Bæjarblaðið - 14.05.1982, Síða 3

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Síða 3
Bœjorblodid 3 áfengismál...áfengismál...áfengismál...áfengssnnál...áfengismál...áfengismál...áfengismál...áfengismál... , ,AF AVðXTUNUNI ÞEIRRA SKULUÐ ÞÉR ÞEKKJA ÞA” - kafli úr prédikun sem sóknarprestur flutti í Akraneskirkju sunnudaginn 9. mai s.l. Nú eru kosningar í nánd hér á okkar landi, enda mikið um að vera og mikið um pólitík rætt, bæði í fjölmiðlum og manna á meðal. Ekki ætla ég mér að blanda mér í pólitískar umræður og pólitískar deilur, eða viðhafa pólitískan áróður, síst af öllu af prédikunar- stólnum. En það er þó eitt atriði í sambandi við þær kosningar, sem nú fara senn í hönd, atriði sem sérstaklega snýr að okkur Akur- nesingum sem ég get alls ekki lát- ið hjá líða að minnast á. ( sam- bandi við kosningarnar eigum við nefnilega að greiða atkvæði um það líka, hvort viðviljum, að opnuð verði áfengisverslun hér í bænum okkar. Ég vona og bið, að hér sé enginn inni í dag, sem lætursértil hugar koma að stíga slíkt ógæfu- skref, og leggja sitt lóð á þá vogar- skál, sem kallar ómælt böl yfir börn þessa bæjar um ófyrirsjáan- legaframtíð. Ég hef sjálfur átt heima og starfað í bæ, þar sem áfengisverslun var opnuð. Mér er fullkunnugt um, að áfengisneysla stórjókst þegar eftir opnunina, leynivínsala, sem átti að þurrkast út samkvæmt kenn- ingu áróðursmeistara vínbúðar- innar, blómgaðist til muna og alvarleg umferðaslys margfölduð- ust. Og það sem að mínu starfi snéri sérstaklega. Á fyrsta árinu, sem vínbúðin var oþin, sundruðust fimm heimili og hjónabönd, vegna áfengisneyslu beggja hjónanna eða annars aðil- ans. Þau stóðu að vísu tæpt áður þessi hjónabönd, en þegar vín- búðin var komin í bæinn, þá var svo auðvelt að halda áfram strax á morgnanna, og það var sú freist- ing, sem varð þeim að endanlegu falli. Ég bið ykkur að athuga það, vinir mínir og áheyrendur, að hér er ekki um neitt að ræða sem heit- ið gæti hempugeip ekki heldur neitt froðusnakk mærðarfulls góð- templara, heldur blákaldar stað- reyndir, sem méreru persónulega og átakanlega kunnar. Þeir sem vilja opna hér áfengisverslun tala mikið og hrópa hátt um frelsi, vín- mennigu, og sjálfsögð mannrétt- indi. Já, frelsi, frelsi til þess að fella sjálfa sig og aðra í ánauðafjötra, réttindi til þess að stuðla að morði meðbræðra sinna á líkama eða sál, nema hvort tveggja sé. Vilt þú láta bendla þig við uppskeru slíkra ávaxta? En það gerir þú, ef þú greiðir atkvæði með opnun áfeng- isverslunar hér á Akranesi og einnig ef þú lætur hjá líða að greiða atkvæði gegn þeim voða- lega vágesti og gæfuspilli. „Gætið yðar. Af ávöxtum þeirraskuluð þér þekkja þá”. Þau orð Jesú eiga einnig við hér, og þau skyldu ekki gleymast. Björn Jónsson. \ Skagamenn sigrudu Úr leik l'A og ÍBK. Skagamenn sigruðu um síð- ustu helgi í Litlu-bikarkeppninni er þeir gerðu jafntefli í síðasta leik sínum gegn Kefivíkingum hér á Akranesi. Lauk leiknum með jafntefli ekkert mark var skorað. Nægði það Skaga- mönnum til sigurs á