Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Page 4
°
°
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014
Um helgina frumsýndi Leikfélag
Vestmannaeyja leikritið Don´t
stop believin við góðan orðstír. Þar
sýna leikararnir hver á fætur
öðrum stórleik. Eitt af aðalhlut-
verkunum er í höndum Unu
Þorvaldsdóttur. Henni ferst
hlutverkið vel úr hendi. Hún er
einnig fantagóð söngkona og tók
m.a. þátt í Söngkeppni framhalds-
skólanna nú á dögunum ásamt
Helgu Sóleyju Aradóttir. Una er
Eyjamaður vikunnar að þessu
sinni.
Nafn: Una Þorvaldsdóttir.
Fæðingardagur: 23 mars 1997.
Fæðingarstaður: Vestmannaeyjar.
Fjölskylda: Ég á tvo pabba sem
heita Árni Þór Gunnarsson og
Þorvaldur Guðmundsson, mömmu
sem heitir Hrund Óskarsdóttir og
síðan á ég sjö systkini.
Draumabíllinn: Blá Bjalla, annars
er ég voða lítið fyrir bíla haha.
Uppáhaldsmatur: Humarsúpan hjá
mömmu, hún er best í heimi.
Versti matur: Hákarl er það versta
sem ég hef smakkað.
Uppáhalds vefsíða: Facebook og
youtube held ég bara.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Allskonar tónlist, er samt
mikið fyrir popp og gömul lög.
Aðaláhugamál: Söngur er númer
eitt.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Beyonce, hún er flottust!
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Veit ekki með
upphalds iþróttamann en
iþróttafélag er ÍBV og Arsenal.
Ertu hjátrúarfull/ur: Já, frekar.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Ég var í fótboltanum en þurfti að
hætta útaf leikhúsinu, alltaf æfingar
á sama tíma og leikir um helgar
sem ég komst ekki á. Annars fer ég
stundum út að hlaupa.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Sakamálaþættir og the Voice.
Er þetta fyrsta verkið sem þú
leikur í hjá L.V: Nei, ég hef bæði
verið með í Grýla gerir uppreisn og
Grease, minnir að í Grýla gerir
uppreisn hafi ég verið um 10-12
ára, sagði einhverja eina línu haha...
Síðan var ég beðin um að vera með
í Grease til þess að syngja eitt lag
og vera með í bakröddum.
Hvort er svo skemmtilegra að
syngja eða leika: Syngja, en annars
er líka mjög gaman að leika.
Þekktirðu þessa tónlist áður? Já,
eiginlega öll lögin, það var svona
eitt og eitt inná milli sem ég þekkti
ekki alveg.
Hver er draumurinn: Að verða
söngkona, jafnvel leikkona.
Eitthvað að lokum: Allir að skella
sér á Dont stop believen! Pantið
miða í síma 852-1940!
Ég vil byrja að þakka bróður
Kjartani Vídó fyrir að afhenda mér
kyndilinn og um leið hrósa honum
fyrir frábæran disk í síðasta
tölublaði. Það skal samt tekið fram
að Kjartan er barn sem aðeins
móðir getur elskað.
Gratíneraður plokkfiskur
með Bernaise.
Hráefni :
• 600 g hvítur fiskur, til dæmis
þorskur eða ýsa.
• ½ l mjólk, þessi bláa.
• 3-4 soðnar kartöflur.
• 1 laukur.
• ½ dl hveiti.
• Pínu olía.
• Salt og pipar eftir smekk.
• Nóg af Rúgbrauði og muna að
nota íslenskt smjör.
Úr mjólk og hveiti er gerð uppbökuð
sósa með lauk og pipar. Fiskurinn er
settur út í mjólkursósuna ásamt
soðnum brytjuðum kartöflum
og hitaður vel í gegn.
Eftir þetta náum við okkur í eldfast
mót og hellum plokkaranum í.
Setjum svo rifann ost yfir og látum
þetta í ofn í ca. 5 mín á 200 gráðum.
Þegar mótið er tekið út er mikilvægt
að skella sósunni á um leið því að
sósan er köld. Þá verður þetta allt
saman alveg ljómandi og sósan
velgist um leið. Meiriháttar matur!
Bernaisesósan.
Hráefni og aðferð.
• 4 eggjarauður.
• 250 gr. smjör.
• 1 msk. Bernaise essence.
• Fáfnisgras, saxað smátt.
• salt og pipar.
Eggjarauðurnar eru þeyttar ásamt
Bernaise essence. Smjör brætt. Þegar
hitastigið er þannig að maður rétt nær
að dýfa fingrinum í er því hellt
varlega út í eggjarauðurnar og þeytt í
stöðugt á meðan. Að lokum er
estragoni bætt við. Sósan smökkuð til
og krydduð með smá salti og pipar
eftir smekk.
Þar hafið þið það gott fólk og verði
ykkur af góðu. Fljótlegt, einfalt og
umfram allt gott. Um leið og ég
þakka fyrir mig ætla ég að rétta
kyndilinn til Betu í íþróttamið-
stöðinni.
Eyjamaður vikunnar
Matgæðingur vikunnar
Draumurinn að verða
söngkona, jafnvel leikkona
Gratíneraður plokkfiskur með Bernaise
Eyjamaður vikunnar er
Una Þorvaldsdóttir
Matgæðingur vikunnar er
Kári Kristján Kristjánsson
Landakirkja
Föstudagur 18. apríl. Föstudag-
urinn langi:
Kl. 11.00. Guðsþjónusta. Félagar úr
leikfélagi Vestmannaeyja lesa úr
píslarsögunni, hópur úr kirkjustarfi
fatlaðra aðstoðar við kertaþátt og
Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Kitty Kovács. Sr. Kristján
Björnsson þjónar fyrir altari.
