Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.05.2019, Blaðsíða 17

Víkurfréttir - 02.05.2019, Blaðsíða 17
Undir Vogastapa austanverðum, skammt frá Vogum á Vatnsleysuströnd, er lítið undirlendi sem hefur að geyma forvitnilegar minjar frá fyrri tíðar búsetu og atvinnu- háttum. Þetta er einn af þessum stöðum á Reykjanesskaga sem fáir hafa gefið gaum, þrátt fyrir að vera mjög áhuga- verður. Þarna er að finna tóftir bæja, sem voru bæði gras- og útvegsbýli og í hólma skammt þar undan eru vel greinilegar rústir gamallar verstöðvar en útræði var stundað frá þessum stað um aldir og heitir þar Hólma- búðir. Útgerð frá Hólmabúðum mun hafa verið í miklum blóma um miðja 19. öldina og voru þá allt að 18 skip gerð út þaðan. Má ætla að um 140-150 manns hafi verið þar á vetrarvertíð- inni. Enn eru leifar frá þessari mann- vist vel sjáanlegar, ekki síst þegar þær eru skoðaðar ofan af Stapanum eða úr lofti en þessar myndir tók ég með flygildi þann 10. mars síðastliðinn. Gera má ráð fyrir að sjávarrót og landeyðing hafi eytt hluta þeirrar merkilegu sögu sem þarna er að finna. Um þessa búsetu er m.a. getið í bók- inni „Mannlíf og mannvirki í Vatns- leysustrandarhreppi“ eftir Guðmund Björgvin Jónsson sem kom út árið 1987. Guðmundur Björgvin stóð sjálfur að þeirri útgáfu og var tíður gestur hjá okkur í Stapaprenti meðan verkið var í vinnslu. Alltaf var gaman að hitta Guðmund og heyra sögur af Vatnsleysuströndinni enda var hann afar skemmtilegur náungi og gríðar- lega fróður um söguefnið. Hjá honum heyrði ég fyrst af Hólmabúðum og bæjunum undir Stapanum. Þá er vert að minnast á bókina „Strönd og vogar“ eftir Árna Óla sem kom út 1961. Bókin sú er uppfull af fróðleik af Vatnsleysuströndinni. Þar skrifar Árni m.a. um Vogastapann og Gullkistuna eins og fiskimiðin undir Stapanum voru nefnd en þau þóttu bera af öðrum miðum hvað fengsæld varðar. Einn kafli bókarinnar fjallar um gömlu veiðistöðina í Hólminum og bæina undir Stapanum. Er m.a. minnst á prammann sem stendur hálfur upp á einu skerinu og sjá má á meðfylgjandi myndum: „Og á skeri þar rétt fyrir innan er ferlíki nokkurt, hálft í sjó og hálft uppi á skerinu. Þetta er einn af inn- rásarprömmum þeim, er bandamenn smíðuðu til að flytja á herlið sitt til Frakklands 1944. En hvernig stendur á því að slíkt farartæki er komið hér inn á Vogavík? Sú er saga til þess, að Óskar heitinn Halldórsson keypti nokkra af þessum stóru prömmum eftir stríðið og lét draga þá hingað. Síðan hafa þeir allir, nema þessi eini, verið notaðir til hafnargerðar á þann hátt, að þeir hafa verið fylltir með steinsteypu og síðan sökkt sem stein- kerjum, þar sem hafnargarðar hafa verið gerðir.“ Um mannvirkin í Hólminum segir Árni meðal annars: „Má þar sjá leifar af miklum mannvirkjum. Fyrst er þar grunnur undan stóru húsi, sem líklega hefur verið fisktökuhús og íbúðarhús umsjónarmannsins, sem þarna var. Þetta hús hefir verið um fimmtán metrar á lengd og breitt að því skapi. Þar hjá er grunnur undan öðru húsi, og þar mun hafa verið salt- húsið, sem tók 2000 tunnur af salti. Steinstéttir eru umhverfis þessi hús, en hvort það hafa verið gangstéttir, eða ætlaðar til að breiða á þær fisk, verður ekki sagt.“ Á meðal þeirra sem gerðu út frá Hólm- inum var Haraldur Böðvarsson, einn af kunnustu útgerðarmönnunum við Faxaflóann á sínum tíma. Eftir 1880 fer að draga úr útgerð frá staðnum og um aldamótin munu húsin, sem að ofan eru nefnd, hafa verið rifin. Árni Óla segir einnig frá bæjunum á undirlendinu meðfram Stapanum en þeir hétu Brekka og Stapabúð. Síðarnefnda býlið mun hafa farið í eyði eftir 1896. Síðasti ábúandinn á Brekku bjó þar fram til 1930 en hafði þó býlið undir talsvert lengur. Ljósmyndir: Ellert Grétarsson Texti af www.elg.is PERLUR SUÐURNESJA elg@elg.is MYNDIR Vogavík-Hólmabúðir PE RL UR SU ÐU RN ES JA 17MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 2. maí 2019 // 18. tbl. // 40. árg.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.