Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 10
°
°
10 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014
Lionsklúbbur Vestmannaeyja 40 ára:
Lions gaf andvirði 25
einbýlishúsa í gosinu
:: Safna fé fyrir samfélagið auk þess sem þeir leggja alheimsverkefnum lið :: 28 félagar
í Lionsklúbbi Vestmannaeyja :: Hörður Pálsson, formaður og Valdimar Guðmundsson,
gjaldkeri teknir tali
Lionsklúbburinn í Vestmanna-
eyjum hélt á laugardaginn upp á
40 ára afmæli klúbbsins. Saga
klúbbsins er að mörgu leyti
samofin gosinu 1973 en eftir
það gaf Lionshreyfingin allt sem
þurfti til á nýja sjúkrahúsinu
sem opnaði fljótlega eftir gos. Í
kjölfarið var Lionsklúbburinn í
Vestmannaeyjum stofnaður en í
dag eru 28 menn í klúbbnum.
Lionsklúbburinn er góðgerðar-
félag og hefur Sambýlið notið
aðstoðar klúbbsins auk þess
sem hann sinnir öðrum sam-
félagslegum verkefnum.
Blaðamaður Eyjafrétta hitti á þá
Hörð Pálsson, formann Lions-
klúbbsins í Vestmannaeyjum og
Valdimar Guðmundsson, ritara í
félagsaðstöðu klúbbsins í
Vestmannaeyjum, í Arnardrangi
og fékk innsýn inn í starfsemi
félagsins.
„Lionshreyfingin gaf á sínum tíma
allt inn í sjúkrahúsið, tæki og tól,
hnífa og gafla, rúm og allt sem
þurfti til að koma sjúkrahúsinu af
stað eftir gos. Þetta var stærsta gjöf
sem hreyfingin hefur gefið á
heimsvísu og vakti mikla athygli á
sínum tíma enda skilst okkur að
andvirði gjafarinnar hafi verið
andvirði um 25 einbýlishúsa í dag.
Og ef við gefum okkur að
einbýlishús sé á 30 til 35 milljónir
þá sérðu hvað þetta var stór gjöf,“
sagði Hörður þegar hann var
spurður út í upphafið að
Lionsklúbbi Vestmannaeyja. „Í
kjölfarið var svo stofnaður
Lionsklúbbur í Vestmannaeyjum 8.
apríl 1974 og eflaust hefur þessi
gjöf haft eitthvað um það að segja
með stofnun klúbbsins.“
Lionshreyfingin kemur að ýmsum
verkefnum á heimsvísu en klúbbar
um allan heim leggja til fjármagn í
verkefnin. „Allir klúbbar borga
gjald til hreyfingarinnar sem er nýtt
í stærri verkefni á heimsvísu. Lions
hefur t.d. sinnt verkefnum í Malasíu
að undanförnu. Auk þess sinna
klúbbarnir sínu nærumhverfi eins
og við gerum. Við t.d. smíðuðum í
kringum pottinn á Sambýlinu sem
strákarnir í Ufsaskalla gáfu og
tengdum hann. Við byggðum líka
útsýnispallinn á Stórhöfða og svo
húsið yfir hann. Við vorum svo
auðvitað líka á Vigtartorginu þar
sem við smíðuðum í kringum
fiskikörin,“ bætti Valdimar við.
„Á hverju hausti er ákveðið fyrir
hverju á að safna. Þá er farið í
svokallaða fyrirtækjasöfnun þar
sem við sendum út bréf til fyrir-
tækja og fáum styrk til kaupanna.
Sem betur fer njótum við velvildar
fyrirtækja og getum safnað fyrir
tækjum sem nýtast svo í samfé-
laginu. Núna síðast gáfum við t.d.
Slökkviliði Vestmannaeyja 650
þúsund krónur sem nýtast í kaupum
á nýjum klippum sem eru komnar
til liðsins. Svo tökum við þátt í
matargjöfum í kringum jólin eins
og önnur félög og klúbbar hér í
Eyjum.“
Allir mjög virkir
Hvernig er starfsemin hjá Lions-
klúbbi Vestmannaeyja?
„Annan og fjórða þriðjudag í
hverjum mánuði hittumst við hér í
Arnardrangi á kaffifundum en erum
einnig með svokallaða pílufundi,
þar sem við spilum pílukast. Á
kaffifundum fáum við gjarnan
gestafyrirlesara og nú síðast fengum
við t.d. Adda Steina sem útskýrði
fyrir okkur undirbúningsvinnu fyrir
nýja ferju. Við byrjum starfið í
september og erum fram í maí.
Starfið snýst um tvennt, góðan
félagsskap og að láta gott af sér
leiða. Þessi stærð finnst mér henta
mjög vel, 28 karlar enda eru allir
virkir og að jafnaði eru rúmlega 20
á fundum hjá okkur. Við erum með
aðstöðu í Arnardrangi og sjáum um
viðhaldið á húsinu og vinnum
þannig upp í leigu,“ útskýrði
Hörður.
„Við höfum verið að vinna í
húsinu jafnt og þétt enda er húsið
orðið mikið prýði hér í miðbænum.
Reyndar voru uppi hugmyndir hjá
Rauða krossinum að loka húsinu en
það var vandkvæðum bundið því
Vestmannaeyjabær greiddi upp í
skuld við Rauða krossinn með því
að gefa þeim húsið hér. Hluti af
samkomulaginu var að Rauði
krossinn mætti ekki selja húsið.
