Fréttir - Eyjafréttir

Tölublað

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Blaðsíða 11

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Blaðsíða 11
° ° 11Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014 Gerum ekkert án aðstoðar bæjarbúa :: Segir Ágúst Pálmar Óskarsson, eini virki stofnfélagi Lionsklúbbs Vesetmannaeyja Ágúst P. Óskarsson var einn 30 stofnfélaga Lionsklúbbs Vestmannaeyja sem stofnaður var formlega í apríl 1974. Ágúst er eini af stofnfélögunum sem enn starfar í klúbbnum og er ekkert að hætta. Ágúst settist niður með blaðamanni Eyja- frétta og sagði frá starfi klúbbs- ins síðustu fjóra áratugi. „Upphafsmennirnir að stofnuninni eru Birgir Indriðason og Georg Her- mannsson, sem var kaupfélagsstjóri hérna. Þeir voru byrjaðir að undirbúa stofnun Lionsklúbbs hér fyrir gos en Birgir var félagi í Lionsklúbbnum Baldri í Reykjavík, sem síðar varð móðurklúbbur okkar. En gosið setti þetta auðvitað allt í uppnám þannig að ekkert varð að stofnuninni fyrr en eftir gos. Birgir og Georg tóku bara við keflinu þar sem frá var horfið eftir að gosinu lauk og upp frá því var Lions- klúbbur Vestmannaeyja stofnaður,“ sagði Ágúst þegar hann var beðinn um að segja frá upphafi Lions- klúbbsins í Vestmannaeyjum. Eins og áður sagði er Ágúst eini virki stofnfélaginn sem eftir er í klúbbnum. „Ég er sá eini sem hefur haldið alveg út. Arnfinnur Friðriks- son var einnig mjög lengi, held það séu tvö ár síðan hann hætti en hann var líka einn af stofnendunum og við unnum mikið saman í sölu- málum. Alls vorum við 30 sem stofnuðum klúbbinn á sínum tíma.“ Hversu margir eru það sem þú hefur starfað með? „Þeir eru margir, mjög margir. Ég veit ekki töluna á þeim öllum enda fullt af mönnum sem hafa stoppað í nokkur ár en svo snúið sér að öðru. Mörgum fannst t.d. erfitt að vera í sölumennskunni, þegar við vorum að selja perurnar og jóladagatölin og gáfust upp á því.“ Félagsskapurinn stendur upp úr Hefur mikið breyst á þessum 40 árum? „Já starfið hefur tekið nokkrum breytingum. Sölumennskan er farin úr starfinu en sjálft Lionsstarfið er það sama, þ.e.a.s. fundirnir og allt í kringum þetta, vinnan og fjáraflan- irnar. Starfið hefur verið með svipuðum hætti að því leytinu til. Við höfum komið víða við, styrkt bæði félög og einstaklinga.“ Þegar Ágúst er spurður út í hvað stæði upp úr eftir árin 40 verður honum ekki svaravant. „Ætli það sé ekki fyrst og fremst félagsskapurinn sem standi upp úr. Það er mjög góður félagsandi í Lionsklúbbnum og starfið þar af leiðandi gott. Við erum með fundi tvisvar í mánuði og auk þess með ýmsar uppákomur eins og Þorrablót og konukvöld. Þá tökum við konurnar með og gerum okkur glaðan dag.“ Lionsklúbburinn er með aðsetur í húsinu Arnardrangi við Hilmisgötu og hefur verið þar undanfarin ár. Ágúst segir að klúbburinn hafi einmitt byrjað í sama húsi, fyrir 40 árum. „Já við vorum með eitt herbergi upp í risinu, leigðum það undir fundi. Nú erum við búnir að ná miðhæðinni og kannski náum við yfirráðum í öllu húsinu,“ sagði Ágúst hlæjandi. „En við erum í mjög góðu samstarfi með Rauða krossinum með húsið og erum mjög ánægðir með þá aðstöðu sem við erum með.“ Rifum Sigurbáru VE Lionsmenn hafa í gegnum árin tekið að sér ýmis verkefni, bæði til að safna fjármagni og til að styðja við ýmis félög eða einstaklinga. Ágúst segir erfitt að velja eitt verkefni sem sé skemmtilegra en önnur. „Mér er mjög eftirminnilegt þegar við plöntuðum túlípönunum eftir gos. Þá fengum við senda túlípana frá Hollandi, ég man nú ekki hversu margir þeir voru en við plöntuðum þeim upp allan Kirkjuveginn og víðar. Bærinn var nánast túlípana- bær á eftir. Það var gaman að taka þátt í því. Við máluðum einu sinni Landakirkju og hellulögðum t.d. við Ísfélagið. Eitt sinn fengum við Sigurbáru VE, máttum rífa úr henni og selja og svo áttum við að sökkva bátnum eins og gert var í þá daga. Við vorum langt komnir með að rífa allt úr henni, allt járn en þá kviknaði í bátnum, líklega hefur neisti einhversstaðar komið af stað eldinum en þá var tekið á það ráð að fá Lóðsinn til að sigla með bátinn upp í fjöru í Prestsvíkinni. Þar lukum við svo við að rífa það sem eftir var af bátnum eftir brunann og þetta var ansi mikil vinna. En við fengum lánaðan Piloter frá Vestmannaeyjabæ og Valdi heitinn í Kinn lánaði okkur vörubíl til að nota í verkið. Þannig hefur þetta sem betur fer verið, einstaklingar og fyrirtæki hafa alltaf verið tilbúin að hlaupa undir bagga með okkur. Öðruvísi væri þetta ekki hægt, við myndum ekki gera mikið án velvilja einstaklinga og fyrirtækja í bænum. Lionsmaður út í gegn Nú ertu búinn að vera þarna í 40 ár. Ætlarðu að vera þarna eins lengi og heilsan leyfir? „Já, ég sé enga ástæðu til að fara hætta. Þetta eru tveir fundir í mánuði og það er ekki eins og ég hafi ekki tíma fyrir þá. Ég er Lionsmaður út í gegn og á meðan ég fæ að vera þarna, þá mæti ég á fundi enda félagsskapurinn mjög góður. Og ég vil nota tækifærið til að þakka bæjarbúum fyrir sam- starfið í þessa fjóra áratugi. Án velvilja þeirra og fyrirtækja, þá gerðum við ekkert og vonandi heldur þetta samstarf áfram næstu áratugina,“ sagði Ágúst að lokum. Lionsmenn slökkva í flaki Sigurbáru VE sem Lionsmönnum var falið að farga. Sambýlið hefur notið góðs af starfsemi Lions. Hér smíða þeir pall við Sambýlið þeir Ágúst Óskarsson, Frosti Gíslason, Ingimar Georgsson og bræðurnir Gunnar og Arnar Andersen. Lionsmenn eru með allar klær úti til að safna fé til góðgerðarmála. Eitt sinn fóru Lionsmenn í róður á Kap VE. Það er oft glatt á hjalla þegar Lionsmenn koma saman. Einar Hall- grímsson stýrir hér fjöldasöng á samkomu þeirra. Útsýniskofinn í Stórhöfða er eitt þeirra verkefna sem Lionsmenn hafa komið að. Um árabil pökkuðu Lionsmenn inn perur og seldu í bænum en sá ágæti siður lagðist af með tímanum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.