Víkurfréttir - 02.05.2019, Blaðsíða 1
Krossmóa 4 | Reykjanesbæ
Opnunartími
mán.–fös. frá 9–20
lau.–sun. frá 11–18
Lambalærvöðvi
Í hvítlauks pipar marineringu
1.799KR/KG
ÁÐUR: 2.998 KR/KG
Rauð vínber
399KR/KG
ÁÐUR: 798 KR/KG
Grillsagaður
frampartur
699KR/KG
ÁÐUR: 1.398 KR/KG
Kynntu þér helgartilboð Nettó!
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 2. - 5. maí
VERÐ-
SPRENGJA!
-50% -50%
-40%
SUNNUDAGINN 5. MAÍ KL. 20:30
SUÐUR MEÐ SJÓ
Margrét Knútsdóttir er gestur næsta þáttar af Suður með sjó.
Margrét gegnir því göfuga hlutverki að vera ljósmóðir,
fyrsta manneskjan sem barnið yfirleitt sér þegar það kemur í heiminn.
Ekki missa af áhugaverðu viðtali í þættinum
Suður með sjó á sunnudagskvöld á Hringbaut.
SUÐUR MEÐ SJÓ
Í HLAÐVARPI VÍKURFRÉTTA
... og fleiri veitur væntanlegar
Aðstandendur og
vinir Gísla Þórs
Þórarinssonar
sem Gunnar Jó-
hann Gunnarsson,
hálfbróðir hans er
grunaður um að
hafa myrt, hafa stofnað styrktar-
reikning til að safna fyrir kostnaði
sem fylgir því að flytja jarðneskar
leifar hans til Íslands.
Atburðurinn átti sér stað í smá-
bænum Mehamn í Finnmörku í
Norður Noregi aðfaranótt síðasta
laugardags. Þeir eru báðir frá Suður-
nesjum. Gunnar Jóhann var í vikunni
dæmdur í fjögurra vikna gæsluvarð-
hald og einangrunarvist. Hann sagði
í færslu á Facebook skömmu eftir
atburðinn að hann hafi framið sví-
virðilegan glæp en um slys hafi verið
að ræða.
Bankareikningurinn sem hefur verið
stofnaður er í nafni Hans Þórðar-
sonar, bróður Gísla, en númerið er
0542-14-000566, kt. 031271-5229.
Styrktarreikningur
stofnaður fyrir Gísla
„Ég segi stundum við verðandi
mæður að hætta að googla og leggja
frá sér tölvuna. Það getur stundum
ruglað þær og valdið þeim kvíða
þegar þær eru að leita sér upplýsinga
á vefnum. Það eru breyttir tímar en
áður fékkstu kannski þessar sömu
upplýsingar beint frá mömmu þinni
eða tengdamömmu“. Þetta segir
Margrét Knútsdóttir, ljósmóðir á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja. Hún
er gestur okkar í þættinum Suður
með sjó sem sýndur verður á sjón-
varpsstöðinni Hringbraut og á vf.is
á sunnudagskvöld kl. 20:30.
Margrét leggur einnig áherslu á að
nýbakaðar mæður slaki aðeins á
þegar kemur að samfélagsmiðlum
og þær séu ekki sífellt að rjúfa augn-
sambandið milli móður og barns með
því að stinga snjallsímanum þar á
milli til að taka myndir.
Fæðingum á fæðingardeildinni á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja í Reykja-
nesbæ hefur fækkað mikið frá því sem
var áður. Fæðingar voru áður um 300
á ári en eru í dag um 100. Það skýrist
af því að þær konur sem fæða hér
suðurfrá eru ekki í áhættuhópi og vilja
fæða á náttúrulegan hátt. Verðandi
mæður sem eru í áhættuhópi þurfa
hins vegar að fæða á Landspítalanum.
„Já, við græjum þetta bara sjálfar
þegar um eðlilegar fæðingar er að
ræða en ef eitthvað kemur upp á
þá erum við í góðu sambandi við
Landsspítalann,“ segir Margrét m.a.
í áhugaverðu viðtali við Suður með
sjó á sunnudagskvöld.
Tölvur og samfélagsmiðlar
trufla verðandi mæður
- segir Margrét Knútsdóttir ljósmóðir á HSS í viðtali í sjónvarpsþættinum Suður með sjó
Margrét Knútsdóttir ljósmóðir með
glænýjan Grindvíking í fanginu.
Listahátíð barna í Reykjanesbæ
verður sett fimmtudaginn 2. maí
en á laugardag 4. maí sameinast
hátíðin fjölskyldudegi í bæjar-
félaginu. Skemmtilegar list-
sýningar sem leikskólabörn og
grunnskólabörn hafa unnið verða
opnaðar í Duus-húsum þar sem
lögð er áhersla á að vinna með
efni sem fer til endurvinnslu.
Þá verður mjög fjölbreytt dagskrá
á laugardaginn 4 . maí en hægt
er að sjá hana í Víkurfréttum
en einnig á Facebook síðu Lista-
hátíðar barna í Reykjanesbæ.
Forseti Íslands mun m.a. skoða
sýningarnar í Duus. Guðlaug Mar-
ía Lewis, deildarstjóri menningar-
mála Reykjanesbæjar kíkti inn í
býflugnabú barnanna en það er
einn af listmunum á sýningu leik-
skólabarnanna en búið er gert úr
klósettpappírshólkum.
VF-mynd: Páll Ketilsson
Gulla í býflugnabúinu
býður á barnahátíð
fimmtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M ■ A Ð A L S Í M A N Ú M E R 4 2 1 0 0 0 0 ■ A U G L Ý S I N G A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 1 ■ F R É T T A S Í M I N N 4 2 1 0 0 0 2