Fréttir - Eyjafréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Qupperneq 17

Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Qupperneq 17
° ° 17Eyjafréttir / Miðvikudagur 16. apríl 201417 Nethamar opnar bifreiðaverkstæði :: Allar almennar viðgerðir og smurstöð: Má segja að við séum að upp- færa verkstæðið til dagsins í dag :: Í dag viltu koma í snyrtilegt og vel útbúið verkstæði :: Þannig verður það hjá okkur, segir þjónustustjóri. Nethamar er þessa dagana að opna nýtt og glæsilegt bifreiða- verkstæði að Garðavegi 15 þar sem Húsasmiðjan var til húsa. Þar verður boðið upp á allar almennar bílaviðgerðir. Þar er sérhæfð smurstöð en engin slík hefur verið í Vestmannaeyjum í mörg ár. Húsnæðið er bjart og rúmgott og lögð er áhersla á að taka vel á móti viðskiptavinum. Nethamar er með umboð fyrir mörg af stærstu bílaumboðun- um hér á landi sem gera kröfur um að ákveðnum stöðlum sé fylgt. Stöðlum sem meðal annars snúa að þjónustu við viðskiptavini, umhverfis- og starfsmannamálum. Er það ekki síst til að tryggja rétt viðskiptavina og gerðar eru miklar kröfur til umhverfismála. „Við erum að flytja og byrjaðir að vinna í bílum hérna megin,“ sagði Sæmundur Ingvarsson, þjónustu- stjóri, þegar Eyjafréttir litu við á mánudaginn. Húsnæðið hefur að miklu leyti verið endurbyggt og sniðið að nýju hlutverki. Það er bjart og vistlegt og er móttakan, verkstæðissalurinn og aðstaða fyrir starfsfólk til fyrirmyndar. „Hér bjóðum við upp á viðgerðir á bifreiðum af öllum tegundum og sérhæfða smurstöð sem ekki hefur verið til í Vestmannaeyjum í langan tíma. Við erum með þrjár lyftur fyrir viðgerðir og eina stóra fyrir smurstöðina. Nethamar er með umboð fyrir Bílabúð Benna, Öskju, B&L og Toyota. Við megum sinna bílum sem eru innkallaðir af einhverju ástæðum, ábyrgðarskoð- unum og reglubundnum þjónustu- skoðunum til að viðhalda verk- smiðjuábyrgðum.“ Öflugt starfsfólk Sjálfur er Sæmundur vélvirki og með honum starfa bifvélavirkjarnir, Hreinn Sigurðsson, Guðjón Gíslason og í sumar bætist Loftur Rúnar Smárason í hópinn en hann er að nema fræðin. „Hér er öflugur mannskapur og við sjáum um allt sem lýtur að viðhaldi og viðgerðum á bílum nema dekkjum og máln- ingarvinnu. Á gamla staðnum, hinum megin við götuna er skipa, vinnutækja- og lyftaraverkstæðið.“ Sæmundur er mjög ánægður með hvernig til hefur tekist með allar breytingar sem miði ekki síst að því að skapa notalegt viðmót fyrir viðskiptavini og bjóða upp á þjónustu sem stenst allan saman- burð. „Það má segja að við séum að uppfæra verkstæðið til dagsins í dag og verða við kröfum nútímans um þjónustu fyrir bifreiðar. Í dag viltu koma í snyrtilegt og vel útbúið verkstæði og þannig verður það hjá okkur.“ Miklar kröfur Sæmundur segir að bílaumboðin og framleiðendur bílana ekki síður geri miklar kröfur og þær verði Nethamar að standast. „Við verðum að fara eftir ákveðnum stöðlum sem eru ekki síður til að tryggja hag viðskiptavinanna en okkar sjálfra sem starfsmanna. Við erum með bilanagreina/tölvur fyrir flestar tegundir bíla og það eru gerðar miklar kröfur um umhverfismál og starfsmannaaðstöðu. Við eigum að standast allar þessar kröfur og þú átt ekki að borga meira fyrir viðgerð hér en annars staðar á landinu.