Fréttir - Eyjafréttir

Eksemplar

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Side 8

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Side 8
° ° 8 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014 Búinn að teikna veitingastað í öðru hverju húsi í Eyjum :: Gamall draumur að rætast :: segir Jón Gunnar Erlingsson matreiðslumeistari :: Opna vorið 2015 Við suðausturenda Básaskers- bryggju við smábatahöfnina hefur risið á ógnarhraða hús. Þar reisa Rib-safari menn veitingahús í samvinnu við aðra, þar á meðal Jón Gunnar Erlingsson, matreiðslumeistara sem kemur til með að reka staðinn. Eyjafréttir kíktu á kauða og tóku stöðuna. „Í þessum töluðum orðum er verið að sækja gluggana í húsið og þá telst það orðið fokhelt. Við ætlum að klára pallinn umhverfis húsið og síðan gerum við hlé á framkvæmd- unum fram á haust,“ sagði Jón Gunnar. „Nú er bara eftir hanna innviðina. Við erum enn að melta það hvað við eigum að gera með staðinn og höfum til dæmis verið í sambandi við Leif Welding, sem er þekktur hönnuður í veitingahúsa- bransanum hér innanlands. En okkar langar þó að finna einhvern sem er nær heimahögunum og þekkir vel til hér í Eyjum til að aðstoða okkur. Þannig að við eigum enn eftir að ákveða í hvaða átt við ætlum með staðinn. Staðurinn á þó eftir að skreyta sig nokkuð sjálfur með þessu einstaka útsýni. Við viljum hafa þetta svolítið hrátt og leyfa náttúru Eyjanna njóta sín. Staðurinn kemur til með að taka á milli 60 og 70 manns í sæti á jarðhæðinni og svo verðum við með koníaksstofu og lítinn sal á efri hæð hússins þannig að við ættum að geta tekið alveg um 100 manns í mat.“ Jón Gunnar segir að einhver hluti hússins verði nýttur í sumar samhliða starfsemi Rib-safari. „Hugmyndin er að bjóða upp á einhver drykkjarföng og einhverja létta rétti. Svo er staðsetningin náttúrulega frábær, þarna framhjá fara flestir ferðamenn og heima- menn á góðvirðisdegi. Við verðum að reyna nýta það eins vel og unnt er í sumar. Eins munum við reyna að herja á þessar stóru helgar eins og goslok, sjómannadag og þjóðhátíð. Þá munum við reyna að nýta í það minnsta pallinn hjá okkur sem er engin smásmíði, tæpir 400 fermetrar,“ sagði Jón Gunnar um komandi sumar. „Ég væri náttúrulega alveg til í að drífa þetta af og eins og staðan er núna gætum við hæglega opnað í sumar en við viljum fekar vanda vel til verka og opnum því 2015. Planið var alltaf að opna þá, framkvæmdin hefur bara gengið vonum framar. Við byrjuðum í enda október á grunninum og húsið hóf að rísa strax eftir áramótin. Með þessa kraftakarla sem strákarnir í Rib-safari eru ásamt mönnum eins og Val Andersen að vinna við bygginguna, var svo sem ekki við öðru að búast.“ Upphafleg hugmynd Rib-safari var að reisa kaffihús með léttar veitingar þar sem þeir gætu sinnt sínum kúnnum en fljótlega vatt hugmyndin upp á sig, „Himmi [Hilmar Kristjánsson] var búinn að segja mér að það stæði til hjá þeim í Rib-safari að reisa þarna veitinga- stað og ég varð strax mjög spenntur. Ég er lærður matreiðslumeistari með 20 ára reynslu innlendis og erlendis og hef alltaf dreymt um að opna minn eigin stað. Ég lærði einnig hótelrekstrarfræði og er með einhverjar diplómur í mannauðs- stjórn. Þannig að ég er kominn með allan pakkann og kem til með að reka þetta 130%. Í fyrstu ætluðu þeir að fá mig inn í þetta sem rekstraraðila en ég sagði þeim strax að ég vildi þá heldur ganga alla leið inn í þetta. Niðurstaðan varð að ég kem inní þetta með 20% hluteign ásamt Einari Birni Árnasyni með önnur 20% og Rib-safari á svo 60%.