hagstæðara markahlutfalli en Keflvíkingar en bæði liðin hlutu jafnmörg stig. Gerði stórsigurinn gegn Hauk- um (8-0) gæfumuninn fyrir Skagamenn er þeir sigruðu í keppninni þriðja árið í röð. Á morgun hefst síðan íslandsmót- ið í knattspyrnu er Skagamenn V .11. " ................. mæta Breiðablik og fer leikurinn fram í Kópavogi. Úrslit leikja Akraness í Litlu- Bikarkeppninni: Breiðablik-ÍA 1-1 ÍA - Haukar 8-0 FH-ÍA 0-3 ÍA-ÍBK 0-0 Lokastaðan í Litlu bikarkeppn- inni: Akranes 4 2 2 0 12 1 6 Keflavík 4 2 2 0 8 3 6 Breiðablik 4 1 3 0 7 4 5 FH 4 1 1 2 5 7 3 Haukar 4004 0 17 0 f " 1. maí haldinn hátíélegur Þó svo að allt virðist benda til verkalýðsfélaganna við Kirkju- þess að sumarið sé nú loks kom- braut til Bíóhallarinnar þar sem ið til okkar, þá er ekki nema hálf- hátíðadagskrá fór fram. Þátttaka ur mánuður síðan norðangarri í hátíðahöldunum var nokkuð og éljagangur gerðu okkur lífið góð og þótti undrun sæta miðað leitt. Einmitt þá fóru fram hátíða- við hitastigið sem veðurguðirnir höld í tilefni frídags verkamanna. buðu upp á. Gengið var í kröfugöngu frá húsi Afengisútsala - REYNUM, VERBUM REYNSLUNNI RlKARI Undirskriftasöfnun áhuga- manna um opnun áfengisútsölu á Akranesi hefur farið fram og af- leiðing þess verður að á kosn- ingadaginn gefst almenningi kost- ur á að velja hvort hér eigi að opna ,,ríki” eða ekki. Ég vil með þessu skrifi mínu rekja þær ástæður, hvers vegna opna beri áfengisút- sölu hérá Akranesi. Ég hef verið búsettur hér á Akranesi síðastliðin 2 ár og jafn- framt hönnunarverkefnum hef ég einnig fengust við skipulagsverk- efni. Við gerð skipulagsins á mið- bæjarsvæðinu var það augljóst að mjög stór hluti verslunar Akurnes- inga fer fram í Reykjavík. Líkur benda til að allt að helmingur alls þess sem Akurnesingar kaupa er keypt í Reykjavík. Það er augljóst hversu mikinn gróða kaupmenn í Reykjavík hafa af okkur Akurnes- ingum. Þessu hlutfalli verður að breyta þannig að uppbygging verslunar geti haldið áfram. Keflavík er mjög gott dæmi um hvernig verslunarhættir breyttust. Við opnun útsölu þar og á árunum á eftir gjörbreyttist verslun í Kefla- vík til hins betra. Aðdráttarafl áfengisútsölu er mjög mikið, hvort mönnum líkar betur eða verr. Þetta aðdráttarafl eigum við að nota okkur en ekki hafna, þannig að það gefist færri ástæður til að faratil Reykjavíkurog verslaog þá að koma við í „ríkinu”. Einnig ber okkur að nota þetta aðdráttarafl til að fá fólkið úr nálægum sveitarfé- lögum, jafnvel utan að Snæfells- nesi, til að koma og versla hér ekki eingöngu í ríkinu heldur jafnframt í öðrum verslunum. Einnig má geta þes hér að fjöldi fólks úr Reykjavík kemur með Akraborginni á leið í sumarbú- stað. Þetta fólk þurfum við að stoppa hér og versla. Ein aðferðin er sú að opna hér áfengisútsölu. Útfrá skipulagslegu sjónarmiði er það mjög mikilvægt fyrir Akur- nesinga að hafa hér áfengisút- sölu. Opnun útsölu hefur verið reynd hér en andstaðan verið meiri og þá gagnrýnd með félagslegum rökum. Vandamál áfengisneyslu hefur ekki verið og verður