Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Síða 16
°
°16
Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 2014
Rafbílar að ryðja sér til rúms í Eyjum :: Hagkvæmir og umhverfisvænir:
Fara allra sinna ferða fyrir nokkur
hundruð krónur á mánuði
:: Skýrsla SÞ um loftslagsmál :: Er skýr skilaboð :: Tíminn til að bregðast við að renna út
Samkvæmt nýjustu skýrslu
vísindanefndar Sameinuðu
þjóðanna er tíminn til að
bregðast við breytingum á
loftslagi í heiminum af manna-
völdum að renna út. Hann sé þó
enn til staðar og ráðstafanir til
að snúa þróuninni við kosti ekki
nema brot af þeim kostnaði
sem hlýst af verði ekkert að gert.
Gróðurhúsaáhrifin og og hlýnun
jarðar sé staðreynd sem ekki
verði litið fram hjá og því til stað-
festingar er bent á meiri öfgar í
veðurfari. Fellibyl sem gekk yfir
Filippseyjar á síðasta ári sem
skyldi eftir sig ótrúlega eyðilegg-
ingu og telst til svokallaðrar
ofurfellibylja. Flóð á Bretlandi í
vetur hafa aldrei mælst meiri og
núna er er hafnarborgin
Valparaiso í Chíle að brenna í
mestu skógareldum í sögu
landsins.
Margt hefur verið gert til að minnka
mengun en það er við ramman reip
að draga vegna fólksfjölgunar í
heiminum og meiri þörf fyrir orku.
Ein viðleitnin er að framleiða bíla
sem eyða minna eldsneyti og menga
minna og rafbílar eru að festa sig í
sessi. Þeir eiga sér nokkuð langa
sögu í Vestmannaeyjum. Nú eru
samkvæmt heimildum Eyjafrétta
fjórir eða fimm rafbílar í Vest-
mannaeyjum.
Rafbílar að þróast mikið á
undanförnum árum. Fyrir nokkrum
árum komu fram hinir svokölluðu
tvinnbílar (Hybride) sem eru
sambland af raf- og bensínbílum.
Nú eru rafbílar að ryðja sér til rúms
og komast þeir sífellt lengra á
hleðslunni.
Addi Steini er ánægður með
sinn rafbíl
Andrés Þorsteinn Sigurðsson, Addi
Steini, hafnsögumaður, keypti fyrir
hálfu öðru ári bíl af gerðinni, Opel
Ampera, sem knúinn er áfram með
rafmagni og bensíni ef bíllin verður
straumlaus. Það hefur ekki gerst hér
í Eyjum og dugar rafhleðslan í um
tvo daga.
Addi Steini er ánægður með
bílinn. „Það hefur ekkert komið upp
á og ég er að kaupa rafmagn fyrir
um 1800 krónur á mánuði sam-
kvæmt mælinum sem ég nota. Á
rafmagnsbílnum verður að passa að
nota miðstöðina í hófi því hún getur
eytt svipuðu rafmagni og fer í
aksturinn sjálfan. Maður hugsar allt
öðruvísi um orkuna heldur en þegar
ekið er um á venjulegum bíl og
trúlegast er það sú vitundarvakning
sem þarf að gerast almennt.
Munurinn á honum og bílnum sem
ég átti fyrir er mikill, það er um 600
til 700 þúsund krónum ódýrara að
keyra Opelinn á ári,“ segir Addi
Steini og bætir við að hann hafi
keypt bensín fyrir 50 þúsund á
þessu eina og hálfa ári því maður
notar bensín upp á landi.
„Í keyrslu framleiðir hann rafmagn
þegar bremsað er og þegar farið er
niður brekkur en á langkeyrslu fer í
gang bensínmótor sem framleiðir
rafmagn inn á rafgeymanna. Gengur
hann þá fyrir bensíni og er ég
búinn að fylla tankinn einu sinni á
þessu ári sem kostaði mig 7000
krónur. Í fyrra mældi ég bensín-
eyðsluna úr Landeyjahöfn til
Reykjavíkur og fóru fimm litrar sem
getur ekki talist mikið fyrir þetta
öflugan bíl,“ sagði Addi Steini.“
Kramið er allt einfaldara í
rafmagnsbílum og hefur Addi Steini
ekki þurft að fara með hann í
smurningu sem líka er sparnaður en
rafbílar eru enn mun dýrari en bílar
sem brenna olíu og bensíni. „Það
tekur mig fimm ár að vinna upp
mismuninn en þetta á eftir að
breytast. Það er verið að framleiða
minni bíla og ódýrari sem komast
lengra.“
Ásmundur Pálsson :: Ánægður með rafbílinn:
Vikuaksturinn
á 60 krónur
:: Hans framtak til bjargar heiminum
:: Er enn að læra á bílinn
Ásmundur Pálsson, fyrrum starfsmaður
Vestmannaeyjabæjar og meindýraeyðir,
er mikill tækjakall og ákvað á síðasta ári
að kaupa sér rafbíl og varð Nissan Leaf
fyrir valinu. Er hann eingöngu rafdrifinn
og kostar áfyllingin, sem dugar honum í
eina viku, um 60 krónur sem verður að
teljast nokkuð vel sloppið. Það var ekki
bara áhugi á tólum og tækjum og minni
kostnaður við akstur sem fékk Ásmund
til að kaupa rafbíl. Umhverfismál höfðu
sitt að segja.