“ Með mikla reynslu „Á þessum tíma var ég að vinna í eldhúsinu hjá Stebba á Café María og vann þar í ein sex, sjö ár. Þar á undan var ég búinn að vera á flakki og vann á nokkrum flottum stöðum til að mynda í Reykjavík, Austur- ríki, Bandaríkjunum og var t.d. að vinna á Le manor aux quat season í Oxford. Maður tók þennan metnaðarpakka og sótti sér reynslu þegar maður útskrifaðist. En svo kom ég heim og stofnaði fjölskyldu og settist að í Eyjum, að sjálfsögðu. En allan þennan tíma hef ég verið að horfa í kringum mig eftir rétta húsnæðinu til að opna sinn eigin stað. Ég held ég sé búinn að teikna upp veitingastað í öðru hverju húsi í Vestmannaeyjum en hef aldrei látið verða að þessu fyrr en nú,“ sagði Jón Gunnar sem iðar í skinninu af spenningi. Hann segir staðinn, sem enn hefur ekki hlotið nafn, koma til með að vera fyrst og fremst sjávarréttarstað. „Við komum til með að herja á fiskinn en markaðurinn hér í Eyjum, sérstaklega yfir vetrartímann, er mjög harður þannig að við komum nú til með að bjóða einnig upp á eitthvað meira en fiskisteikur.“ Reynum að skapa okkur sérstöðu Að undanförnu hefur heldur betur fjölgað veitingastöðum í Vest- mannaeyjum og gerir enn. Eru menn ekkert smeykir um offram- boð? „Já, þetta er ótrúleg breyting á stuttum tíma. Ég man bara þegar ég var að byrja á Café Maríu þá var það eini veitingastaðurinn. Þetta verður náttúrulega barátta, en það er bara jákvætt. Það sýnir okkur bara að það er bjartsýni í veitinga- mönnum í Eyjum og það jákvæða er að mikið af þeim sem eru að koma og opna hér eru gamlir Eyjamenn að snúa heim,“ sagði Jón Gunnar sem telur samkeppnina bara af hinu góða. „Við verðum bara að reyna skapa okkur einhverja sérstöðu sem dregur kúnnann til okkar frekar en annað og er ég að vinna í því þessa dagana. Við þurfum að reyna að koma því inn hjá fólki að borða fisk þrisvar í viku. Þessi staður á verða upplifun, bæði fyrir bragðlaukana og sálina. Þar hjálpar okkur náttúrulega þessi einstaka staðsetning og útsýnið sem henni fylgir,“ sagði Jón Gunnar og bætti við. „Draumurinn er náttúrulega að Landeyjahöfn fari að virka allan ársins hring. Sem verður einhvern tímann, vonandi, og ég sé alveg fyrir mér mikil sóknarfæri fyrir Vestmannaeyjar sem ferða- mannastað, við þurfum bara að virkja fólkið. Við þurfum að passa okkur að verða ekki bara einhver rútuhringur þar sem fólk kemur að morgni með nesti með sér og er farið á hádegi. Við þurfum að fá flott fólk til að koma með afþrey- ingu hér inn og styrkja þann pakka. Það þurfa allir að taka þátt í því, við veitingamenn sem aðrir.“ sagði Jón Gunnar Erlingsson, matreiðslu- meistari að lokum. Húsið er farið að taka á sig mynd en loka á húsinu og klára það svo fyrir sumarið 2015. Nýverið var tekin ákvörðun um að lækka útsvarið, felld hafa verið niður fasteignagjöld á eldri borgara og íbúar hér eru með þeim ánægðustu á landinu öllu skv. þjónustukönnun Capacent. Góður rekstur undanfarin ár hefur því skilað sér beint til bæjarbúa. Nú hefur Vestmannaeyjabær ákveðið að lækka dagvistargjöldin á leikskólum um 6% sem þýðir að þau verða með því lægsta sem gerist í þeim sveitarfélögum sem við viljum miða okkur við. Ekki er langt síðan að tekin var ákvörðun um að lækka niður- greiðslu til dagmæðra úr 18 mánuðum niður í 15 mánuði. Nú er farið skrefinu lengra og munu niðurgreiðslur geta hafist miðað við 12 mánaða aldur barns, að auki er niðurgreiðslan hækkuð úr 29.750 kr í 40.000 kr á mánuði. Vestmannaeyjar eru frábær staður til að ala upp börn og munu þessar góðu fréttir ekki skemma fyrir þegar kemur að því að velja sér sveitarfélag til að búa í. Lækkun leikskóla- gjalda Óskiljan- leg skemmd- arverk :: Mikið afl þurfti til Lögreglu var tilkynnt um ein eignaspjöll í liðinni viku en um var að ræða skemmdir á styttu sem stóð við húsið Arnardranga. Einnig voru ljós sem lýsa upp húsið skemmd. Er talið að eignaspjöllin hafi verið unnin aðfaranótt 13. apríl síðast- liðinn en ekki er vitað hver eða hverjir hafi verið þarna að verki. Örninn var hins vegar vel njörvaður niður, bæði með boltum og lími og þurfti því talsvert afl til að losa hann af steininum. Lögregla óskar eftir öllum upplýsingum um hugsanlegan geranda eða gerendur. SæÞÓr ÞorBJarnarSon sathor@eyjafrettir.is Trausti hjaltason formaður fræðsluráðs

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.