Víkurfréttir - 02.05.2019, Blaðsíða 4
Bremsutilboð!
HEKLA Reykjanesbæ | Njarðarbraut 13 | 260 Reykjanesbæ | Sími: 590 5090
Þegar sentimetrarnir skipta máli!
Það er mikilvægt öryggisatriði að hafa bremsurnar á bílnum í lagi.
HEKLA og þjónustuaðilar um land allt taka höndum saman til að tryggja öryggi ökumanna
þegar ekið er inn í sumarið og býður bremsutilboð. Bremsutilboðið felur í sér 15% afslátt af
bremsuvarahlutum og 10% afslátt af vinnu. Bókaðu tíma hjá HEKLU Reykjanesbæ í síma
590 5090 eða renndu við.
Hlökkum til að sjá þig!
15% afslátturaf bremsuvarahlutumog 10% afsláttur af vinnu!
Dragnótabátarnir hafa fiskað mjög vel
Núna má segja að útgerð hérna á Suðurnesjunum sé komin í fullan gang
aftur eftir gott stopp um pásknna. Þó hafa nokkrir línubátanna farið í
burtu en nokkur fjöldi af bátum er þó ennþá eftir hérna fyrir sunnan.
Allir stóru línubátarnir hafa verið að landa í heimahöfn sinni Grindavík.
Sighvatur GK er kominn með 398
tonn í 4 róðrum og mest 135 tonn.
Páll Jónsson GK er kominn með 364
tonn í 5 róðrum og mest 109 tonn.
Fjölnir GK 339 tonn í 4 og mest 112
tonn. Jóhanna Gísladóttir GK 250
tonn í þremur róðrum. Kristín GK
250 tonn í þremur og Hrafn GK
224 tonn í 4. Sturla GK 219 tonn
í þremur og Valdimar GK 172 tonn
í 4. Auður Vésteins SU 126 tn í 19.
Báturinn fór á flakk norður en er
kominn aftur og hefur verið að
landa í Grindavík. Sama má segja
um Véstein GK sem er með 109 tn í
17 róðrum, hann fór norður og er
kominn aftur. Óli á Stað GK 108 tní
15. Gísli Súrsson GK 88 tn í 14, báðir
að landa í Grindavík og Sandgerði.
Indriði Kristins BA frá Tálknafirði 74
tn. í 12 en hann hefur verið að landa
í Sandgerði og í Grindavík.
Hafdís SU er með 36 tn. í sjö róðrum.
Hafdís SU er gerður út af Eskju ehf. á
Eskifirði og eini báturinn sem Eskja á
sem gerir út á bolfiskveiðar. Eskja er
aðalega í útgerð á uppsjávarskipum
og gerir út þrjú stór uppsjávarskip.
Guðrún Þorkelsdóttir SU, Aðalstein
Jónsson SU og Jón Kjartansson SU.
Um 1700 tonna kvóti er á Hafdísi SU
og veiðir áhöfnin hluta af þessum
kvóta og allur aflinn af bátnum fer
á fiskmarkað, restin af kvótanum
er leigður út og t.d voru 150 tonn
leigð vestur á bát sem heitir Ásdís
ÍS. Sá bátur var eitt sinn gerður út
frá Sandgerði og hét þar Örn GK.
Guðbjörg GK er men 64 tn. í 9, Dóri
GK 56 tn. í 12 róðrum, Sævík GK 99
tn. í 14, Von GK 50 tn. í 13 og Steinun
HF 45 tn. í 11.
Dragnótabátarnir hafa fiskað mjög
vel. Siggi Bjarna GK er með 203 tn.
í 14 róðrum og er næst aflahæstur
dragnótabátanna á landinu þegar
þetta er skrifað. Sigurfari GK er með
193 tn. í 14 róðrum, Benni Sæm GK
181 tonn í 14 sömuleiðis og Aðalbjörg
RE 107 tn. í 11 róðrum.
