Fréttir - Eyjafréttir - 23.07.2014, Side 15
°
°
Eyjafréttir / Miðvikudagur 23. júlí 2014 1515
Símamótið:
5. flokkur
vann mótið
Stúlkurnar í 5. flokki kvenna hjá
ÍBV urðu Símamótsmeistarar um
helgina þegar þær fóru taplaust í
gegnum mótið og enduðu á því að
sigra KR í framlengdum úrslitaleik.
Ásamt 5. fl. kvk, léku einnig 6. og 7.
flokkar á mótinu sem er eitt það
stærsta sem haldið er hér á landi.
ÍBV sendi 95 stelpur á mótið og var
Breiðablik, gestgjafarnir, eina liðið
sem sendi fleiri stelpur á mótið. Á
svona mótum eru foreldrar mjög
mikilvægir og voru foreldrar ÍBV-
stelpna félaginu til sóma og stóðu
sig gríðarlega vel. Leikið var í Kópa-
vogi en keppnissvæðið er gríðarlega
stórt og telur 27 velli. Nokkrum
völlum þurfti að loka eftir fyrstu tvo
dagana vegna rigningar en stelpurn-
ar létu það ekki á sig fá og létu svo
sannarlega ekki kappið bera feg-
urðina ofurliði. Þjálfarar flokkanna
voru mjög sáttir með stelpurnar en
ÍBV hefur gert það að hefð undan-
farin ár að senda margar stelpur frá
þremur flokkum á mótið og verður
vonandi ekki breyting þar á að ári.
Íþróttir
Framundan
Laugardagur 26. júlí
Kl. 14:00 Mídas - KFS
4. deild karla B-riðill.
Sunnudagur 27. júlí
Kl. 17:00 Stjarnan - ÍBV
Pepsídeild karla.
Mánudagur 28. júlí
Kl. 18:00 Fram - ÍBV
2. flokkur karla.
Þriðjudagur 29. júlí
Kl. 18:00 Stjarnan - ÍBV
Pepsideild kvenna.
Kl. 15:00 ÍBV - Grótta
3. flokkur karla A-lið.
Kl. 16:30 ÍBV - Grótta
3. flokkur karla B-lið.
Kl. 18:00 ÍBV - Grótta/KR
3. flokkur kvenna.
Miðvikudagur 30. júlí
Kl. 18:00 Þróttur/ÍA - ÍBV
2. flokkur kvenna bikar.
Evrópukeppnin í handbolta:
Enginn óskadráttur hjá ÍBV
- Erum að skoða þetta, segir formaðurinn - Stelpurnar fara til Ítalíu
Ekki er hægt að segja að karlalið
ÍBV hafi dottið í lukkupottinn
þegar dregið var í 2. umferð
EHF-bikarsins í handbolta. ÍBV,
sem var í efri styrkleikaflokki,
dróst gegn ísraelska liðinu Hapoel
Ris hon LeZi on en dregið var í
gærmorgun. Ísraelska liðið hefur
orðið meistari tvö ár í röð og
verðugt verkefni fyrir Eyjaliðið,
bæði sterkur mótherji og mjög
langt ferðalag. En það sem
kannski gerir dráttinn jafn
slæman og raun ber vitni, er
ástandið í Ísrael og verður seint
sagt að það sé draumurinn að
ferðast þangað eins og sakir
standa.
Áætlað er að leikirnir fari fram 6.
eða 7. september og síðari leikurinn
13. eða 14. september. Leikið er
heima og heiman en ekki er
óalgengt að lið komist að sam-
komulagi um að leika báða leikina á
öðrum hvorum staðnum, til að spara
ferðakostnað. Eins og staðan er
núna og miðað við ástandið í Ísrael,
er varla hægt að komast að annarri
niðurstöðu en að báðir leikirnir fari
fram í Eyjum. Þannig hafa bæði
Evrópska handknattleikssambandið
og Evrópska knattspyrnusambandið
bannað ísraelskum liðum að spila
heimaleiki sína í Ísrael að svo
stöddu. Þetta verða jafnframt fyrstu
leikir karlaliðsins því Íslandsmótið
hefst 18. september.
