Fréttir - Eyjafréttir - 19.07.2012, Page 14
Meistaramót Golfklúbbs Vestmanna -
eyja fór fram í síðustu viku. Byrjað
var að spila á þriðjudag þegar barna-
og unglingaflokkar hófu leik.
Flokkar fullorðinna byrjuðu á mið -
vikudag, en þeir léku fjóra 18 holu
hringi og öldungar á fimmtudag og
léku þrjá hringi.
Um 30 þátttakendur voru í barna-
og unglingaflokki en í keppni full -
orðinna voru keppendur rúmlega
sextíu sem er svipaður fjöldi og
verið hefur á síðustu árum.
Hið ágætasta veður var alla móts-
dagana, utan þess að hvasst var af
norðvestri á föstudag og gerði það
keppendum nokkuð erfitt fyrir enda
er norðvestanáttin sú alerfiðasta á
golfvellinum, mjög misvinda, og
ekki á vísan að róa með í hvaða átt
vindurinn blæs. Þann dag sáust líka
nokkuð háar tölur í flestum
flokkum.
En úrslit urðu þessi í mótinu:
Kvennaflokkur
Þar sem örlögin hafa hagað því
þannig til að aðeins örfáar konur
hafa skráð sig til keppni í meistara -
mótinu á undanförnum árum, hefur
verið brugðið á það ráð að leika
aðeins í einum kvennaflokki, með
og án forgjafar. Reyndar tóku sex
konur þátt í mótinu í ár sem er 100%
aukning frá fyrra ári og eru
gleðitíðindi. Í kvennaflokki var
keppt bæði með og án forgjafar og
úrslit þessi:
Með forgjöf:
1. Katrín Harðardóttir 299 högg
2. Katrín Magnúsdóttir 321 högg
3. Karin H. Hafsteinsdóttir 323 högg
Án forgjafar:
1. Katrín Harðardóttir 387 högg
2. Karin H. Hafsteinsdóttir 391 högg
3. Katrín Magúnsdóttir 405 högg
Það var einkar ánægjulegt að
Katrín Harðardóttir, dóttir þeirrar
ágætu golfkonu, Sjafnar Guðjóns -
dóttur, skyldi hreppa kvennameist -
aratitilinn, 20 árum eftir að móðir
hennar sigraði í þessari keppni, en
Sjöfn heitin gerði það einmitt árið
1992. Katrín var vel að þessum sigri
komin, lék áberandi best þeirra
þriggja sem blönduðu sér í baráttuna
um efstu sætin.
Öldungaflokkur, 70 ára og eldri
Í þessum flokki er keppt bæði með
og án forgjafar og þessir efstir:
Með forgjöf:
1. Ólafur M. Kristinsson 223 högg
2. Sigurgeir Jónsson 239 högg
3. Ársæll Lárusson 243 högg
Án forgjafar:
1. Ólafur Kristinsson 247 högg
2. Ársæll Lárusson 261 högg
3. Sigurgeir Jónsson 275 högg
Sá gamalreyndi kylfingur, Ólafur
Kristinsson, sem mun vera elsti
virki fél agi í GV, gekk í klúbbinn
1954, átti ekki í miklum erfiðleikum
með að innbyrða sigurinn, þrátt fyrir
háan aldur, enda er hann í mjög
góðri æfingu, leikur nánast á hverj -
um degi allan ársins hring.
Öldungaflokkur 55 – 69 ára
Í þessum öldungaflokki er sömu -
leiðis keppt bæði með og án forgja-
f ar.
Með forgjöf:
1. Bergur M. Sigmundsson 217 högg
2. Gunnar K. Gunnarsson 222 högg
3. Ragnar Guðmundsson 224 högg
Án forgjafar:
1. Atli Aðalsteinsson 242 högg
2. Magnús Þórarinsson 245 högg
3. Ríkharður Hrafnkelsson 250 högg
Atli, sem er með lægstu forgjöfina
af öldungum í GV, var nokkuð
öruggur með þennan sigur, þó svo
að Magnús saumaði að honum undir
lokin.
3. flokkur karla
1. Ágúst Emil Grétarsson 347 högg
2. Sigfús G. Ágústsson 361 högg
3. Sævald P. Hallgrímsson 373 högg
Ágúst Emil, sem er kornungur
kylfingur, sigraði þarna með tals -
verðum yfirburðum, lék reyndar
ekki vel fyrsta daginn en mjög vel
hina dagana þrjá og sigraði verð -
skuldað.
2. flokkur karla
1. Ólafur Guðmundsson 347 högg
2. Benóný Friðriksson 352 högg
3. Sigurður Óli Guðnason 359 högg
Ólafur var í forystu frá fyrsta degi,
lék best allra í rokinu á föstudag og
átti sigurinn fyllilega skilið.