Sunnudagur 20. apríl. Páska-
dagur:
Kl. 08.00. Hátíðarguðsþjónusta.
Kór Landakirkju syngur undir
stjórn Kitty Kovács. Sr. Guðmundur
Örn prédikar og þjónar fyrir altari.
Að guðsþjónustu lokinni er
morgunverður í safnaðarheimilinu í
boði sóknarnefndar.
Kl. 10.30. Hátíðarguðsþjónusta á
Hraunbúðum. Kór Landakirkju
syngur undir stjórn Kitty Kovács.
Sr. Guðmundur Örn prédikar og
þjónar fyrir altari.
Þriðjudagur 22. apríl:
Kl. 16.00. STÁ (kirkjustarf 6-8 ára)
Kl. 17.00. Æfing og mátun fyrir
fermingarbörn sem fermd verða
laugardaginn 26. apríl.
Miðvikudagur 23. apríl:
Kl. 17.00. NTT (kirkjustarf 9-10
ára).
Fimmtudagur 24. apríl. Sumar-
dagurinn fyrsti:
Kl. 11.00. Foreldramorgunn.
Kl. 20.00. Æfing hjá kór Landa-
kirkju.
Kl. 20.00. Opið hús í KFUM&K-
húsinu.
Hvítasunnu-
kirkjan
Miðvikudagur kl. 20:00 Bæna-
stund, nú stendur Langa fasta yfir
og munum við koma saman til
bæna hvert kvöld fram að páskum
einnig verður lesinn einn passíu-
sálmur Hallgríms Péturssonar eftir
röð hvert sinn.
Fimmtudagur kl. 20:00 Brauðs-
brotning, Lilja Óskarsdóttir talar.
Föstudagurinn langi kl. 14:00
Samkoma, Daníel Steingrímsson
talar. Síðustu Passíusálmarnir lesnir
upp.
Kl. 20:00 Tónleikar í stóra sal með
ýmsum flytjendum.
Laugardagur kl. 20:00 Lofgjörðar
og vitnisburðarstund með léttum
veitingum.
Páskadagur kl 14:00 Hátíðarsam-
koma í stóra salnum, Guðni
Hjálmarsson talar, niðurdýfingar-
skírn og lifandi tónlist, kaffi og með
því eftir samkomu.
Annar í páskum kl 20:00 Sýnum
áttunda þátt úr þáttaröðinni "The
Bible" Svikin, Júdas - fyrir ráðinu.
Þættirnir eru framleiddir af þeim
hjónum Mark Burnett og Roma
Downey. Einstakir þættir sem slegið
hafa öll áhorfsmet víða um heim.
Frítt inn.
Allir hjartanlega velkomnir.
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur 19. apríl 2014
kl. 11 Biblíulestur.
kl. 12 Guðsþjónusta.
Kirkjur bæjarins:
PÁSKARNIR 2014 – viðburðir og opnunartímar.
Eitthvað fyrir alla sem verða í Eyjum um páskahelgina.
Árleg PÁSKAGANGA á páskadag,
gosmynd og málverk Kristleifs
Magnússonar í Safnhúsi. Ný leiksýning
„Don't Stop Believin” í Kviku.
Llifandi tónlist á Vinaminni, á Háalofti
Hallarinnar og víðar.
Einarsstofa Safnahúss: Sýning á
málverkum Kristleifs Magnússonar
skírdag 17. april og laugardaginn 19.
apríl. Opnunartími 13.00 – 16.00 báða
dagana.
Páskaganga í Páskahelli. Páskadagur
20. april kl. 14.00 – Gönguna leiða
Kristján Egilsson og Kristín Jóhanns-
dóttir. Gangan hefst á bílastæðinu við
Eldheima.
Leikfélag Vestmannaeyja – „Don't
Stop Believin“ sýningar miðvikudag,
skírdag, föstudaginn langa og
laugardaginn fyrir páska –upplýsingar
og miðapantanir í síma 852 1940.
Vinaminni – kaffihús laugardaginn 19.
april. Opið til 23.30 - Lifandi tónlist . -
HÖLLIN / Háaloftið opið alla
páskahelgina. Miðvikudagskvöld:
Magnús og Jóhann.
Frá miðnætti Páskadag Ball –
Hljómsveitin SKÍMÓ.
Sæheimar/Fiska- og náttúrugripasafn
opið laugardaginn 29. mars 13.00 –
16.00
Sagnheimar opið skírdag og
laugardaginn fyrir páska 13.00 – 16.00.
Sýning á heimildarmynd Heiðars
Marteinssonar „Gosið og uppbyggingin“
kl. 13.00 báða dagana.
Íþróttamiðstöðin/Sundlaugin er opin
frá 9.00 – 17.00 skírdag, laugardag og
annan í páskum.
Lokað á föstudaginn langa og
páskadag.
Volcano kaffi/Eldkaffi miðvikudag:
Fannar. Frá miðnætti föstudaginn
langa: DJ GAUI. Frá miðnætti páskadag
´80partý DJ-Hlynur.
LUNDINN opið alla páskahelgina
DJ-Höddi.
GLEÐILEGA
PÁSKA!