Fréttir - Eyjafréttir - 16.04.2014, Side 20
°
°
°
S ími 481-1300 : : f re t t i r@ey ja f re t t i r. i s
Eyjafréttir
B
ir
ti
st
m
eð
fy
ri
rv
ar
a
um
in
ns
lá
tt
ar
vi
ll
ur
o
g
m
yn
da
br
en
gl
OPið Mán-fös kl. 7.30-19.00 / Lau. kl. 10-19 / Sun kl. 11-19
VIkUtIlboð
SuShI frá osushi
Kemur til okkar föstudaga kl. 17.30
Tökum niður pantanir !
15. - 22. apríl 2014
Quality Street dós 2 kg
verð nú kr 2998,-
verð áður kr 5338,-
SS Léttreyktar/
hunangs grísakót
verð nú kr/kg 1798,-
verð áður kr 2388,-
SS Ítalskt lambalæri
verð nú kr/kg 1798,-
verð áður kr/kg 2298,-
SS Páska lambalæri frosið
verð nú kr/kg 1198,-
verð áður kr/kg 1998,-
Merrild special kaffi 400 gr
verð nú kr 558,-
verð áður kr 848,-
Toffifee
verð nú kr 398,-
verð áður kr 488,-
Egils appelsín 2 L
verð nú kr 199,-
verð áður kr 399,-
Egils Páskaöl 0,5 ltr dós
verð nú kr 175,-
verð áður kr 210,-
Egils Malt/appelsín 0,5 L
verð nú kr 175,-
verð áður kr 190,-
Bassetts lakkrískonfekt 1 kg
verð nú kr 1498,-
verð áður kr 2298,-
Fimm bandarískir ofurhugar komu við í Vestmannaeyjum á sunnudaginn á leið sinni frá Íslandi til Kýpur.
Fararskjótarnir eru ekki af hefðbundinni gerð, heldur svokallaðar sjóþotur en fyrir þá sem ekki þekkja til mætti
líkja sjóþotum við mótorhjól á vatni. Fimm eru í hópnum á fjórum þotum en ferðin er hluti af sjónvarpsþátta-
röð, Dangerous Waters. Ferðin frá Íslandi til Kýpur verður hluti af þriðju seríu þáttanna og verða seríurnar alls
sjö talsins. Hægt er að fylgjast með ferð fimmmenninganna á síðunni dangerouswaterstv.com. Á myndinni eru
frá vinstri: Patrick McCregor, Scott Brendlinger, Casey Bays, Steven Moll, Jake Hammer.
Ársreikningur Vestmannaeyjabæjar fyrir árið 2013:
Létta róðurinn hjá
barnafjölskyldum
:: Jákvæður rekstrarafgangur sjötta árið í röð
:: Nýtt til að lækka gjaldskrár
Heildar rekstrartekjur samstæðu
Vestmannaeyjabæjar námu 4126
milljónum króna og rekstrargjöld
fyrir fjármagnsliði námu 3573
milljónum. Rekstrarafkoma
samstæðu fyrir fjármagnsliði var
því jákvæð um 553 milljónir.
Þetta kemur fram í ársreikningum
Vestmannaeyjabæjar sem voru lagðir
fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í
gær. Í frétt af fundinum segir að
ásreikningar 2013 beri það með sér
að rekstur Vestmannaeyjabæjar gangi
vel. Veltufé aðalsjóðs frá rekstri var
661 milljón og veltufé samstæðu var
768 milljónir.
„Vestmannaeyjabær hefur á
seinustu árum verið að greiða niður
áratuga gamlar skuldir og er búinn að
greiða niður skuldir og skuldbind-
ingar fyrir u.þ.b. 5300 milljónir síðan
2006. Heildar vaxtaberandi skuldir á
íbúa eru nú innan við 215 þúsund.
Með reglulegum afborgunum mun
Vestmannaeyjabær nálgast það að
verða skuldlaus við lánastofnanir
innan fárra ára,“ segir í fréttinni.
Á sama hátt segir að allt kapp hafi
verið lagt á að greiða upp skuldbind-
ingar og var stærsta skrefið í því
tekið þegar eignir Vestmannaeyja-
bæjar voru keyptar til baka af
Fasteign hf. Skuldahlutfall sveitar-
félagsins eins og það er skilgreint í
sveitarstjórnarlögum er nú komið í
91,78% hjá A-hlutanum og 95,48%
hjá samstæðunni. Í
lok árs 2011 var þetta 164% hjá
A-hluta og 155% hjá samstæðunni. Í
árslok 2012 var skuldahlutfallið
152% hjá A-hluta og 141% hjá
samstæðunni. Hámarkshlutfall
samkvæmt sveitarstjórnarlögum er
150%.
Heildareignir samstæðu Vestmanna-
eyjabæjar námu 9599 milljónum
króna í árslok 2013, þar af var
handbært fé upp á 1997 milljónir
króna.
„Allar kennitölur í rekstri sýna
sterka og góða fjárhagsstöðu
Vestmannaeyjabæjar. Veltufjárhlutfall
sveitarsjóðs er 12,02 og eiginfjárhlut-
fallið er 66,17%. Veltufjárhlutfall
samstæðu er 6,25 og eiginfjárhlutfall
þess 58,85%.“
Þá segir: „Þessi niðurstaða er
bæjarstjórn fyrst og fremst hvatning
til að gæta þess áfram að missa ekki
tökin á skulda- og útgjaldahliðinni.
Vandaður rekstur er það sem helst
tryggir öfluga og góða þjónustu. Í
ljósi sterkrar stöðu í ársreikningum
og léttari skulda samþykkti bæjar-
stjórn því að niðurgreiðsla til
dagmæðra verði hækkuð úr 29.750
kr. í 40.000 kr. Niðurgreiðsla til
dagmæðra hefjist fyrr og að
viðmiðunaraldur lækki úr 15
mánuðum niður í 12 mánuði.
Vistunargjald fyrir á klukkustunda
vistun fari úr 25.280 kr. í 23.763.
krónur (lækki um 6%).
Vistunargjald í Frístundaveri verði
lægst viðmiðunarsveitarfélaga eða
14.020. Frítt verði í sund fyrir öll
börn búsett í Vestmannaeyjum að 18
ára aldri. Að öldruðum verði áfram
auðveldað að búa í eigin húsnæði
með niðurfellingu á fasteignarskatti.
Í lokin er minnt á að stutt er síðan
bæjarstjórn samþykkti að lækka
útsvar úr hámarki, 14,52%, í
13,98%.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Allar kennitölur í
rekstri sýna sterka og
góða fjárhagsstöðu
Vestmannaeyjabæjar.
Veltufjárhlutfall
sveitarsjóðs er 12,02
og eiginfjárhlutfallið
er 66,17%.
”