Víkurfréttir - 14.03.2019, Blaðsíða 11
Tafir við framkvæmdir koma niður
á þjónustu Sandgerðishafnar
Hafnarráð Sandgerðishafnar lýsti á fundi sínum í lok febrúar vonbrigðum
með tafir sem orðið hafa á framkvæmdum við Suðurgarð Sandgerðishafnar.
Þar er unnið að endurbótum m.a. með því að reka niður nýtt stálþil.
Á fundinum var farið yfir framgang framkvæmda við Suðurgarð. Verkið hefur
tafist og ekki gengið eins og upp var lagt með. Hafnarráð lýsir vonbrigðum
með tafir verksins, sem kemur niður á þjónustu hafnarinnar og starfsemi.
Allir komu þeir aftur
Allir komu þeir aftur. Er þetta ekki
flott lína til þess að byrja pistil?
Fæ kannski ekki nóbelsverðlaun
fyrir þessa byrjun. En jú, það sem
ég á við er að núna eru allir bátar
komnir suður til veiða sem hafa
verið út landi.
Fyrir utan bátana sem voru sendir
norður, Óli á Stað GK og Guðbjörg
GK. Guðbjörg GK er með um 40 tn.
í sjö róðrum og Óli á Stað GK með
31 tn. í sjö túrum, engin mokveiði
hjá þeim þarna.
Aftur á móti hefur verið hörkuveiði
hjá bátunum frá Grindavík og Sand-
gerði.
Ef við rennum yfir línubátana þá er
Valdimar GK með 217 tn. í tveimur
róðrum og mest 119 tonn. Sturla GK
213 tn. í tveimur róðrum, Kristín
GK 155 tn, í tveimur og mest 102
tonn. Jóhanna Gísladóttir GK 140
tn. í einum róðri, Hrafn GK 139 tn í
tveimur og Fjölnir GK 117 tn. í einum.
Af minni bátunum, þá er Hafdís SU
hæstur með 71 tn. í sex róðrum en
báturinn rær frá Sandgerði. Sandfell
SU er með 68 tn. í sjö. Sandfell SU
hét áður Óli á Stað GK og er systur-
bátur núverandi Óla á Stað GK. Um
borð í Sandfelli SU eru þeir feðgar
Rafn og Örn sem eru skipstjórar á
bátnum og en hann er í eigu loðnu-
vinnslunar á Fáskrúðsfirði.
Daðey GK með 66 tn. í níu, Dóri GK
55 tn. í fimm róðrum, Hulda GK 45
tn. í sex, Gísli Súrsson GK 43 tn. í
fimm, Vésteinn GK 43 tn. í fjórum
og mest 19,6 tonn. Auður Vésteins
SU 36 tn. í fjórum róðrum.
Sævík GK er með 70 tn. í sjö, Von
gK 59 tn. í fimm og mest 13,8 tonn.
Dúddi Gísla GK 54 tn. í fimm og mest
15,2 tonn. Bergur Vigfús GK 46 tn. í
fimm og mest 13 tonn. Steinunn HF
39 tn. í fimm en báturinn landar í
Sandgerði. Beta GK 34 tn. í fjórum.
Síðan eru það enn minni bátar, því að
tveir bátar úr Sandgerði hafa mok-
veitt og komið í land má segja kjaft-
fullir af fiski. Þetta eru Addi Afi GK
sem er með 26 tn. í fjórum og mest
8,9 tonn í róðri og Guðrún Petrína
GK sem er með 32 tonn í aðeins fimm
róðrum eða um sex tonn í róðri. Mest
8,9 tonn í róðri. Birta Dís GK er með
4,9 tonn í einum róðri.
Allir bátarnir sem eru nefndir að
ofan eru allir á línu.
Ef við kíkjum á netabátana og
byrjum á Bergvík GK þá er hún með
45 tn. í sjö og mest 10,5 tonn í róðri.
Erling KE 136 tn. í sjö. Grímsnes
GK 86 tn. í átta og mest 20,2 tonn.
Maron GK 65 tn. í átta og mest tólf
tonn. Þorsteinn ÞH 50 tn. í sex og
mest fjórtán tonn. Halldór Afi GK 27
tn. í sjö róðrum og Hraunsvík GK 22
tn. í sjö. Allir netabátarnir landa í
Sandgerði nema Hraunsvík GK sem
er í Keflavík og Erling KE sem er í
Grindavík og Keflavík.
Dragnótabátarnir hafa fiskað vel.
Sigurfari GK með 78 tn. í sex og mest
28 tonn. Siggi Bjarna GK 73 tn. í sex
og mest 18,3 tonn, Benni Sæm GK 65
tn. Í sex og mest átján tonn. Aðal-
björg RE 22 tn í fjórum róðrum.