aldrei leyst með höftum eða fordómum heldur með skilningi, fræðslu og reynslu. Alls staðar þar sem opn- un áfengisútsölu hefur verið leyfð hefur hún haldist opin, að vísu var útsölunni lokað á Akureyri um nokkur ár en svo opnuð aftur. Það þarf þroska til að umgangast áfengi og ég vil halda því fram að slíkan þroska hafi Akurnesingar. Egill í Stillholti hefur boðið við- skiptavinum sínum upp á áfenga drykki með mat undanfarandi ár' og ekki hefur reynslan af því verið slæm, nema síður sé, og sýnir það þann þroska sem þarf til að hafa útsölu hér. Ég vil hvetja Akurnesinga til að greiða atkvæði með opnun þegar þeir ganga að kjörborðinu laugar- daginn 22. maí. Það mun glæða og bæta alla verslun á Akranesi okkur til hagsbótar. Ef reynslan verður slæm getum við lokað útsölunni eftir 4 ár. REYNUM, VERÐUM REYNSL- UNNI RÍKARI. Magnús H. Ólafsson, arkitekt. AFENGISUTSALAN a akranesi Nokkrir hugsjónamenn hafa tekið sig til og safnað undirskrift- um um áfengisútsölu á Akranesi. Þeim fannst eitthvað vanta í þá menningu sem þeirsem þjóðhollir íslendingar þrá og fundu hvað það var. Það vantaði greiðari aðgang fyrr drukkið sig dauðadrukkin, drykkjuskapar, það vantaði að börn þeirra ættu hægara með að ná í svartadauða svo þau gætu til að fara í hundana vegna þyrftu ekki að sækja áfengið til Reykjavíkur. Gætu farið í lækinn hér heima það er nú það. Þetta eru staðreyndir. Nú þegar ungir sem aldnir fara að njóta ávaxtanna af þessari framkvæmd, þá fylgir vanalega auknir glæpir þjófnaðir skemmdarverk o.s.frv. í kjölfar drykkjunnar, þá er mér spurn. Hver er glæpamaðurinn ungling- urinn sem fremur skemmdarverk- ið eða stelur, bæjarstjórnin sem samþykkir áfengisútsöluna, mað- urinn sem skrifaði undir áskorun- ina? En þetta eru smámunir móti þeirri menningu sem slík stofnun ber með sér segja þeir. Þið vitið að það hefur verið stofnað skjalasafn Akraneskaupstaðar, þangað eiga að fara öll gögn, sem geta á ein- hvern hátt frætt okkur um sögu þessa ágæta staðar. Þar ættu m.a. heima listar þeir sem gengið var með til undirskrifta, svo síðari tímamenn gætu í lotningu tekið of- an fyrir þeim bjargvættum menn- ingar sem eiga nöfn sín þar undir. Og ekki síður þeirra sem stjórn- uðu slíku starfi. Þeir eiga það sannarlega skilið sem umbun fyrir sitt mikla starf til þess að gera enn léttara að þjóna sinni lund, fá sér einn lítinn, en verður það aðeins einn? Hugsið um þetta á kjördegi. Með hverju stuðlum við best að velferð barna okkar og bæjarfé- lagsins í heild. Ari Gíslason. STOFAN BÁRUGÖTU 21 SÍMI1970 Veggsamstæður frá kr. 4895.- Fururúm eins og tveggja manna með náttborðum. Samstæður og skrifborð í unglingaher- bergið. Svefnbekkir í sama lit. Snyrtivörudeild. Braun krullujárn í ferðalagið hitað með gasi. Premitta sólgleraugu. Skartgripir ýmiskonar. Fataskáparnir eru komnir aftur úr eik. Stæró: Hæó 184, breidd 100, dýpt 60. Nýkominn furuhúsgögn sófar, stólar, borð, í sumarbústaðinn, garðhúsið eða veröndina.

x

Bæjarblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.