„Ég pantaði bílinn, sem er Nissan Leaf árgerð
2012, í ágúst í fyrra og fékk hann í desember
síðastliðinn,“ sagði Ásmundur. „Hann hefur
staðist allar þær væntingar sem ég gerði til
hans og hef ekki þurft að kaupa bensíndropa
síðan. Ég fer um allt innanbæjar á bílnum og
hvert sem er. Hann er með sólarsellu sem
hleður inn á bílinn. „Ég keypti aðra sem ég er
með í sólskyggninu og er að hugsa um að
kaupa stærri sellu. Þá hugsa ég að ég geti
keyrt hringinn í kringum landið.“
Fullhlaðinn kemst bíllinn 160 til 180
kílómetra þannig að hann hentar mjög vel til
aksturs innanbæjar í Vestmannaeyjum. „Þegar
ég bremsa eða fer niður brekku hleður hann
inn rafmagni sem kemur sér vel á lengri
leiðum. Annars fer eyðslan eftir því hvernig
maður keyrir bílinn og ég er enn að læra á
hann.“
Sjálfur kostaði bíllinn 3,6 milljónir króna en
með heimastöð og kapli sem hægt er að stinga
í samband á gistiheimilum og hótelum fór
hann í fjórar milljónir. „Í dag eru fjórar
hraðhleðslustöðvar í Reykjavík og ein á Egils-
stöðum. Þeim á eftir að fjölga á næstunni og
þá verður þetta auðveldara.“
Ásmundur segist ekki hafa tekið saman hvað
kostar nákvæmlega að keyra bílinn. „Ég gæti
trúað að það kosti 60 krónur að hlaða hann til
fulls og það dugar mér í viku. Það verður að
teljast vel sloppið með venjulega fimma
manna fólksbíl.“
Hafði afstaða þín til umhverfismála eitthvað
með það að gera þegar þú ákvaðst að kaupa
þér rafbíl? „Já, svo sannarlega. Þau skipta
okkur öll máli og ég tel mig vera að leggja
mitt af mörkum til að afkomendur okkar geti
átt betri daga í framtíðinni,“ sagði Ásmundur
að lokum.
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir :: Ánægð með
sinn Nissan Leaf:
Léttur og þægilegur
og þvílíkur kraftur
:: Karlar sem hafa prófað standa á öndinni
Þóra Hrönn Sigurjónsdóttir keypti sér
Nissan Leaf rafbíl fyrir tveimur mán-
uðum. Var hún bæði með beinharðan
sparnað í huga og þau áhrif sem
brennsla á jarðeldsneyti hefur á um-
hverfið. Segist hún hafa slegið tvær flugur
í einu höggi og er auk þess hrikalega
ánægð með bílinn.
„Hann er árgerð 2012 og keypti ég hann
notaðan í gegnum Islandus fyrir tveimur
mánuðum,“ sagði Þóra Hrönn. „Ég er
hrikalega ánægð með bílinn sem er léttur og
þægilegur í stýri. Hann hentar mjög vel hérna
í Vestmannaeyjum en ég vildi ekki ferðast
mikið á honum uppi á landi. Ég rétt slefaði í
Þorlákshöfn, hafði reyndar ekki náð að hlaða
hann nema 80 prósent áður en ég lagði af
stað.“
Hún segir veðrið hafa áhrif á hvað hleðslan
endist lengi. „Þegar það er snjór og kalt kemst
ég færri kílómetra. Það er sólarrafhlaða í
bílnum sem er fyrir þurrkurnar og hitar upp
sætin. Svo verður til rafmagn með viðnámi
þegar bremsurnar eru notaðar.“
Þóra Hrönn veit ekki hvað rafmagnið kostar
á bílinn en er nýbúinn að fá sér mæli til að
geta fylgst með kostnaðinum. „Bíllinn
kostaði 3 milljónir og 450 þúsund krónur og
hleðslustöðin 260 þúsund. Hún er tengd við
töfluna heima og er þrjá til fjóra tíma að hlaða
bílinn. Einnig fylgdi með snúra sem stinga má
í venjulega innstungu. Hún er lengi að hlaða
en er ágæt í neyðartilvikum.“
Þegar Þóra Hrönn er spurð nánar út í bílinn
segir hún að bíll sé bara bíll í hennar augum.
„Ég sé hann bara sem tæki til að komast frá A
til B en Leaf er góður bíl, ég finn það og
þvílíkur kraftur. Karlar sem hafa prófað hann
standa á öndinni af hrifningu.“
Þá var komið að umhverfisþættinum og
skiptir hann Þóru Hrönn miklu máli. „Meng-
un og áhrif hennar á umhverfið höfðu sitt að
segja og líka hvað bensínið er orðið dýrt.
Þessir bílar eru eins og sniðnir fyrir Vest-
mannaeyjar og maður þarf ekki að vera
hræddur um að verða rafmagnslaus frekar en
bensínlaus. Það yrði frábært ef rafbílar yrðu í
meirihluta í Vestmannaeyjum, þá erum við
orðin græn eyja,“ sagði Þóra Hrönn að
endingu.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is