Bæjarblaðið - 14.05.1982, Blaðsíða 8

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Blaðsíða 8
Safnaðarheimilið í byggingu. Bygging safnaðartieimilis á Akranesi: GÆTIVERIB FULIBUIÐ A 90 Ara afhiæu akraneskirkju - segir Ragnheiður GuðbjartsHóttir form. sðknamefndar Bmjorblodid 14. maí 1982 Verð kr. 9.00 STEFÁN LÁRUS PÁLSSON: Á kosningaveri Eins og flestir Akurnesingar hafa eflaust tekið eftir, er nú að rísa á horni Skólabrautarog Laug- arbrautar nýbygging safnaðar- heimilis Akraneskirkjusóknar. Bygging hússins hefur gengið einstaklega vel, því byrjað var á framkvæmdum fyrir aðeins tæpu ári síðan og er húsið nú nær fok- helt. Til að grenslast nánar fyrir um framkvæmdir allar, fjármögn- un og væntanlega starfsemi safn- aðarheimilisins sneri Bæjarblaðið sértil RagnheiðarGuðbjartsdóttur formanns Sóknarnefndar Akra- neskirkju og innti hana fyrst um aðdragandann og upphaf fram- kvæmda við safnaðarheimilið. ,,Það má eiginlega segja að fyrst hafi verið farið að hreifa hug- myndum um það hversu nauðsyn- legt væri að koma á fót safnaðar- heimili fyrir Akranessókn fyrir um tíu árum síðan,” sagði Ragnheið- ur, ,,og fyrsta skrefið í þá átt voru kaupin á lóðinni þar sem Vina- minni stóð áðurog vareign Slátur- félags Suðurlands. Var það í mars 1979 sem gengið var frá kaupum á lóðinni. Magnús Ólafsson arki- tekt hjá Verkfræði og teiknistof- unni s.f. teiknaði fyrir okkur húsið og fyrstu skóflustungu tók sr. Jón M. Guðjónsson þann 4. júlí 1981. Var strax hafist handa við fram- kvæmdir. Var Bergmundur Stlgs- son trésmiður ráðinn sem verktaki og nú tæpu ári síðar er safnaðar- heimilið nær fokhelt. En mikið verk er óunnið, því nú er fjármagn okk- ar nær þrotið að sinni. En það er von okkar að safnaðarheimilið geti verið fullbúið og starfsemi haf- in á 90 ára afmæli Akraneskirkju árið 1986”. Við spurðum Ragheiði með hvaða hætti bygging safnaðar- heimilisins hefði verið fjármögn- uð. Sagði hún að hingað til hefði það eingöngu verið unnið fyrir eig- ið fé úr kirkjusjóði en það fjármagn væri eins og fyrr greindi á þrotum nú. Safnaðarnefndin hefur leitað til bæjarstjórnar um fyrirgreiðslu. En að öðru leyti er ekki fullráðið hvaða leiðir verða farnar til að fjár- magna bygginguna. Hvaða starfsemi kemur safnað- arheimilið helst til með að hýsa? var okkar næsta spurning. „Hið nýja safnaðarheimili kem- ur til með að hýsa alla kirkjulega starfsemi í hvaða mynd sem hún er,” sagði Ragnheiður. „Við von- umst til að geta verið með öflugt æskulýðsstarf sem tengist þjóð- kirkjunni og margt, margt fleira. Fermingarundirbúningur getur all- ur farið þarna fram, kirkjukórinn fær góða æfingaaðstöðu og þá er þar stór salur sem rúmað getur um 150 manns í sæti. Þar væri hægt að halda m.a. tónleika og aðstaða mundi skapast til að leigja út sal- inn fyrir t.d. fermingarveislur, gift- ingaveislur og erfisdrykkjur svo eitthvað sé nefnt. Nú, þrengsli eru orðin mjög mikil í kirkjunni sjálfri til geymslu á ýmsum kirkjulegum skjölum og munum og þarna mundi skapast gott geymslurými fyrir þessa verðmætu og sögulegu muni. En sjálft skipulag hússins er þannig, að á neðri hæðinni verður samkomusalurinn sem áður er getið, herbergi fyrir kirkjuvörð og kórstjóra, auk rúmgóðs eldhúss og snyrting. Á efri hæðinni verður m.a. skrifstofa fyrir sóknarprest og fundarsalur sóknarnefndar. Eins og á þessu sést ætti að skapast