„Við erum að skoða þetta en það
verður að segjast eins og er að þetta
var enginn óskadráttur. Þetta er
eitthvað sem getur gerst þegar tekið
er þátt í svona keppni,“ sagði Sindri
Ólafsson, formaður handknattleiks-
ráðs ÍBV.
Mæta Salerno
Kvennalið ÍBV tekur einnig þátt í
Evrópukeppninni og fer einnig til
Miðjarðarhafsins en þó ekki lengra
en til Ítalíu því ÍBV mætir Salerno í
2. umferð EHF-bikars kvenna.
Salerno varð ítalskur meistari 2010
og 2011 og má því búast við
hörkurimmu. Leikirnir fara fram
18. eða 19. október og 25. eða 26.
október.
Pepsídeild kvenna:
Þriðja tapið í röð hjá stelpunum
Kvennalið ÍBV í knattspyrnu
hefur nú tapað þremur leikjum í
röð. Liðið situr í sjöunda sæti
deildarinnar með 12 stig, 3
stigum á eftir Val, sem er sæti
ofar. ÍBV tapaði fyrir Breiðabliki
á útivelli í síðustu viku og svo
fyrir Selfossi á heimavelli á
mánudag.
Fyrir leikinn gegn Breiðabliki
samdi ÍBV við tvo erlenda
leikmenn sem eiga að styrkja liðið.
Eftir rólegar upphafsmínútur fékk
Shaneka Gordon boltann í gegnum
vörn Blika og kláraði með skoti
undir markvörð gestgjafanna. Jóna
Kristín Hauksdóttir náði síðan að
jafna metin eftir flotta sókn Blika.
Natasha Anasi, annar nýju leik-
manna ÍBV, kom inn á í hálfleik og
það tók hana aðeins rúmar fimm
mínútur að setja mark sitt á leikinn
þegar hún fékk stungusendingu
innfyrir vörnina og renndi boltanum
undir markvörð Blika. Næstu
mínútur réðu Blikar ferðinni og fór
síðan svo að á seinasta korteri
leiksins reyndist Fanndís Friðriks-
dóttir, sem ólst upp í Vestmanna-
eyjum, vera aðalmunurinn á
liðunum en hún gerði þrennu og þar
á meðal var eitt mark beint úr
hornspyrnu.
Selfoss hafði betur
Á mánudag fengu síðan Eyjakonur
heimsókn frá nágrönnum sínum
ofan af Selfossi en liðin áttust
einnig við í 8-liða úrslitum
bikarsins þar sem Selfyssingar
sigruðu í vítakeppni. Fyrri hálf-
leikur leiksins var einn sá allra
leiðinlegasti sem sést hefur á
Hásteinsvelli en fátt gerðist og voru
sendingar liðanna afar slæmar. Í
síðari hálfleik tókst Selfyssingum
það sem Eyjakonum mistókst, að
nýta vindinn en þær uppskáru mark
í byrjun síðari hálfleiks þegar
Celeste Boureille skoraði ágætt
skallamark úr vítateignum.
Nokkrum mínútum seinna fékk
Selfoss aukaspyrnu af fjörutíu
metra færi sem Erna Guðjónsdóttir
tók og vildi svo ekki betur til en að
boltinn fór í gegnum allan pakkann
og endaði í netinu og orðið erfitt
fyrir heimakonur að koma til baka
úr þessu, gegn vindinum. Þeim
tókst þó að skapa ágætis færi áður
en Erna Guðjónsdóttir skoraði
annað mark sitt og í þetta skiptið
beint úr hornspyrnu, hún fékk síðan
rautt spjald undir lok leiksins.
Pepsídeild karla: ÍBV - Fram 2:0
Lyftu sér upp í sjöunda sætið
Eyjamenn hafa heldur betur rifið sig
í gang í Pepsí-deildinni eftir heldur
erfiða byrjun en þeim tókst að halda
hreinu í sínum fyrsta leik í sumar
og jafnframt landa tveggja marka
sigri gegn Fram sem stefnir
beinustu leið niður.
