Víkurfréttir - 14.03.2019, Blaðsíða 16
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is Auglýsingasími: 421 0001 Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
facebook.com/vikurfrettirehf
twitter.com/vikurfrettir
instagram.com/vikurfrettir
MUNDI
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
Ég er bólusettur.
Fékk eina rauða
á nefið ...
Fyrir mánuði ritaði ég lokaorð þar
sem ég þakkaði þingmönnum Suður-
kjördæmis fyrir slaka frammistöðu
fyrir hönd Suðurnesja á þingi. Ég
óskaði eftir því, í framhaldi þeirrar
greinar, að bæjarstjóri Reykjanes-
bæjar tæki að sér að skipuleggja fund
með kjósendum á Suðurnesjum og
þingmönnum. Ekkert hefur frést
af því máli. Oddný Harðardóttir
hefur lagt fram þingsályktunartil-
lögu um stöðu sveitarfélaganna á
Suðurnesjum. Þetta sama mál lagði
hún fram á síðasta þingi en það dó í
nefnd. Oddný fær rós í hnappagatið
fyrir að reyna.
Nýjustu fréttir sem við fáum af Suður-
nesjum og landsmálunum er það að
óþarfi sé að bólusetja börn hér við
mislingum en það er nauðsynlegt að
gera það í öðrum landshlutum. Fær
mann til að hugsa ekki satt?
Sökum aðgerðarleysis bæjarstjór-
ans í skipulagi fundarins sem ég
fól honum hér fyrir mánuði síðan,
mun ég taka verkið að mér sjálfur.
Þeir sem þekkja mig vita hvernig ég
vinn. Fundurinn verður haldinn fyrir
13. apríl næstkomandi en sá dagur er
mér mjög kær. Þingmenn Suðurkjör-
dæmis verða boðaðir á fundinn ásamt
völdum sveitarstjórnarmönnum. Ég
treysti því að kjósendur láti sjá sig.
Spennandi verður að sjá viðbrögð
þingmannanna.
Mæti enginn, þá er ljóst að kjósendur
eru sáttir við ástand mála eins og
það er. Það væri svar í sjálfu sér um
að Suðurnesjamenn eru sáttir við að
vera annars flokks þegnar ríkisins.
LOKAORÐ
Margeirs Vilhjálmssonar
Annars
flokks
þegnar
magasínS U Ð U R N E S J A
á Hringbraut og vf.is öll
mmtudagskvöld kl. 20:30
Þemadagar í Fjölbraut
Tveir Suðurnesjamenn eru áberandi
í herferð Krabbameinsfélagsins nú
í Mottumars. Þeir Sveinn Björnsson
og Davíð Ólafsson, báðir úr Reykja-
nesbæ, eru þátttakendur í ljós-
myndasýningu sem m.a. hangir uppi
í Bókasafni Reykjanesbæjar. Þeir
Sveinn og Davíð hafa báðir fengið
ristilkrabbamein. Sveinn greindist
vorið 2018 en Davíð greindist fyrst
með ristilkrabbamein fyrir tveimur
árum. Meinið tók sig síðan upp að
nýju í janúar.
Átakinu Mottumars var hleypt af
stokkunum með ljósmyndasýningu
í Bókasafni Reykjanesbæjar þar
sem jafnframt var kynntur vefurinn
karlaklefinn.is. Þar má m.a. sjá ítar-
leg viðtöl við þá Davíð og Svein. Við
opnun sýningarinnar léku þau Fríða
og Smári úr Klassart nokkur lög og
Mottumars-sokkarnir voru boðnir til
sölu. Myndirnar voru teknar við þetta
tækifæri. VF-myndir: Hilmar Bragi
Davíð og Sveinn vekja athygli á Mottumars
Davíð Ólafsson á ljósmyndasýningu. Sveinn Björnsson með pör af Mottumars-sokkunum sem eru seldir fyrir þarft málefni.
Smári og Fríða Guðmundsbörn úr Klassart spiluðu og sungu.
bmvalla.is
FLOKKUM OG SKÝLUM
Stílhrein og sterk sorptunnuskýli fyrir eina og upp í þrjár tunnur.
Aukin flokkun kallar á fleiri sorptunnur og sorptunnuskýlin
okkar eru sérstaklega hentug til að skýla þeim öllum.
Við sendum heim að dyrum!
TAKTU VEL Á MÓTI
NÝJU TUNNUNNI
KY
NN
INGARVER
Ð
20%AFSLÁTTURTIL 15. APRÍL