Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Page 9
°
°
9Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014
Umfram allt mannlegur
Gauti segist ekki hafa fyrirmynd í
starfi en hefur haft það að leiðarljósi
að vera mannlegur en það hafi
stundum komið í bakið á sér. „Ég
hef reynt að vera ekki of ferkant-
aður og litið á mitt hlutverk sem
þjónustustarf við íbúana hér. Ég er
að þjóna fólkinu, ég reyni að leysa
úr vandamálum, leiðbeina fólki í
vandræðum innan marka laganna.
Ég er mjög stoltur af því hvernig ég
hef unnið mína vinnu.“
Og það eru eflaust margir
sammála því en það getur örugg-
lega verið erfitt að aðskilja vinnu
og einkalífið í svona starfi, ekki
satt?
„Ég hef reynt að vera alltaf til taks
þannig að það sé alltaf hægt að ná í
mig, sérstaklega þegar einhverjar
uppákomur eru í bænum. Þetta er
bara þannig starf og ekkert við því
að gera. Menn fara ekki í svona
starf og halda að þeir séu bara lausir
eftir að skrifstofunni er lokað.“
Skákin og stjörnufræðin
En Gauti hefur alls ekki setið
auðum höndum utan vinnunnar.
Með frumkvæði sínu og eldmóði
hefur hann gert margt uppbyggilegt
og jákvætt fyrir bæjarlífið á
mörgum sviðum. Hann hreinlega
fann upp áhugamál og leitaði þau
uppi.
„Ef ég byrja á skákinni þá var það
sérstaklega skemmtilegur tími, það
var mikill uppgangur í krakka-
skákinni hér um tíma, krakkar
héðan unnu fjölmarga Íslandsmeist-
aratitla. Við Magnús Matt., Björn
Ívar og Sverrir unnum að þessu í
mörg ár og það gekk geysivel, en nú
er svo komið að við erum allir
farnir burtu, forkólfarnir.
Svo með Stjörnufræðifélagið, þá
datt mér þessi hugmynd í hug einn
daginn og talaði við Visku og síðan
hófum við námskeið í stjörnufræði.
Ég kunni þetta svolítið úr mennta-
skóla, en fólkið sem kom á
námskeiðið var svo hrikalega
áhugasamt að það smitaði mig og
þetta varð hrein unun, alveg
frábært. Það voru haldin fjögur eða
fimm námskeið og upp úr því kom
hópur af mjög skemmtilegu og
áhugasömu fólki sem elskaði þetta
og vildi gera eitthvað öðruvísi.
Það gjörsamlega opnast nýr
heimur fyrir fólki þegar það
uppgötvar nýjar víddir í tilverunni,
sem er nú ekkert smávegis! Svo hef
ég látið sjá mig alls staðar þar sem
verið er að bjóða upp á hrossakjöt,
skötu, sviðakjamma, fiskrétti og
kótelettur og þetta eru svo margar
veislur að það nær næstum yfir
allan veturinn. Þetta hefur verið
mjög gaman, en ég hef ekkert
grennst á meðan.“ segir Gauti og
hlær og man síðan eftir öðru
áhugamáli sem hann vill nefna en
það eru stjórnmálin þar sem hann
hefur verið oddviti yfirkjörstjórnar
Suðurkjördæmis síðustu 16 árin.