Sigurinn var sá þriðji í röð hjá
Eyjamönnum en það var Víðir
Þorvarðarson sem kom ÍBV yfir
þegar hann átti skot úr aukaspyrnu í
varnarvegg Framara og þaðan í
markið. Eyjamenn sóttu mikið í
fyrri hálfleiknum og hefðu hæglega
getað komist fleiri mörkum yfir en
gengu þó til búningsherbergja með
eins marks forskot. Markið frá Víði
gerði það að verkum að hann er nú
búinn að skora í fjórum síðustu
deildarleikjum liðsins og er því
kominn með fimm mörk í deildinni.
Eftir tíðindalítinn síðari hálfleik
skoraði Jonathan Glenn í autt
markið eftir ævintýrarlegt skógar-
hlaup markvarðar Framara en hann
er því kominn með sjö mörk í
deildinni og trónir á toppnum yfir
markahæstu leikmenn deildarinnar.
441 mætti á völlinn en vonandi
verða þeir fleiri sem leggja leið sína
á völlinn þegar ÍBV tekur á móti
KR í undanúrslitum Borgunar-
bikarsins rétt fyrir þjóðhátíð.
Pepsídeild karla
FH 12 8 4 0 22:8 28
Stjarnan 12 7 5 0 22:14 26
KR 12 7 1 4 19:14 22
Víkingur 12 7 1 4 15:14 22
Keflavík 12 4 5 3 17:14 17
Valur 12 4 3 5 17:19 15
ÍBV 12 3 4 5 18:19 13
Breiðablik 12 2 6 4 15:19 12
Fjölnir 12 2 5 5 17:21 11
Fylkir 12 3 2 7 16:24 11
Þór 12 2 3 7 18:21 9
Fram 12 2 3 7 15:24 9
Pepsídeild kvenna
Stjarnan 10 9 0 1 35:7 27
Fylkir 10 6 2 2 9:5 20
Breiðablik 10 6 1 3 27:9 19
Selfoss 10 6 1 3 25:16 19
Þór/KA 10 5 3 2 14:10 18
Valur 10 4 3 3 20:16 15
ÍBV 10 4 0 6 18:17 12
FH 10 2 2 6 7:31 8
Afturelding 10 2 0 8 7:29 6
ÍA 10 0 0 10 4:26 0
Kristín Erna Sigurlásdóttir í leiknum gegn Selfossi.
Agnar Smári Jónsson og félagar
hans í ÍBV þurfa vonandi ekki að
ferðast til Ísrael í haust.
Jonathan Glenn hefur verið sjóðandi heitur með ÍBV undanfarið og er
nú markahæsti leikmaður deildarinnar með sjö mörk. Hann fram-
lengdi samningi sínum í vikunni og leikur með ÍBV næsta sumar.
4. deild karla, B-riðill:
Enn einn sig-
urinn hjá KFS
KFS sótti þrjú stig á Stokkseyri í
síðustu viku en KFS liðið var gríðar-
lega vel mannað eins og venjan hef-
ur verið á þessu tímabili. Tryggvi
Guðmundsson kom KFS í 2:0 í fyrri
hálfleik en Gauti Þorvarðarson bætti
þriðja markinu við í upphafi síðari
hálfleiks. Gauti meiddist reyndar í
fyrri hálfleik en þrjóskaðist við.
Þrátt fyrir látlausa sókn KFS náði
Stokkseyri að minnka muninn undir
lokin. Niðurstaðan því 1-3 útisigur
og er liðið því áfram taplaust í
sumar.
KFS fékk síðan KB í heimsókn á
laugardaginn sl. en með sigri hefði
liðið náð tíu stiga forystu á toppi
deildarinnar. Það gekk eftir þó svo
að Gauti Þorvarðarson hafi ekki
getað spilað vegna meiðsla. Stefán
Björn Hauksson skoraði mark strax
eftir tveggja mínútna leik en gest-
unum tókst að jafna eftir að Elías
Fannar hafði brotið á leikmanni liðs-
ins innan teigs. Tryggvi Guðmunds-
son bætti síðan við þremur mörkum
en Stefán Björn skoraði svo annað,
Guðjón Ólafsson gerði einnig eitt og
lokatölur því 6:1. KFS er því með
tíu stiga forskot á toppi deildarinnar
og er nánast gulltryggt með efsta
sæti riðilsins.