Fréttir - Eyjafréttir

Útgáva

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 12

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 12
° ° 12 Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014 Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi rokksöngleikinn Don‘t stop believin: Ekki veikan hlekk að finna í frábærri sýningu :: Besta sýningin hjá Leikfélaginu í mörg ár :: Heimsókn í leikhúsið er orðið að upplifun eftir breytingar Leikfélag Vestmannaeyja frumsýndi á laugardaginn rokksöngleikinn Don‘t stop believin í leikstjórn Ágústu Skúladóttur. Leikhúsið, sem nú heitir Menningarhúsið Kvika, hefur fengið góða og þarfa andlitslyftingu þannig að heimsókn í Kviku er nú orðin mun meiri upplifun en áður. Nánar er sagt frá breytingunum annarsstaðar í blaðinu en upplifunin fyrir framan salinn var aðeins forsmekkurinn af því sem koma skyldi. Til að gera langa sögu stutta var frumsýning á Don‘t stop believin hreint út sagt frábær, líklega sú besta sem undirritaður hefur séð á fjölunum í mjög langan tíma og toppar ABBA söngleikinn Mamma Mía, sem sló öll met hjá LV. Það er ekki lítið mál fyrir áhuga- leikhús að setja upp jafn krefjandi söngleik og Don‘t stop believin. Söngur, leikur, dans, lýsing og hljóð er aðeins brot af því sem þarf að vera upp á sína 10. Förðun, búningar, sviðsmynd og fleira verður líka að koma heim og saman og þannig er það í Don‘t stop believin og gott betur. Margir af leikurunum í söng- leiknum eru að stíga sín fyrstu skref á sviðinu. Ólafur Freyr Ólafsson, fer með eitt af aðahlutverkunum. Ólafur er fæddur fyrir sviðið, lék eins og hann hafi leikið í mörg ár og það sem meira er, söng listavel. Una Þorvaldsdóttir smellpassar inn í hlutverk saklausu stúlkunnar frá Kansas en eins og flestir vita er Una frábær söngkona. Ágústa Halldórs- dóttir kemur skemmtilega á óvart í hlutverki Regínu, tekst vel upp í að túlka hinn ákveðna bæjarfulltrúa og eins og svo margir aðrir í sýning- unni, er hún hörku söngkona. Síðast en ekki síst er það Hannes Már Hávarðarson í hlutverki rokkstjörnunnar Stacee Jaxx. Hannes fer létt með að túlka rokkstjörnuna, enda með rokk- aralegt útlit en það sem kemur mest á óvart, er hversu góður söngvari hann er. Öll þau sem hér hafa verið nefnd, eru nýliðar á sviðinu en standa eigi að síður frábærlega. Ef það er eitthvað sem mætti setja út á, þá er það tímasetningar, þ.e.a.s. að leyfa áhorfendum að hlægja og klappa, áður en haldið er áfram með texta. En það er smáatriði sem vafalaust er búið að laga. En það eru ekki bara nýliðar í verkinu. Zindri Freyr Ragnarsson er á sínum stað, orðinn eins og góð mubla á sviðinu í Kviku, algjörlega ómissandi og bráðfyndinn. Alexander Páll Saalberg fer líka mikinn í gríninu en báðir hafa meðfædda grínhæfileika sem ekki er hægt að kenna og tímasetning- arnar mjög góðar hjá þeim báðum. Síðast en ekki síst er það Ævar Örn Kristinsson, sem hefur leikið um árabil með leikfélaginu. Ævar er tengingin milli leikara og áhorf- enda, talar oft beint til áhorfenda milli þess sem hann talar við aðrar persónur leikritsins. Þetta gerir hann snilldarvel en saman mynda hann og Zindri Freyr skemmtilegt tvíeyki sem reyndar nær óvenju vel saman á endanum. Flott dansatriði Þótt önnur hlutverk séu misstór, þá eru þau gríðarlega mikilvæg. Dansararnir setja t.d. mjög skemmtilega mynd á söngleikinn, gæða hann lífi en dansinn væri innihaldslaus ef ekki væri fyrir þá útgeislun og gleði sem dansararnir hafa. Súludans þeirra Dorthy Lísu Woodland og Hafdísar Ástþórs- dóttur var til dæmis alveg magn- aður. Erna Sif Sveinsdóttir, Vilborg Sigurðardóttir, Árni Þorleifsson, Svanhildur Eiríksdóttir, Steiney Arna Gísladóttir og Helga Sóley Aradóttir komast öll vel frá sínu. Þá verður ekki lokið við umfjöllun um rokksöngleikinn án þess að minnast á hljómsveitina sem þeir Hannes Már, Skæringur Óli Þórarinsson, Ásmundur Ívar Óskarsson, Kristberg Gunnarsson og Anton Þór Sigurðsson skipa. Þeim tókst að framkalla töfra rokksins á níunda áratug, íklæddir spandexbuxum, með síða lokka og augnskugga. Flottara verður það varla. Ágústu Skúladóttur, leikstjóra hefur tekist að móta fullvaxta sýningu úr nokkuð hráum efniviði. Henni hefur tekist að ná öllu því sem hægt er að fá út úr leikurum og öllum þeim sem koma að sýning- unni og meira verður varla gert. Fullkominn sigur hjá henni. Þá má einnig minnast á Karl Ágúst Úlfsson sem semur handritið og gerir það listavel. Það er óhætt að mæla með heimsókn í Kviku á rokksöngleik- inn Don‘t stop believin. Í raun og veru ætla ég að gera meira en að mæla með sýningunni því ég ætla að hvetja bæjarbúa til að koma við í Kviku, það er skyldumæting nema þú sért Skúli fúli. Þetta er frábær sýning og ekki veikan hlekk að finna í henni. Hjónin Karl Ágúst Úlfsson, sem semur handritið og Ágústa Skúladótt- ir, sem leikstýrði, að lokinni frumsýningu. Áhorfendur risu úr sætum og hylltu aðstandendur sýningarinnar í lok frumsýningarinnar. Reynsluboltar hjá Leikfélaginu. Frá vinstri: Viktor Rittmüller, ljósahönnuður og framkvæmdastjóri LV, Alexander Saalberg og Zindri Freyr Ragnarsson, grínistar. Ágústa Halldórsdóttir, Zindri Freyr Ragnarsson, Svanhildur Eiríksdóttir, Steiney Arna Gísladóttir og Ævar Örn Kristinsson í hlutverk sínum JúlíuS G. InGaSon julius@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.