Víkurfréttir - 14.03.2019, Page 9
í krukkumat. En ef rétturinn er eldaður frá
grunni stjórnar maður því algjörlega sjálfur.
Það er nefnilega ekkert alltaf mikil fyrirhöfn.
Maður heldur það oft á tíðum og miklar þetta
fyrir sér en sú er ekki raunin,“ segir Bjarki. Í
stað þess að kaupa til dæmis tilbúið pestó útbúa
þeir það sjálfir. „Við höfum lært það að maður
verður að bera virðingu fyrir öllu hráefni.“
Í áttina að Reykjanesbæ
Bjarki er fæddur og uppalinn í Keflavík en saga
Antons er örlítið flóknari. „Ég byrja á því að
fæðast í Úkraínu og flutti svo til Íslands þegar ég
var tólf ára. Þá bjó ég í Vestmannaeyjum, flutti
svo til Reykjavíkur, þaðan til Garðabæjar og svo
kom ég hingað. Ég hef alltaf færst nær og nær
Reykjanesbæ. Það er eitthvað við þennan stað.
Ég elska að búa hérna,“ segir Anton.
Þó Matarmenn nái einstaklega vel saman eru
þeir ólíkir að mörgu leyti. Anton er skipulagðari
og fylgir uppskriftunum oftast nákvæmlega á
meðan Bjarki leyfir sér meira að „dassa“. Þeir
vinna þó vel saman og skipta hlutverkunum
jafnt sín á milli. „Við erum svolítið yin og yang.
Anton vill ekki kúfulla skeið. En maður þarf ekki
að fylgja uppskriftum alveg upp á tíu. Það má
alveg fara aðeins út fyrir,“ segir Bjarki. Þá bætir
Anton við að það sé ótrúlegt hvað Bjarki hafi
góð áhrif á sig. „Ég verð bara einhvern veginn
rólegri í kringum hann. Ef ég byrja á einhverju
þá er Bjarki bara byrjaður á einhverju öðru.
Þetta smellur einhvern veginn allt saman hjá
okkur,“ segir hann.
Þrettán ára myndband frá Indlandi
Matarmenn notast mikið við netið til að afla sér
upplýsinga um matargerð og þegar þeir tóku
upp fyrsta þáttinn fyrir Instagram ákváðu þeir
að gera indverskan mat. „Við vildum byrja þetta
með svolítilli sprengju. Indverskur matur er
eitthvað sem flestir tengja við og við ákváðum
að gera tikka masala og naan-brauð en okkur
vantaði uppskrift. Við fórum þá bara á YouTube
og fundum eitthvað þrettán ára gamalt mynd-
band með gamalli, indverskri konu sem var tekið
upp á eldgamla myndavél. Við bara horfðum á
þetta myndband, sáum þessa gömlu konu og
hugsuðum báðir: „Við treystum þessari konu.“
Enda voru naan-brauðin geggjuð.“
Svona hafa Matarmenn reddað sér, hvort sem
það er í gegnum YouTube-myndbönd frá Ind-
landi eða sjónvarpsþætti Gordon Ramsey. Þeir
eru hvorugir lærðir kokkar en hafa báðir mikinn
áhuga á því að sækja námskeið tengd matar-
gerð. „Við förum alltaf í mikla rannsóknarvinnu
fyrir þættina okkar og svo notum við okkar
„Matarmannainnsæi“, eins og ég kalla það,
og gerum þetta svolítið að okkar,“ segir Anton
og Bjarki bætir því við að þeir séu ekkert að
finna upp hjólið þegar kemur að matargerð.
„Við notumst alltaf við einhvern grunn en það
er árið 2019 og þegar búið að finna upp flest
allt í matargerð, þannig séð. En við reynum að
gera uppskriftirnar að okkar.“
Gítar og grín í boði fyrir saumaklúbba
Matarmenn eru nú orðnir bloggarar hjá Gulur,
rauður, grænn & salt (grgs.is) en að þeirra sögn
er margt annað í pípunum hjá þeim félögum.
„Eitthvað af því hefur ekki verið gert opinbert
svo við getum ekki sagt frá því strax. En annars
mun sá tími koma að við opnum heimasíðuna
Matarmenn.is, það verður gert þegar tími gefst.“
Aðspurðir hvort þeir hefðu áhuga á því að gerast
sjónvarpskokkar eru þeir ekki lengi að svara.
„Það væri náttúrlega bara draumur.“
Í dag getur fólk haft samband við Matarmenn og
bókað þá fyrir minni veislur, svo sem í sauma-
klúbba. „Við eldum, græjum kokteila og höfum
mjög gaman af þessu. Svo er aldrei að vita nema
það verði smá gítarspil líka,“ segir Bjarki hress
en Anton sér þá um að taka piparstaukinn með.
„Við erum ótrúlega ánægðir með viðtökurnar
og erum eiginlega bara smá klökkir. Við gjör-
samlega elskum þetta.“
Innslag með Matarmönnum verður í Suður-
nesjamagasíni vikunnar – ekki missa af því!
Við bara horfðum á þetta myndband,
sáum þessa gömlu, indversku konu
og við hugsuðum báðir:
Við treystum þessari konu ...
Tikka masala réttur þeirra félaga.
Enginn krukkumatur
hjá Matarmönnum.
Bjarki Þór með nýbakað bananabrauð.
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
FJÖLHÆFASTA FJÖLSKYLDA LANDSINS?
Glæsilegur og vel útbúinn pallbíll með
3.0 lítra, 258 hestafla, V6 dísilvél,
580 Nm togi, sjálfvirkum vélarhitara,
bakkmyndavél, fjarlægðarskynjara að
framan og aftan, regn- og birtuskynjara,
Xenon/led aðalljósum og 18” álfelgum.
Volkswagen Amarok
verð frá 8.290.000 kr.
Hannaður með þarfir iðnaðar-
manna að leiðarljósi og með
átta þrepa sjálfskiptingu fyrir
allar útgáfur. Fjöldi útfærslna
á hleðslurými, farþegarými og
aðstoðarkerfi.
Volkswagen Crafter
verð frá 6.220.000 kr.
Einn vinsælasti atvinnubíll
á Íslandi undanfarin ár.
Áreiðanlegur, öruggur og
fæst í tveimur lengdum,
fjórhjóladrifinn og í fjölda
útfærslna.
Volkswagen Caddy
verð frá 2.870.000 kr.
Transporter hefur fylgt
kynslóðum af fólki sem hefur
þurft á traustum og áreiðan-
legum vinnuþjarki. Fullkomin
stöðugleikastýring, spólvörn
og sjö þrepa sjálfskipting.
Volkswagen Transporter
verð frá 4.590.000 kr.
9MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. mars 2019 // 11. tbl. // 40. árg.MANNLÍF Á SUÐURNESJUM