Aðalbjörg RE hefur nokkra sérstöðu
meðal dragnótabátanna. Því að á
meðan hinir bátarnir eru með stór-
an hluta af afla sínum þorsk, þá er
Aðalbjörg RE að mestu að eltast við
kolann og t.d. af þessum 22 tonnum
er þorskur aðeins 5,4 tonn. Ýsa 5,7
tonn og koli um átta tonn af aflanum.
Enda er kvótastaða Aðalbjargar RE
mjög sterk í kolanum. Hún er með
um 116 tonna úthlutaðan kvóta í
þorski en í kola 159 tonn. Búið er
að millifæra á bátinn meiri kvóta
og er þá þorskurinn um 180 tonn en
kolinn um 390 tonn svo þetta skýrir
að miklu leyti af hverju Aðalbjörgin
RE fer meira í kolann enn þorskinn.
Og jú kolinn er líka verðmeiri en
þorskurinn en alveg hundleiðinlegt
að gera að honum. Þegar undir-
ritaður var sjálfur á sjónum og við
lentum í kolanum þá kallaði ég hann
alltaf sápu, t.d sólkolinn, þótt hann
sér verðmætur, þá var hann sleipur
eins og sápa.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
Bæjarhátíðir og
brennur til skoðunar
í Suðurnesjabæ
Bæjarráð Suðurnesjabæjar hefur
samþykkt að fela ferða-, safna- og
menningarráði að fjalla um og gera
tillögur um fyrirkomulag bæjar-
hátíða í Suðurnesjabæ eftir árið
2019. Einnig á ráðið að fjalla um
fyrirkomulag áramótabrenna.
Í dag eru tvær bæjarhátíðir, ann-
ars vegar Sólseturshátíð í Garði og
hins vegar Sandgerðisdagar. Að auki
hafa verið áramótabrennur í báðum
sveitarfélögum í mörg ár.
Þá var samþykkt að fela bæjarstjóra í
samráði við mannauðsstjóra og starfs-
fólk að gera tillögu um árlegan fögnuð
starfsmanna eftir árið 2019.
Tillögur eiga að berast bæjarráði eigi
síðar en fyrir lok ágúst 2019.
Byggðir verði tveir
ungbarnaleikskólar
Fræðsluráð Suðurnesjabæjar leggur
til að skoðaður verði sá kostur að
byggðir verði ungbarnaleikskólar í
báðum byggðarkjörnum sveitarfélags-
ins enda sýna tölur að þörfin er fyrir
hendi. Þetta kemur fram í fundar-
gerð ráðsins frá síðasta fundi þess.
Þar var tekið fyrir minnisblað Róberts
Ragnarssonar um ungbarnaleikskóla
og minnisblað Magnúsar Stefánssonar
af fundi um leikskólann Sólborg.
Þá leggur fræðsluráð áherslu á að
inntökureglur á leikskólum sveitar-
félagsins verði samræmdar. Fræðslu-
ráð bendir á að litið verði gagnrýnum
augum á viðmiðunarreglur um rými
á hvert barn með þarfir nútímaskóla-
starfs á leikskólum í huga, einnig út
frá lýðheilsufræðilegum sjónarmiðum
barna og starfsfólks.
S TA R F S S T Ö Ð :
K E F L AV Í K
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
2 4 . M A R S
Isavia óskar eftir að ráða aðstoðarmann í flugturn á
Keflavíkurflugvelli. Helstu verkefni eru miðlun flug-
heimilda til flugmanna, vöktun og úrvinnsla skeyta
í flugstjórnarkerfi. Skráning í gagnagrunna, tölfræði
og önnur verkefni frá stjórnendum.
Nánari upplýsingar veitir Bjarni Páll Tryggvason,
deildarstjóri, á netfangið bjarni.tryggvason@isavia.is.
Hæfniskröfur:
• Stúdentspróf eða sambærileg menntun
• Tölvukunnátta og góður skrifhraði
á tölvu æskilegur
• Mjög góð enskukunnátta
(lágmark ICAO level 4)
• Nákvæm og öguð vinnubrögð
• Reglusemi og snyrtimennska
A Ð S T O Ð A R M A Ð U R Í F L U G T U R N
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
Vegna kröfu reglugerðar um flugvernd þurfa umsækjendur að fylla út og skila inn umsókn vegna
bakgrunnsskoðunar lögreglu og vera með hreint sakavottorð. Nánari upplýsingar er að finna á isavia.is.
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af góðu ferðalagi þeirra
sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið. Isavia ber Jafnlaunamerkið með stolti enda
er það staðföst trú okkar að launaákvarðanir skuli ávallt byggja á faglegum og málefnalegum rökum.
Dragnótabáturinn Aðalbjörg RE hefur
verið á kolaveiðum að undanförnu.
11FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 14. mars 2019 // 11. tbl. // 40. árg.