“ Verkstæðið er á 350 fermetrum og úti er 2100 fermetra steypt plan. „Hér úti er fín aðstaða til að geyma bíla og sýna. Eyjamenn mega búast við nokkrum bílasýningum hér með vorinu. Hjá okkur verða flest stóru nöfnin í bílaheiminum sem gerir þetta enn betra og skemmtilegra, bæði fyrir okkur og viðskipta- vinina,“ sagði Sæmundur. Nethamar er í eigu Guðjóns Rögnvaldssonar, Þórðar Rafns Sigurðssonar og Viktors Helga- sonar. Fyrirtækið var stofnað 1993 til þjónustu í skipa- og netaviðgerðum en þaðan kemur nafnið Nethamar. Í dag sinnir Nethamar skipa-, bíla-, neta- og vélaviðgerðum, auk ýmiskonar járnsmíði og viðgerðum á fiskikörum. Einnig er fyrirtækið með söluumboð fyrir AGA gas. Á morgun, skírdag, verður verkstæðið opið almenningi frá klukkan 13 til 16 og vonast starfsmenn og eigendur til að sjá sem flesta. „Við erum stoltir af því sem við erum að gera og hjá okkur færðu toppþjónustu við fyrsta flokks aðstæður á sanngjörnu verði,“ sagði Sæmundur að lokum. Þær eru ekki skemmtilegar fréttirnar sem berast af gjaldtöku ferðamanna við Geysi. Það er vont mál og staðan grafalvarleg. Eigendur og aðstandendur ferðamannastaða hafa beðið í mörg ár eftir aðgerðum stjórnvalda að setja lög og reglur um gjaldheimtu af ferðamönnum til að standa undir kostnaði við endurbætur og lagfæringar á ferðamanna- stöðum svo hægt sé að bjóða ferðafólki upp á mannsæmandi aðstöðu og þjónustu á vinsælustu stöðum landsins. Með ótrúlegri fjölgun ferðamanna taka vinsælustu staðirnir ekki við þeim fjölda sem þangað kemur á hverjum degi, jafnvel yfir vetrar- tímann. Á fjölförnustu stöðunum kostar það tugi, jafnvel hundruð milljóna að koma aðstöðunni í viðunandi horf. Bláskógabyggð og eigendur að Geysissvæðinu hafa látið fara fram metnaðarfulla samkeppni um uppbyggingu Geysissvæðisins og mun hún kosta gríðarlegar fjárhæðir og slík uppbygging er óhugsandi án þess að gjald verði tekið af ferðamönn- um á einhvern hátt. Fólkið og samfélögin sem hafa tekjur af ferðaþjónustu hefur ekki lengri biðlund, það er sprungið á biðinni og þegar það tekur af skarið skerst í odda á milli þess og annarra hagsmunaaðila. Útkoman er niðurlægjandi fyrir aðstandendur, í þessu tilfelli eigendur og starfs- menn við Geysi, en ferðamaðurinn er þolandinn sem horfir upp á fólk í baráttuhug, vopnað sögum, klippum og jafnvel gjallarhornum til að vekja athygli á málstaðnum. Ég ætla ekki að setjast í dómarasæti í þessu máli en þetta er sú versta birtingamynd sem hugsast gat komið upp í málinu og mikilvægt að taka umræðuna, vera óhræddur og varpa fram hugmyndum til lausnar í málinu. Gisti- og bílaleigugjald. Engin niðurstaða hefur fengist í útgáfu náttúrupassa og hafa mjög margir verulegar efasemdir við útgáfu slíks passa. Leiðir til sölu náttúrupassa eru margar en fleiri spyrja hver á að hafa eftirlit með því hverjir bera slíkan passa á ferð sinni um landið? Ekki verður því bætt á lögregluna að fylgjast með hátt í milljón ferðamönnum hvort þeir eru með passa eða ekki. Við verðum að finna aðrar leiðir. Þær eru fjölmargar sem koma til greina og ég eins og fleiri höfum staldrað við margar þeirra. Flestir eru á því að hafa einfalt kerfi þar sem ekki þarf sérstakt eftirlit með því hvort greitt hafi verið eða ekki. Í því sambandi hefur