilínardóttir
kristlin@frettabladid.is
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R30 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
0
-F
D
B
8
2
3
9
0
-F
C
7
C
2
3
9
0
-F
B
4
0
2
3
9
0
-F
A
0
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K