1. flokkur karla
1. Vignir Stefánsson 298 högg
2. Brynjar S. Unnarsson 299 högg
3. Bjarki Guðnason 323 högg
Í þessum flokki voru hvað mestar
sviptingar. Brynjar Smári var með
forystu eftir fyrstu þrjá hringina,
eftir ótrúlega góðan hring á 2. degi,
69 högg, einu undir pari vallarins.
Gaf svo eftir í lokin og hinn stór -
efni legi kylfingur, Vignir Stefáns -
son, landaði eins höggs sigri. Þá var
ekki síðri baráttan um annað sætið
þar sem Bjarki var einu höggi betri
en Hlöðver Guðnason.
Meistaraflokkur
Í þessum flokki keppa þeir sem eru
undir 4,4 í forgjöf og að þessu sinni
voru keppendur sex talsins. Reyndar
mega þeir kylfingar, sem eru undir 7
í forgjöf keppa í meistaraflokki, en
að þessu sinni ákváðu þeir að reyna
sig í 1. flokki. Örlygur Helgi, sem
hefur hampað meistaratitlinum
undanfarin ár, var ekki í teljandi
vandræðum með hann að þessu
sinni, sigraði mjög sannfærandi og
undirstrikaði yfirburði sína á síðasta
degi þegar hann lék á 67 höggum,
eða 3 undir pari vallarins.
En um annað sætið varð mikil
barátta. Hallgrímur Júlíusson var
með fjögurra högga forystu á Helga
Anton Eiríksson, kylfing úr GR sem
einnig leikur með GV, en tapaði
henni niður á síðasta degi og voru
þeir jafnir að leik loknum á 295
höggum. Urðu því að fara í bráða-
bana þar sem Hallgrímur hafði
betur, og úrslitin því þessi:
1. Örlygur Helgi Grímsson 285 högg
2. Hallgrímur Júlíusson 295 högg
3. Helgi Anton Eiríksson 295 högg
Mjög margir kylfingar eru með
svokallaða aukaaðild að Golfklúbbi
Vestmannaeyja, sem þýðir að þeir
eru félagar í öðrum golfklúbbi en
greiða einnig ákveðið árgjald til GV,
sem veitir þeim rétt til þátttöku í
mótum félagsins. Þetta skýrir þann
fjölda kylfinga sem eru skráðir sem
félagar í öðrum golfklúbbum en taka
þátt í meistaramótinu, sem fullgildir
meðlimir í GV. Þessi tilhögun eykur
mjög á keppni í meistaramótum sem
og öðrum mótum og hefur jákvæð
áhrif á allt keppnishald. Að sjálf-
sögðu njóta kylfingar úr GV sömu
réttinda séu þeir skráðir með
aukaaðild að öðrum golfklúbbum
uppi á fastalandinu.
Sigurgeir Jónsson
sigurge@internet.is
°
°
Fréttir / Fimmtudagur 19. júlíí 201214
Meistaramót Golfklúbbs Vestmannaeyja 2012:
Örlygur meistari enn og aftur
- Katrín HarÝardóttir meistari kvenna - Elsti félagsmaÝur GV sigraÝi í Öldungaflokki 70 ára og eldri
Úrslit í barna- og
unglingaflokkum:
Strákar 13 til 14 ára
1. Daníel Ingi Sigurjónsson
2. Lárus Garðar Long
3. Franz Sigurðsson
Strákar 10 til 12 ára
1. Steinþór V. Óskarsson
2. Guðlaugur G. Guðmundssson
3. Daníel M. Sigmarsson
Strákar yngri en 10 ára
1. Karl Örlygsson
2. Hannes Haraldsson
3. Arnar Gauti Egilsson
Stelpur 13 til 14 ára
1. Ásta B. Júlíusdóttir
2. Elínborg E. Sigurfinnsdóttir
3. Hulda S. Hilmarsdóttir
Stelpur 10 til 12 ára
1. Silja Gunnarsdóttir
2. Eva Aðalsteinsdóttir
3. Inga Birna Sigursteinsdóttir
Nokkrir af verðlaunahöfum í
barna- og unglingaflokki ásamt
þjálfurum sínum, Óskari
Jósúasyni, Hallgrími Júlíussyni
og formanni GV, Helga
Bragasyni.
VESTMANNAEYJAMEISTARINN Örlygur Helgi Grímsson, ásamt þeim Hallgrími Júlíussyni, sem varð
annar, Helga Antoni Eiríkssyni, sem varð þriðji og Helga Bragasyni, formanni GV. Með þeim á myndinni
eru svo dætur Helga Antons.