Búið er að taka húsið alveg í gegn
að utan og svo höfum við verið að
vinna í því innandyra síðustu ár.
Núna síðast gerðum við íbúðina hér
á efstu hæð tilbúna undir leigu og
þannig fær Rauði krossinn
leigutekjur af íbúðinni. En til að
svo mætti verða, þurftum við að
breyta inngangi í íbúðina sem hefur
nú sér inngang og er búið að loka á
milli félagsaðstöðunnar og
íbúðarinnar.
Eru þið í góðum tengslum við aðra
klúbba á landinu og heimshreyf-
inguna?
„Við borgum okkar gjöld og
reynum að fara á þau þing sem eru
á hverju tímabili. Við fáum líka
heimsókn frá umdæmisstjórn en
samgöngur eru ekki að hjálpa okkur
í að rækta sambandið,“ sagði
Hörður og bætti við að Lionsklúbba
væri að finna hringinn í kringum
landið. „Klúbbarnir eru af öllum
stærðum og gerðum. Hér er t.d.
karlaklúbbur en svo eru kvenna-
klúbbar annarsstaðar á landinu og
svo blandaðir klúbbar líka. Hér var
gerð tilraun til að stofna
ungmennaklúbb en því miður
lognaðist hann út af þegar
sporgöngumennirnir hurfu á braut.“
Velja formenn eftir sætaröð
Af hverju og hvenær genguð þið til
liðs við Lionsklúbb Vestmannaeyja?
„Ég byrjaði árið 2000,“ svaraði
Hörður. „Það æxlaðist nú bara
þannig til að Lions valdi húsið
okkar hjónanna sem Jólahús það ár
og í kjölfarið var ég dreginn á fund.
Þar með var ég kominn inn í
klúbbinn og hef verið þar síðan.“
Styttra er síðan Valdimar gekk í
klúbbinn en hann byrjaði fyrir
tveimur árum. „Ári áður komu tíu
inn í klúbbinn en þá hafði orðið
svolítil hnignun í félagafjölda. Þá
voru þeir aðeins um fimmtán en var
fjölgað í kjölfarið.
Hvernig veljast menn í stöður?
„Stundum veljum við þetta hvernig
menn sitja við borðið, svona
nokkurn veginn,“ sagði Hörður og
hló. „Það er auðvitað enginn
neyddur til þess að taka að sér starf
í stjórn en yfirleitt gengur mjög vel
að manna þessar stöður. Við erum
semsagt þrír í stjórn núna og svo er
varastjórn þriggja manna, sem svo
tekur við næsta vetur. Þannig
gengur þetta fyrir sig hjá okkur og
með þessu reynum við að virkja
sem flesta enda snýst þetta að miklu
leyti um það að virkja sem flesta.“
Erfiðara að safna fé en áður
Þeir félagar eru sammála um að
fjáraflanir séu orðnar erfiðari en
áður. „Fjáraflanir hafa breyst. Við
vorum áður með perur sem við
pökkuðum inn og seldum. Því var í
sjálfu sér sjálfhætt og nú er
samkeppnin alltaf að verða meiri og
meiri í jóladagatölunum. Við erum
í sjálfu sér ekki að fá stærstu
upphæðirnar í gegnum söluna á
dagatölunum en auðvitað munar um
allt,“ sagði Valdimar.
„Við gerum það aðallega fyrir
hefðina að vera með jóladagatölin
því mörgum finnst nauðsynlegt að
kaupa dagatal af Lions fyrir jólin.
En í dag er orðið mjög erfitt að
finna fjáröflun sem enginn annar er
með. En við fáum oft einhverja
greiðslu fyrir þá vinnu sem við
innum af hendi, t.d. fyrir palla-
smíðina út á Stórhöfða. Svo notum
við það fjármagn til góðgerðarmála.
Menn eru með allar klær úti og hafa
alltaf verið. Hér á árum áður
förguðu Lionsmenn einu sinni báti,
rifu hann niður og brenndu. Svo
fóru Lionsfélagar einu sinni einn túr
á sjó en nú má það ekkert, allt þarf
að vera í kvóta,“ sagði Hörður og
þar með var spjallinu lokið enda
framundan afmælisveisla hjá
Lionsfélögum.
Lionsmenn færðu Slökkviliðinu
650 þúsund krónur að gjöf upp í
kaup á klippum liðsins. Frá
vinstri: Ragnar Baldvinsson,
slökkviliðsstjóri, Kári Höskulds-
son, Stefán Bjarnason, Sigmar
Georgsson, Ágúst P. Óskarsson,
Hörður Pálsson, Ingimar
Georgsson, Friðrik Harðarson,
Ægir Ármannsson, Valdimar
Guðmundsson, Óskar Örn
Ólafsson, Sævar Þórsson, Stefán
Sigurðsson, Arnar Andersen,
Hörður Þórðarson, Erlingur
Einarsson og Georg Skæringsson.
JúlíuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is
Stjórn Lionsklúbbs Vestmannaeyja veturinn 2013-2014. Frá vinstri, Gunnar Andersen, ritari, Hörður
Pálsson, formaður og Valdimar Guðmundsson, gjaldkeri.