Grásleppubátarnir eru orðnir
nokkrir og eru flestir þeirra á
veiðum utan við Sandgerði. Tjúlla
GK er með 17 tn. í 13 róðrum og þar
af 14,3 tonn af grásleppu. Guðrún
Petrína GK er með 16 tn. í 10 og þar
af 10,6 tonn af grásleppu. Elli Jóns ÍS
sem er nýr bátur var með 423 kíló í
einni löndun. Addi afi GK er með 17,4
tonn í 13 róðrum og þar af 13 tonn af
grásleppu. Bergvík GK 15 tn. í 9 og
þar af 10 tonn af grásleppu. Guðrún
GK 14,6 tn. í 14 og þar af 13 tonn af
grásleppu. Svala Dís KE var svo að
hefja veiðar og er búinn að landa 4
tonnum í 4 róðrum.
Í Grindavík er Tryllir GK með 8,3
tonn í 8 róðrum og þar af 7,3 tonn
af grásleppu.
Og aðeins meira um loðnuna. Síð-
asti pistill fjallaði eins og þið kanski
munið um fyrsta bátinn og fyrstu
verksmiðjuna sem tók á móti loðnu.
Reyndar var fyrirsögnin á pistlinum
doldið ruglandi því þar stóð „upphaf
veiða og vinnslu á loðnu í Sandgerði“.
Þessi fyrirsögn var ekki kominn frá
mér heldur ristjórn Víkurfrétta.
Frekar hefði þetta átt að vera „upp-
haf veiða og vinnslu loðnu á Íslandi“,
því Árni Magnússon GK var fyrsti
báturinn á Íslandi til þess að veiða
loðnu á Íslandi og verksmiðjan í
Sandgerði var sú fyrsta á íslandi til
þess að bræða loðnu.
En greinilegt er að lesendur þóttu
pistilinn síðasti ansi forvitnilegur og
áhugaverður því ég fékk þó nokkur
viðbrögð við honum og er það mikið
gleðiefni fyrir mig að lesendur hafi
áhuga á svona aftur í tímann fróðleik
eins og ég kem með annaðslagið.
AFLAFRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
Gísli Reynisson
gisli@aflafrettir.is
AFLA
FRÉTTIR
SUÐUR MEÐ SJÓ
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
... og fleiri veitur væntanlegar
Kaupa hraða-
myndavél og vilja
aukið eftirlit lög-
reglu í Vogum
Sveitarfélagið Vogar hefur samþykkt
að festa kaup á nýrri færanlegri
hraðamyndavél sem sett verður upp
í sveitarfélaginu. Ráðist er í kaupin
í framhaldi af hraðamælingum í
Vogum í marsmánuði en niðurstaða
þeirra mælinga er óásættanlegur
hraðakstur í sveitarfélaginu þar sem
meðalhraði var langt yfir leyfilegum
hámarkshraða.
„Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leiti
kaupin á færanlegu tæki og felur
bæjarstjóra að gera viðauka fyrir
næsta fund bæjarráðs.
Í ljósi framlagðra gagna um hrað-
akstur, fer bæjarráð fram á aukinn
sýnileika og eftirlit lögreglu með
hraðakstri í Sveitarfélaginu Vogum,“
segir í afgreiðslu bæjarráðs Sveitar-
félagsins Voga.
Færa til hámarks-
hraða á Suður-
strandarvegi við
Grindavík
Bæjarráð Grindavíkur hefur tekið
fyrir tillögu frá Vegagerðinni að
tilfærslu á hámarkshraða á Suður-
strandarvegi austan Þórkötlustaða-
vegar. Í dag er þetta þannig að frá
þéttbýlismörkum er 70 km/klst há-
markshraði ca. 40m austur fyrir
Þórkötlustaðarveg.
Tillagan er að með tilliti til veglínu
og vegna nálægðar vegamóta við
Þórkötlustaðarveg sé rétt að færa
þessi mörk austar og að þeim stað
sem framkvæmdir við nýjan Suður-
strandarveg hófust árið 2005 um
1500 m austan við Þórkötlustaðarveg.
Bæjarráð gerir ekki athugasemdir
við tillöguna.
4 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.