Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Blaðsíða 1
°
°
Vestmannaeyjum 23. júlí 2014 :: 41. árg. :: 30. tbl. :: Verð kr. 400 :: Sími 481-1300 :: www.eyjafrettir.is
M
yn
d:
Ó
sk
ar
P
ét
ur
F
ri
ðr
ik
ss
on
Það er einhver
leki í pípunum
vegvísar um
heimaey >> 8>> 6>> 11
stórt skref í
ferðaÞjónustu
Tekjur Ísfélagsins hf. voru um 16
milljarðar króna á síðasta ári á
móti 17,1 milljarði 2012. Gjöld
voru 10,1 milljarður en voru 11,2
milljarðar árið 2012. Hagnaður
fyrir afskriftir var 5,3 milljarðar
eða 33 prósent en hann var 5,9
milljarðar eða 34,4 prósent árið á
undan. Samkvæmt uppgjörinu
hafa því tekjur heldur lækkað á
milli áranna 2012 og 2013 og
hagnaður er minni.
Þetta kom fram á aðalfundi félagsins
sem haldinn var í Ásgarði í gær.
Félagið gerir upp í bandaríkjadölum
en hér eru upphæðir umreiknaðar í
íslenskar krónur á genginu 116.
Ísfélagið er með rekstur í Vestmanna-
eyjum og á Þórshöfn.
Afskriftir ársins voru liðlega 1,1
milljarður en voru rétt rúmur
milljarður króna 2012. Rekstrar-
hagnaður ársins var 4,2 milljarðar
sem er aðeins meira en 2012 en þá
var hann rétt tæpir 4,2 milljarðar.
Fjármagnsgjöld voru 348 milljónir
og höfðu hækkað úr 104 milljónum á
milli ára. Reiknaður tekjuskattur var
730 milljónir en var 777 milljónir
2012. Hagnaður ársins er samkvæmt
þessu liðlega 3 milljarðar á móti 3,3
milljörðum króna 2012.
Fastafjármunir Ísfélagsins eru 17,8
milljarðar en voru í árslok 2012 18,3
milljarðar. Veltufjármunir 9,6
milljarðar en voru 8,5 milljarðar
2012. Eigið fé er 13,7 milljarðar eða
49,8 prósent á móti 11,8 milljörðum
króna eða 43,9 prósentum 2012.
Skuldir um áramót voru 13,8
milljarðar en voru 15 milljarðar í lok
árs 2012.
Hreint veltufé frá rekstri var rétt
tæpir 4 milljarðar og handbært fé frá
rekstri 2,6 milljarðar króna.
Greidd laun á árinu voru 3,8
milljarðar og fjöldi starfsmanna 290.
Í stjórn Ísfélagsins eru Gunnlaugur
Sævar Gunnlaugsson, stjórnar-
formaður, Guðbjörg M. Matthías-
dóttir, Sigurbjörn Magnússon,
Þórarinn Sigurðsson og Einar
Sigurðsson. Framkvæmdastjóri er
Stefán Friðriksson.
Ísfélagið er þarna enn eitt árið að
skila frábæri afkomu og í vikunni
tekur það á móti nýju og glæsilegu
skipi, Sigurði VE, sem er væntan-
legur til heimahafnar á föstudaginn
um hádegisbilið. Af því tilefni verður
skipið til sýnis almenningi frá kl.
14.00 til 17.00 sama dag. Er ósk
stjórnenda félagsins að sjá sem flesta
þar.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Aðalfundur Ísfélagsins var haldinn í gær :: Heildarvelta 2013 16 milljarðar:
Hagnaður liðlega 3 milljarðar
á móti 3,3 milljörðum 2012
:: Greidd laun á árinu voru 3,8 milljarðar og fjöldi starfsmanna 290 :: Nýr
Sigurður VE til heimahafnar á föstudaginn
Undirbúningur þjóðhátíðar er nú hafinn á fullum krafti og rísa mannvirkin hvert af öðru í Herjólfsdal þessa
dagana. Á myndinni hér að ofan eru feðgarnir Ólafur Týr Guðjónsson og Ólafur Freyr að mála en Ólafur eldri
hefur séð um þennan þátt undirbúningsins undanfarin ár. Fleiri myndir úr Dalnum má finna á síðu 10.
Eigið fé er 13,7 milljarðar eða 49,8 prósent
á móti 11,8 milljörðum króna eða 43,9
prósentum 2012.”
Vínbúðin
flytur á
Vesturveg-
inn
Fyrr á þessu ári óskaði ÁTVR
eftir tilboðum í leigu á nýju
húsnæði fyrir vínbúð sína í
Vestmannaeyjum. Nokkur tilboð
bárust og var ákveðið að semja
við Guðmundu Hjörleifsdóttur
sem á og rekur verslunina Volare
og Barnaborg á Reynistað við
Vesturveg.
„Þeir taka við fyrsta húsnæðinu
1. október en við ætlum að hætta
verslunarrekstri og einbeita okkur
að innflutningi og sölu á
Volarevörunum,“ sagði Sigur-
sveinn Þórðarson, verslunarstjóri.
„Barnaborg flyst í gamla
Apótekið þar sem Hafþór
Halldórsson og Eva María
Jónsdóttir reka verslunina Tölvur
og sport. Allt garn og handa-
vinnuvara fer svo til hennar Jónu
í verslun Grétars Þórarinssonar
við Heiðarveg. Við verðum með
rýmingar- og útsölu í ágúst og