Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Síða 2
°
°
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Gísli Valtýsson - gisli@eyjafrettir.is.
Blaðamenn: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is,
Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og
Júlíus G. Ingason, - julius@eyjafrettir.is.
Ábyrgðarmaður: Gísli Valtýsson.
prentvinna: Eyjasýn/ Eyjaprent.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
veffang: www.eyjafrettir.is
eyjafrÉttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er selt
í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
eyjafrÉttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
eyjafrÉttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Slysið í sundlauginni á laugardag:
Afrek að bjarga tveimur
:: Sjúkrabíll kominn á staðinn á fimm mínútum :: Mennirnir tveir á
batavegi :: Varúðarmerkingar alþjóðlegar og öryggiskröfur ríkar
Tveimur mönnum var bjargað
frá drukknun í sundlaug
Íþróttamiðstöðvarinnar á
laugardag. Báðir voru með-
vitundarlausir þegar þeim var
bjargað af botni dýpri enda
laugarinnar en starfsfólk
sundlaugarinnar brást skjótt við
og hóf endurlífgunartilraunir,
sem báru árangur. Mennirnir
tveir, sem eru frá Gana, voru
fluttir með þyrlu á Landspítal-
ann í Reykjavík til frekari
meðhöndlunar en voru útskrif-
aðir af gjörgæslu á sunnudag og
eru á batavegi.
Svo virðist sem annar mannanna
hafi óvart farið í dýpri enda
laugarinnar en hann er ósyndur.
Hinn maðurinn hafi svo ætlað að
bjarga félaga sínum með fyrr-
greindum afleiðingum. Þeir félagar,
ásamt aðstandanda, lýstu atburða-
rásinni í viðtali á Pressunni. Í máli
þeirra kom m.a. fram að sá sem fór
á eftir félaga sínum, hafi kallað á
hjálp en enginn hafi heyrt í honum.
Þá segir aðstandandi þeirra að
sjúkrabíll hefði ekki komið fyrr en
fimmtán mínútum eftir slysið en
það var síðan leiðrétt með gögnum
Neyðarlínunnar sem sýna að
sjúkrabíll hafi verið kominn á
vettvang fimm mínútum eftir
útkallið.
Stoltur af mínu starfsliði
„Það er í raun einstakt að tveir
aðilar drukkni á sama tíma í
sundlaug og höfðu menn ekki leitt
hugann að þeim möguleika. Það
gerir afrek starfsfólksins því enn
stærra en tveir starfsmenn urðu
varir við mennina á botni laugar-
innar á sama tíma,“ sagði Arnsteinn
Ingi Jóhannesson, forstöðumaður
Íþróttamiðstöðvarinnar. „Allir
starfsmenn brugðust rétt við og
fylgdu viðbragðsáætlun sinni
fullkomlega og meira til samkvæmt
fyrstu viðtölum sem er aðdáunar-
vert miðað við aðstæður. Það er
ekki bara mikilvægt að kunna réttu
handtökin og geta beitt þeim heldur
er ekki síður mikilvægt að hafa
stjórn á vettvangi og halda öðrum
gestum rólegum sem mér skilst að
hafi tekist vel. Ég er verulega
stoltur af mínu starfsliði sem vann
stórt afrek þennan dag. Það er
einnig magnað hvað við erum
heppin að eiga til taks afburðafólk í
sjúkraflutningum, lögreglu, lækna
og fleiri sem kunna að höndla
aðstæður sem þessar og er mætt á
staðinn eftir örfáar mínútur. Svo
má ekki gleyma aðstoð nokkurra
gesta sem var ómetanleg enda
aðstæður óvenjulegar.“
Arnsteinn segir að ríkar öryggis-
kröfur séu gerðar í sundlaugum
landsins og hafi kröfurnar verið
hertar síðastliðið ár. „Sundlaugar-
verðir, allir aðrir starfsmenn auk
kennara og sundþjálfara sitja
skyndihjálparnámskeið árlega sem
er sérstaklega miðað að björgun úr
sundlauginni. Fólkið er þá einnig
þjálfað verklega og þarf að standast
hæfnispróf í lauginni. Starfs-
mönnum er svo uppálagt að æfa
þessi viðbrögð mánaðarlega hvert
með öðru. Einnig hafa kröfur verið
auknar varðandi varúðarmerkingar
og þær orðnar alþjóðlegar. Sund-
laugarsvæðið er vaktað með 12
öryggismyndavélum sem ávallt einn
starfsmaður fylgist með. Einn
starfsmaður hefur því yfirsýn yfir
alla botna í laugum og pottum á
svæðinu. Næstu skref hjá okkur eru
að vinna úr þessari reynslu með
starfsmönnunum, fara yfir atburðinn
skref fyrir skref, skoða myndbands-
upptökur til að átta okkur á orsök
slyssins og reyna að draga lærdóm
af þessu skelfilega slysi. Ef til vill
má bæta eitthvað þó að við teljum
öryggismálin hjá okkur í topp-
standi,“ sagði Arnsteinn.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti
svo vestur á hamri þar sem
mennirnir tveir voru fluttir um borð
og flogið með þá til Reykjavíkur en
mikil þoka var þegar slysið varð.