verið bent á gjald á farmiða, eingreiðslu við komu eða brottför frá landinu. Hugmyndir sem hafa galla og kosti eins og allar aðrar. Hér kynni ég leið sem margar þjóðir fara. Fleiri lönd, nú síðast Danmörk bætast í þann hóp sem rukka lágt en sérstakt gisti- og bílaleigugjald sem aðgang að náttúru landsins, útfærslan er til og ekkert að vanbúnaði. Gistigjaldið er víða um 1 evra á mann, eða sem næst 150 kr. og er lagt á hvern einstakling fyrir hverja gistinótt í landinu og er þá ekki gerður greinamunur á því hvort gist er á dýru hóteli eða ódýru tjaldsvæði. Þannig greiðir einstaklingur sem gistir eina nótt 150 kr. sem rennur í sérstakan sjóð til uppbyggingar ferðamannastaða í landinu. Þeir sem gista í 10 nætur greiða 1.500 kr. Gistinætur erlendra ferðamanna á Íslandi árið 2012, voru 2,9 milljónir gistinátta og gistinætur Íslendinga voru 850 þúsund og þeim fjölgar um 10-15% á milli ára. Tekjur af þessum gjöldum verða að renna beint til ferðamannastaða um allt land samkvæmt nánari útfærslu. Með þessu hóflega gjaldi opnast leið til að taka út 8-12 verðmætustu náttúruperlur landsins og rukka sérstakt hóflegt gjald inn á þá staði. Þá staði þarf sérstaklega að nefna í lögum og reglugerðum sem settar verði um gjaldtöku af ferðamönn- um. Þær tekjur eiga að standa undir framkvæmdum á þeim svæðum og þeir fá ekki aðrar tekjur frá ríkinu til uppbyggingar. Ónýtt tekjulind. Með því að kaupa flugmiða frá landinu er gjald á hvern miða sem rennur til Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar, en svokallaðir „stop ower“ farþegar greiða ekki slíkt gjald þó það sé víðast hvar greitt á flugvöllum. Þessi hópur telur líklega um 1.7 milljón farþega á síðasta ári og í framtíðinni má gera ráð fyrir að þessi hópur vaxi mest allra í FLE eða jafnvel um 30% á ári og verði orðinn 3-4 milljónir eftir nokkur ár. Þó ég sé ekki að gera að því skóna að þessi hópur greiði fyrir náttúruskoðun á Íslandi er þarna um að ræða hundruð milljóna tekjulind sem við eigum ekki láta framhjá okkur fara og ég minni á þarfir innanlandsflugsins þar sem almenningssamgöngur og flugvellir á landsbyggðinni eru algjörlega févana. Í lok dagsins er það sameiginlegt markmið okkar að þær spár rætist sem gera ráð fyrir 1,5 milljón ferðamönnum til landsins árið 2023 og tekjur af ferðamönnum tvöfaldist frá því sem nú er, en vöxtur í útflutningstekjum af ferðaþjónustu á fyrsta áratug þessarar aldar nam 136%. Greinin þarf að byggja upp trúverðugleika, en höldum því til haga að stærsti hluti fyrirtækja í greininni eða 83% stendur skil á sínu í ríkissjóð og greinin á að hafa metnað til að borga starfsfólki sínu góð laun. Árið 2012 greiddu ferðmenn í beina og óbeina skatta 27 milljarða, eða 120.000 kr. á hvert heimili í landinu. Við eigum því að standa saman sem þjóð að hóflegri gjaldtöku með skynsam- legri og arðbærri fjölgun ferða- manna að sérstakri náttúru, menningu og gestrisni Íslendinga að markmiði. Eigendur og starfsmenn. Frá vinstri: Guðjón Rögnvaldsson, Þórður Rafn Sigurðsson, Guðjón Gíslason og Sæmundur Ingvarsson. Erum við búin að missa tökin á gjaldheimtu á ferðamannastaði? ásmundur friðriksson alþingismaður Ómar GarðarSSon omar@eyjafrettir.is

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.