„Það hefur verið mjög gefandi
vinna og alltaf ákveðin keppni milli
kjördæma um fyrstu tölur og að
klúðra nú ekki neinu. Það starf
hefur verið mér tilbreyting eins og
t.d. þegar ég nýlega vann að
bæklingi fyrir ráðuneytið í tengslum
við kosningar.“
Það eru kostir og gallar við öll
störf og segir Gauti fjölbreytni og
tækifærið til að hitta fullt af fólki
vera helstu kostina við starfið en
þegar blaðamaður spyr um galla
starfsins þá hefði mátt heyra
saumnál detta og það gerist nú ekki
oft í návist Gauta fyrir þá sem
þekkja hann. Hann horfir hugsandi
út í loftið en segir svo að hann muni
ekki eftir neinu sérstöku eða jú, að
það sé erfitt að missa tengsl við
lögfræðistéttina. „Ég hitti ekki
marga lögfræðinga og maður missir
þar af leiðandi tengslin við félagana
og það getur verið erfitt og hættan
er sú að maður einangrist og missi
„touchið“ ef svo má að orði
komast.“
55 ára og uppfullur orku
Það er mikil eftirsjá að fjölskyldan
sé að flytja frá Eyjum og eftir að
Gauta var boðin nýja staðan þurftu
þau að íhuga það vel en strákarnir
þeirra eru báðir farnir upp á land í
skóla. Þetta var þeim erfið ákvörðun
segir Sigurlaug. „Það er mikil
eftirsjá að staðnum, en nú er nýr
kafli að byrja og góðum kafla í lífi
okkar lokið.“
Gauti segist hafa tekið stöðunni
vegna þess að hann vildi prófa
eitthvað nýtt og þroska sig í starfi
enn frekar því 16 ár í sama starfinu
eru ágætur tími segir hann. Það var
annað hvort að drífa sig eða klára
hér næstu 15 árin. Við ákváðum
bara að vera áræðin, sveigjanleg og
láta framtíðina koma í ljós. „Ég er
uppfullur af orku, 55 ára gamall.“
segir Gauti hlæjandi.
Alltaf má fá annan planka
Gauti er byrjaður í nýja starfinu,
sem skólastjóri Lögregluskólans og
segir hann það mjög ólíkt gamla
starfinu en hann sé svo nýbyrjaður í
því og sé enn að læra inn á það.
Hann vonast til að hitta fullt af
skemmtilegu fólki í starfinu og telur
hann það nauðsynlegt fyrir sína
manngerð. „ Ég vona að þetta verði
bara gaman og ég hlakka til að
kynnast þessu og er jákvæður á
framhaldið. Ég þarf ekkert að skipta
um búning, ég fer bara í sama
gallann“, segir Gauti í gríni. „Það
standa til miklar breytingar á
lögregluskólanum, endurskipulagn-
ing og fleira, þannig að ég veit í
raun ekkert hvað framtíðin ber í
skauti sér. En ég sit bara á plank-
anum og flýt með, en ef ekki þá
stekk ég bara á annan planka.“
Má ekki gefa þumlung eftir!
Fjölskyldan kveður með söknuði í
hjarta og vill þakka Eyjamönnum
samfylgdina seinustu 16 árin. En
eruð þið með einhver heillaráð til
okkar Eyjamanna áður en þið farið?
Sigurlaug: „Ég vona að samgöng-
urnar verði betri en það er undir-
staða þess að hér blómstri mann-
lífið.“
Gauti: Það er lykilatriði að standa
vörð um sjúkrahúsið og þar má ekki
gefa þumlung eftir! Hér verður að
vera fullnægjandi læknisþjónusta
svo unnt sé að skera upp sjúklinga
og fæða börn hér, annað eru
hreinlega bara hamfarir fyrir
samfélagið,“ segir Gauti með
ákveðinni röddu eins og honum
einum er lagið þegar málefni sem
snerta hann eru í umræðunni.
Það er mikil eftirsjá að missa
svona góða fjölskyldu frá Vest-
mannaeyjum og óskum við þeim
velfarnaðar í framtíðinni.
Fjölskyldan sem nú er að flytja sig um set. Silla, Alexander, Kristófer og Karl Gauti.
Ef ég byrja á skákinni þá var það sér-
staklega skemmtilegur tími, það var
mikill uppgangur í krakkaskákinni hér
um tíma, krakkar héðan unnu fjölmarga
Íslandsmeistaratitla. Við Magnús Matt.,
Björn Ívar og Sverrir unnum að þessu í
mörg ár og það gekk geysivel, en nú er
svo komið að við erum allir farnir burtu,
forkólfarnir.
Svo með Stjörnufræðifélagið þá datt
mér þessi hugmynd í hug einn daginn og
talaði við Visku og síðan hófum við
námskeið í stjörnufræði. Ég kunni þetta
svolítið úr menntaskóla, en fólkið sem
kom á námskeiðið var svo hrikalega
áhugasamt að það smitaði mig og þetta
varð hrein unun, alveg frábært.
”
Elliði Vignisson, bæjarstjóri var meðal þeirra sem ávörpuðu Gauta og Sillu í kveðjuhófi á heimili þeirra.