Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Qupperneq 13

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Qupperneq 13
° ° 13Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014 >> smáar Gæðakaggi til sölu Citröen C4 til sölu, árgerð 2006 ekinn 83 þús. Ný tímareim. Uppl. í síma 869-1951. ------------------------------------- Atvinna óskast Vantar þig metnaðarfullan og hörkuduglegan mann í vinnu? Þá gæti ég verið sá maður. Er rétt að verða þrítugur og er ýmsu vanur en þá helst er ég góður ,,smiður“ hef verið til sjós og séð um rekstrarstjórn í einni deild í stóru fyrirtæki. Og þó ég kunni ekki eitthvað er ég fljótur að læra nýja hluti. Einnig er ég með lyftararétt- indi. Er til í að skoða allt ef rétt laun eru í boði. Ef þú ert með eitthvað starf endilega sendu mér þá línu á therney@ hotmail.com ------------------------------------- Til sölu Þessi flotti gamli Subaru, árg. 1998 er til sölu. Hann er nýskoðaður og með nýtt pústkerfi að hluta til. Ágætur bíl til að snattast á, hér á eyjunni. Áhugasamir geta haft samband við Kidda 861-8060 eða Öldu 849-7174. ------------------------------------- Íbúð óskast til leigu í sumar Er að leita af fjögurra herberja íbúð/einbýli (þrjú svefnher- bergi) til að leigja frá byrjun maí. Skilvísum greiðslum lofað. Skoðum þó allt hvort sem íbúðirnar séu minni eða stærri. Sími: 666-5544 Netf.: gislimatt89@gmail.com ------------------------------------- Til sölu Subaru Impreza, árg. 2006, ekinn 102 þús. km., óskoðaður. Í góðu standi. Upplýsingar í síma 857 0185, eftir kl. 17. ------------------------------------- Auglýsingasíminn er 481 1300 Meðferð skotvopna Að gefnu tilefni vill Umhverfis- og framkvæmdasvið Vest- mannaeyjabæjar minna á það að öll meðferð skotvopna er bönnuð á Heimaey nema á skotsvæðinu. Þeim veiðimönnum sem stunda skotveiðar er einnig bent á að kynna sér þau lög og reglugerðir sem um það gilda. Úr lögum um vernd, friðun og veiðar á villtum fuglum og villtum spendýrum nr. 64 frá 1994. 17. gr. Fuglar. Ráðherra getur í reglugerð, að fengnum tillögum Umhverfis- stofnunar og Náttúrufræðistofnunar Íslands, aflétt friðun eftirtalinna fuglategunda innan þeirra tímamarka er hér segir, sbr. 7. gr.: 1. Allt árið: svartbakur, sílamáfur, silfurmáfur, hrafn. 2. Frá 20. ágúst til 31. mars: grágæs, heiðagæs. 3. Frá 1. september til 31. mars: fýll, dílaskarfur, toppskarfur, súla, blesgæs, helsingi, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, duggönd, skúfönd, hávella, toppönd, hvítmáfur, hettumáfur, rita, skúmur, kjói. Ætíð er heimilt að skjóta kjóa nærri æðarvarpi. 4. Frá 1. september til 25. apríl: álka, langvía, stuttnefja, teista, lundi. 5. Frá 15. október til 22. desember: rjúpa. Heimilt er að takmarka veiðar við ákveðna daga innan þeirra tímamarka sem fram koma í 1. mgr. og ákveðinn tíma sólarhrings. Nú hefur ráðherra ákveðið að aflétta friðun skv. 1. mgr. og getur hann þá að ósk sveitarstjórnar ákveðið að friðun gildi áfram í tiltekinn tíma á ákveðnum svæðum þar sem umferð veiðimanna er talin óæskileg. Óheimilt er að þeyta flautur, fljúga flugvélum eða vera með annan hávaða að óþörfu í grennd við fuglabjörg. Enn fremur er óheimilt að hleypa af skoti á landi nær fuglabjörgum en 200 m og á sjó nær en 500 m. Aldrei má skjóta fugl í fuglabjörgum. Óheimilt er að veiða fugla í sárum. Veiðitímabil: Frá 1. september til 15. mars: fýll, dílaskarfur, toppskarfur, blesgæs, helsingi, stokkönd, urtönd, rauðhöfðaönd, dugg- önd, skúfönd, hávella, toppönd, hvítmáfur, hettumáfur, rita. Frá 1. september til 25. apríl: álka, langvía, stuttnefja, teista, lundi. Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar -------------------------------------------------------------------------------- Tæting matjurtagarða Þeir sem óska eftir að fá matjurtagarða tætta, eru vinsam- lega beðnir um að skrá beiðni þar um í síma 488-2500, eða á tölvupóstfangið gtbo@vestmannaeyjar.is í seinasta lagi 2. maí n.k. Gjald er frá 7.000 kr. til 20.000 kr. fyrir hvern garð, allt eftir stærð. Þeim, sem óska eftir nýjum garði, er bent á að snúa sér til Skipulags- og byggingarfulltrúa að Skildingavegi 5. Þjónustumiðstöð Vestmannaeyja. -------------------------------------------------------------------------------- Atvinna í boði Frekari liðveisla/heimaþjónusta - dagvinna Óskum eftir starfsmanni í frekari liðveislu/heimaþjónustu. Starfið felur í sér aðstoð við fatlaða einstaklinga inn á heimili þeirra og við athafnir daglegs lífs, þrif, matarinnkaup o.fl. Starfið krefst sjálfstæðra vinnubragða og samvinnuhæfni. Um er að ræða 50-60% starfshlutfall og vinnutími að mestu fyrir hádegi eða eftir samkomulagi. Umsóknarfrestur er til 27.mars og má nálgast umsóknar- eyðublöð í þjónustuveri í Ráðhúsinu eða á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Vestmannaeyjabæjar (STAVEY) og Launanefndar sveitarfélaga. Nánari upplýsingar veitir Gauti Þorvarðarson á gauti@vestmannaeyjar.is eða í síma 488-2000. Vestmannaeyjabær Ráðhúsinu | 902 Vestmannaeyjum | kt. 690269-0159, sími 488 2000 | fax 488 2001 | www.vestmannaeyjar.is Skóladagur GRV - Barnaskóla verður miðvikudaginn 23. apríl frá kl. 17:00—19:30. Starfs- fólk og nemendur skólans vonast eftir því að þátttaka verði mikil og góð eins og undanfarin ár. Fjölbreytt dagskrá verður í boði sem nemendur og gestir geta tekið þátt í. Nemendur 9. bekkjar verða með kaffihlaðborð og rennur andvirðið í ferðasjóð þeirra. Skemmtidagskrá verður í salnum. Þrautir og leikir verða víðs vegar um skólann og úti á skólalóð. Verkefni nemenda frá starfi vetrarins munu hanga uppi í bekkjarstofum og víða um skólahúsið. Gaman væri ef allir þeir sem áhuga hafa á skólastarfi komi og geri sér glaðan dag með okkur, sýni sig og sjái aðra á þessum mjög svo skemmtilega degi. Vestmannaeyjabær a4 ljósritun- arpappír Eyjafréttir Strandvegi 47 | S. 481 1300 Félagsmenn Drífanda sem starfa hjá eftirtöldum fyrirtækjum: Eimskip, Godthaab í Nöf, Ísfélaginu, Skipaaf- greiðslu Vestmannaeyja, Vinnutækjum, Vinnslu- stöðinni, og Samskip Fundur um fyrirhugaða vinnustöðvun og kosning um hana verður haldinn þriðjudaginn 22. apríl kl. 18.00 í Svölukoti. Kjörfundur um vinnustöðvunina verður á skrifstofu Drífanda á skrifstofutíma, og víðar til mánudagsins 28. apríl kl. 16.00. Stjórn Drífanda stéttarfélags FEBV Félag eldri borgara í Vestmannaeyjum Vorfagnaði félagsins frestað til 17. maí kl. 19.00 í Alþýðuhúsinu. Skráning: Einar Steingríms. og Guðný sími 481-277 Stjórnin ÁRSÞING Íþróttabandalags Vestmannaeyja Ársþing Íþróttabandalags Vestmannaeyja fyrir árið 2013 verður haldið í Týsheimilinu miðvikudaginn 14. maí næstkomandi kl. 20.00. Rétt til setu á ársþingi ÍBV eiga allir fulltrúar bandalagsfélaga samkvæmt 10. gr. Þá hafa rétt til þingsetu með málfrelsi og tillögurétti: Stjórn og varastjórn ÍBV, framkvæmdastjóri ÍSÍ, ásamt íþróttafulltrúa ríkisins, æskulýðs- og íþróttafulltrúi Vestmannaeyjabæjar og fulltrúi frá hverju lands- sambandi, sem ÍBV er aðili að. Dagskrá samkvæmt lögum bandalagsins. Íþróttabandalag Vestmannaeyja

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.