Starfsmenn Íþróttamiðstöðvarinnar sem komu að slysinu. Frá vinstri: Díana Íva Gunnarsdóttir, Aníta
Elíasdóttir, Erlingur Orri Hafsteinsson, Sveinbjörn Guðmundsson og Elísabet Einarsdóttir.
JúlíuS G. InGaSon
julius@eyjafrettir.is
Framkvæmda- og
hafnarráð:
Varla
ákjósan-
legt að
flytja
sorp með
Herjólfi
Á síðasta fundi framkvæmda- og
hafnarráðs var rætt um framtíð
sorpmála í Vestmannaeyjum og
hvaða leiðir eru til úrbóta. Segir í
fundargerð að ljóst sé að
núverandi fyrirkomulag er ekki
viðunandi til framtíðar og leita
þarf leiða til úrbóta.
Samþykkt var tillaga um að skipa
starfshóp sem ætlað er að koma
með tillögur að framtíðarlausn í
sorpmálum Vestmannaeyja. Hann
skipa Sigursveinn Þórðarson, Stefán
Ó. Jónasson, Ívar Atlason, Friðrik
Björgvinsson og Ólafur Þór
Snorrason. Hópurinn skal skila
tillögum til ráðsins eigi seinna en í
desember nk.
„Eftir að sorpeyðingarstöðinni var
lokað 2012 hefur ástandi sorpmála
verið ábótavant,“ sagði Sigursveinn
í samtali við Eyjafréttir. „Það er
mikilvægt að við finnum lausn til
framtíðar í þessum efnum. Í dag er
hluti af sorpinu fluttur til brennslu
upp á land. Því fylgir töluverður
kostnaður og eins getur það varla
talist ákjósanlegt að flytja sorp með
Herjólfi. Augljóslega misstum við
þá orkuöflun sem gamla sorpeyð-
ingarstöðin framleiddi áður en
henni var lokað og það hlýtur að
vera hluti af því sem litið verður til
þegar nýjar leiðir verða skoðaðar.
Starfshópurinn á að fara yfir þessi
mál og skoða þær leiðir sem eru í
boði.“
Þannig var brúin á Herjólfi mönnuð
um helgina. Gísli Valur Gíslason,
yfirstýrimaður; Ívar Torfason,
skipstjóri og Ingibjörg Bryngeirs-
dóttir, stýrimaður. Meðalaldurinn er
33,3 ár og öll eru þau bekkjar-
systkini úr Stýrimannaskólanum.
Bekkjarsystkin við
stjórnvölinn
Frá vinstri: Gísli Valur, Ívar og Ingibjörg.
Stjórn Ísfélagsins var endurkjörin á aðalfundi félagsins í gær. Hún stillti sér upp í lok fundar fyrir Óskar
Pétur, ljósmyndara Eyjafrétta ásamt framkvæmdastjóra félagsins. F.v. Stefán Friðriksson, framkvæmda-
stjóri, Einar Sigurðsson, Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarformaður, Guðbjörg M. Matthíasdóttir,
Þórarinn Sigurðsson og Sigurbjörn Magnússon. Næsta verkefni stjórnar er að taka á móti Sigurði VE sem
kemur til heimahafnar í Vestmannaeyjum frá Tyrklandi á föstudaginn.