Fréttir - Eyjafréttir

Issue

Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Page 14

Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Page 14
° ° 14 Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014 Landsmót skáta í sól og blíðu :: Faxakrakkar létu sig ekki vanta: Forrita, skylmast og búa til hluti :: Leysa þrautir og fara yfir þrautabrautir Ómar Nú stendur yfir stórhátíð skáta, Landsmót skáta, sem haldið er að Hömrum við Akureyri. Það byrjaði á sunnudaginn 20. júlí og stendur til sunnudagsins 27. Þemað í ár er „Í takt við tím- ann“. Á mótinu verður flakkað um í tíma og rúmi þar sem þátttakendur kynnast fortíð, nútíð og framtíð. Skátahreyf- ingin er stærsta æskulýðshreyf- ing í heiminum og taka um 600 erlendir skátar þátt í henni í ár. Landsmót er því gott tækifæri fyrir íslenska skáta að kynnast skátum erlendis frá. Skátar úr Skátafélaginu Faxa mættu á landsmótið og eru nú staddir á tjaldsvæðinu að Hömrum. Rjóma- blíða var á svæðinu og hófst mótið á sunnudag. Mikil gleði ríkir hjá félögum í Faxa sem deila tjaldbúð- um með vinum sínum í Mosverjum frá Mosfellsbæ. Dagskráin er þéttskipuð og skiptast dagskrárliðir í fortíð, nútíð og framtíð, auk þess sem farið er í gönguferðir og einnig verður Akureyri heimsótt. Í skátastarfinu í vetur hafa verið unnin verkefni sem eiga að undirbúa skátana til þess að takast á við krefjandi verkefni sem þeir þurfa að takast á við síðar á lífsleiðinni. „Ávallt viðbúinn“ eru einkunnarorð skáta og skátarnir í Eyjum eru tilbúnir að takast á við skemmtileg verkefni á Landsmótinu þar sem þeir þurfa m.a. að forrita, skylmast, búa til hluti og leysa þrautir og fara yfir þrautabrautir. Efla sjálfstraust skáta Í skátastarfinu er lögð áhersla á að treysta skátunum og efla sjálfstraust þeirra til að stuðla að sjálfsnámi. Hver og einn skáti leggur áherslu á að leggja sitt af mörkum til að starfið og mótið gangi sem allra best. Hefð hefur verið fyrir því í mörg ár að Skátafélagið Faxi hafi verið með stærstu fánastöngina á landsmótum og er mótið í ár engin undantekning á því. Það er ánægjulegt fyrir skátana að Eimskip styrkti félagið í ár við kaup á nýjum tjöldum fyrir mótið og eru skátarnir ánægðir með það. Eyjahópurinn. Neðsta röð f.v. María Fönn Frostadóttir, Leifur Rafn Kárason, Tinna Mjöll Frostadóttir, Björn Ásgeir Kristjánsson, Þráinn Jón Sigurðsson. Í miðjunni f.v. Frosti Gíslason, Elísa Hallgrímsdóttir. Efsta röð f.v. Ingvar Þór Ovesen , Þuríður Gísladóttir, Ingunn Silja Sigurðardóttir, Bjarni Guðjón Samúels- son, Hörður Bjarnason, Ármann Höskuldsson. Frosti og Ármann með fánastöng- ina stóru í bakgrunni. Bjarni Guðjón Samúelsson nýtur þess að vera á skátamóti í sólinni. Elísa, Bjarni, María Fönn, Þráinn Jón, Leifur Rafn, Tinna Mjöll, Björn Ásgeir og tveir Mosverjar í kassabílarallýi. Tinna Mjöll stekkur á milli steina í vatnasafaríi. Tinna Mjöll og María Fönn að læra að súrra. Þuríður dundar sér milli dag- skráratriða. Á laugardaginn voru haldnir tónleikar á Háaloftinu til styrktar Björgunarfélagi Vestmannaeyja. Hljómsveitin Kósýbandið lék en sveitin er að mestu leyti skipuð ungu og hæfileikaríku fólki úr Leikfélagi Vestmannaeyja. Lagavalið var þjóðhátíðarskotið enda stutt í þjóðhátíð en tónleik- arnir heppnuðust vel, þótt mætingin hefði að ósekju mátt vera betri. Framtakið er hins vegar flott en það var Elvar Eðvaldsson sem stóð fyrir tónleikunum. Flott framtak Hljómsveitin Kósýbandið spilaði á tónleikunum en bandið er að mestu skipað fólki sem hefur tekið þátt í starfi Leikfélags Vestmannaeyja. Una Þorvaldsdóttir og Anton Þór Sigurðsson voru meðal þeirra sem komu fram á tónleikunum.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.