Fréttablaðið - 10.08.2019, Blaðsíða 84
VIÐ SETJUM BÓKINA
ÞANNIG UPP AÐ
AUÐVELT ER AÐ NOTA HANA ÁN
ÞESS ENDILEGA AÐ FARA EFTIR
OKKAR ÚTSETNINGU, EN ÞÓ
HÆGT AÐ STYÐJAST VIÐ HANA
EF ÞESS ÞARF.
Nótnabókin Íslensk þjóðlög í útsetningum Guitar Is lancio er nýkomin út . „Þetta eru íslensk þjóðlög í útsetn
ingum Guitar Islancio, 22 þjóðlög af
um 60 sem við höfum hljóðritað á
geisladiska í gegnum árin,“ segir Jón
Rafnsson sem hefur veg og vanda
af nótnabókinni. Tríóið Guitar Is
lancio var stofnað árið 1998 og allt
frá því hafa félagarnir í tríóinu, Jón,
Björn Thoroddsen og Gunnar Þórð
arson, lagt mikla rækt við íslensku
þjóðlögin og hafa spunnið við þau
þannig að einfaldar laglínur fá á sig
nútímalegan blæ, í senn íslenskan
og alþjóðlegan.
Bók á leið til Georgs
Nótnabókin á sér langan aðdrag
anda en Jón segir að hugmyndin að
henni hafi fyrst látið á sér kræla fyrir
20 árum. „Dag einn var ég að hjálpa
vini mínum í hljóðfæraverslun í
Reykjavík og inn kom maður sem
reyndist vera austurrískur tónlist
armaður. Hann sagði mér að hann
hefði keypt geisladisk með íslenskri
hljómsveit og spurði hvort mögu
leiki væri á að fá lögin á nótum. Ég
spurði hvaða hljómsveit þetta væri.
Hann svaraði: Guitar Islancio. Ég
sagði honum að hann væri að tala
við bassaleikara tríósins. Ég sagði
honum að til væri 900 blaðsíðna
doðrantur, þjóðlög séra Bjarna Þor
steinssonar, sem gagnaðist honum
vitanlega ekki neitt. Þá hugsaði ég
með mér að kannski væri möguleiki
á að búa til nótnabók. Nú er þessi
bók á leið í pósti til hans Georgs í
Vínarborg sem gaf mér hugmyndina.
Og ég sannfærðist alveg um að
þessa bók yrði ég að gera þegar við
félagarnir fórum á árunum 2007 og
2008 í allflesta grunnskóla landsins
í verkefninu „Tónlist fyrir alla“. Við
sendum á undan okkur útsetningar
af þjóðlögum sem við svo fluttum
með nemendum á tónleikum í
skólunum og þar léku krakkarnir
með okkur á þau hljóðfæri sem
þau voru að læra á og þau sem ekki
voru í hljóðfæranámi tóku þátt
með söng, sem sagt, allir voru með.
Margir kennarar, bæði tónmennta
og bekkjarkennarar, höfðu orð á að
þessar útsetningar þyrftu að vera
aðgengilegar og við setjum bókina
þannig upp að auðvelt er að nota
hana án þess endilega að fara eftir
okkar útsetningu, en þó hægt að
styðjast við hana ef þess þarf.“
Mikil og góð aðstoð
Auk þjóðlaganna á nótum geymir
bókin ýmsan fróðleik um lögin og
ljóðin sem þeim fylgja. Sá texti er á
íslensku, ensku og þýsku. Jón segist
hafa fengið mikla og góða aðstoð úr
mörgum áttum. „Sérstaklega varð
andi fróðleik um þjóðlögin og það
að birta rétta útgáfu af ljóðunum
svo ég tali ekki um að skrifa upp
nóturnar en Aðalheiður Þorsteins
dóttir, píanóleikari og séní, sá um
það.“ Hann segir bókina vera fram
hald af safndiski sem tríóið gaf út
fyrir tveimur árum en á honum eru
14 af þeim þjóðlögum sem finna má
í nótnabókinni. Vínylplata með 12
þjóðlögum er svo væntanleg í haust.
Sama útlit er á bókinni, disknum og
plötunni.
Óhætt er að segja að Guitar Is
lancio hafi notið velgengni í þau
rúmu 20 ár sem tríóið hefur starfað
en á þeim tíma hafa selst milli 3040
þúsund geisladiskar með tríóinu
sem hefur spilað um alla Evrópu,
Ameríku, Kanada, Kína og Japan.
Jón segir að frekari spilamennska sé
á dagskrá í Kanada og þar er áhugi
á að gefa nótnabókina út. Hún er
þegar komin í sölu í Þýskalandi og
til stendur að gefa hana út í Skand
inavíu.
Þjóðlög á nótnabók með alls kyns fróðleik
Jón og afadrengirnir Daði Brimar og Viktor Breki Sturlusynir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrunb@frettabladid.is
SÝNINGARAÐSTAÐA
OG VINNUSTOFA Í
ÁSMUNDARSAL 2020
Ásmundarsalur óskar eftir tillögum að sýningum, viðburðum
eða uppákomum sem fanga fjölbreytileika listarinnar. Kostur
er ef fleiri en eitt listform mætast í sýningu. Einnig er óskað
eftir umsóknum um aðstöðu fyrir vinnustofu listamanns í
Gunnfríðargryfju til tveggja mánaða í senn. Umsóknir skulu
berast á netfangið asmundarsalur@asmundarsalur.is fyrir
10. september næstkomandi en með umsóknunum skulu fylgja:
Fullt nafn listamanns
Lýsing á fyrirhugaðri sýningu/viðburði/verkefni
Fylgiskjöl – ferilskrá, myndir af verkum, textar o.þ.h.
Vefsíða listamanns ef við á
Ásmundarsalur er sjálfstætt starfandi sýningarsalur sem leggur
til aðstöðu og vinnustofu fyrir listamenn í miðbæ Reykjavíkur.
Nótnabók með
íslenskum
þjóðlögum í
útsetningum Guitar
Islancio er komin
út. Jón Rafnsson
fékk hugmyndina
að bókinni fyrir 20
árum. Vínylplata
með 12 þjóðlögum
er væntanleg.
1 0 . Á G Ú S T 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
MENNING
1
0
-0
8
-2
0
1
9
0
5
:0
9
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
3
9
0
-E
0
1
8
2
3
9
0
-D
E
D
C
2
3
9
0
-D
D
A
0
2
3
9
0
-D
C
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
9
_
8
_
2
0
1
9
C
M
Y
K