í nýja safnaðarheimilinu öll sú að- staða sem æskileg er að sé fyrir hendi í svona stóru bæjarfélagi Fyrir skömmu var tekin í notkun ný viðbygging við verslunina Einar Ólafsson. Með viðbyggingu þess- ari hefur lagerrými verslunarinnar aukist stórlega og verslunin sjálf um leið stækkað út í fyrra lager- húsnæði. Eftir þessar breytingar svipar versluninni nú mjög orðið til þeirra vörumarkaðsverslana, sem rutt hafa sér til rúms á höfuðborg- arsvæðinu á síðustu árum og ættu því Akurnesingar ekki að þurfa að sækja til Reykjavíkur í slíkar versl- anir. Nú þegar er að finna margar vörutegundir á sértilboðsverðum í versluninni og mun í ráði að auka sem Akranes er. í beinu framhaldi af því vil ég segja, að það er skoð- un okkarsem að þessari byggingu stöndum að safnaðarheimiliö sé bein viðbót við sjálfa kirkjuna, því það má segja að gamla kirkjan okkar, sem nú er að verða 90 ára gömul, sé orðin svo rótgróin í sinni upþrunalegu mynd að ég efa að margir Akurnesingar vildu láta hana í skiptum fyrir nýja og kostn- aðarsama kirkjubyggingu. Og það er einmitt þess vegna sem við telj- um að safnaðarheimilið geti verið viðbót við kirkjuna og þar verði stunduð öll kirkjuleg starfsemi sem sjálf kirkjan getur ekki annað. Það er ósk okkar allra sem að þessu stöndum að nýja safnaðar- heimilið megi hýsa alla þá starf- semi er stuðlar að heilbrigðu og menningarlegu bæjarfélagi, og þetta verði hús mikilla verkefna og starfsemi. Verði „lifandi hús”, sagði Ragnheiður Guðbjartsdóttir að lokum. þar verulega við í framtíðinni, en þessar framkvæmdir nú renna enn fleiri stoðum undir það sem fram kom í Bæjarblaðinu í des. sl„ þar sem fjallað var um hæpinn hagnað Akurnesinga í að versla í Reykjavík. Þá hefur nú verið bætt við gjald- keraborðum í versluninni og eru þau nú fjögur og flýtir það mjög fyrirafgreiðslu. Verslunin Einar Ólafsson, eða Einarsbúð, eins og hún er gjarnan nefnd er nú elsta starfandi verslun á Akranesi. Trúlega hefur ekki farið framhjá íbúum þessa bæjar, að til stendur að við kjósum nýja bæjarstjórn 22. maí n.k. Miklu bleki er úthelt til að telja fólk (nú kallast fólk kjósendur) trú um þetta eða hitt, og hefur mörg spekin séð dagsins Ijós á síðum flokksblaðanna á Akranesi í hita leiksins. Útgáfa þessara blaða er nú með frískasta móti vegna kosninganna. Þessi blöð eru skrifuð á talsvert mismunandi hátt. Skaginn er oft nánast einkamál- gagn oddvita þeirra krata. Þar endursþeglast hugsanagangur leiðtogans. Og víst er að hann hef- ur haldið málgagninu lifandi með eigin kröftum um árabil. Enda eru oft heimildir tilgreindar á þennan hátt. „Samkvæmt heimild frá Guðmundi Vésteinssyni í o.s.frv. Aftur á móti virðist t.d. Ríkharður ekki mikið á síðum Skagans, hvað sem veldur, en ekki er það pláss- leysi, því í 3. tbl. Skagans var stór hluti blaðsins endurprentun úr gömlum ræðum og bókum fólks sem ekki stendur í víglínu A-list- ans hér. Magni, blað framsóknar, var líka á sínum tíma mikið skrifað af einum manni, Daníel Ágústínus- syni, sem af alkunnri atorku hélt blaðinu lifandi oft með hvössum penna. Nú hefur Magni breytt um svip. Ný kynslóð er tekin við stjórn þar, „ungt fólk með ferskar hug- myndir” segir blaðið. Þar stendur allstór hópur að efni í blaðinu. Hjá Magna virðist ekki skorta efni til að moða úr, enda virðist aðstand- endum B-lista liggja margt á hjarta. Þau beita sér ákaft fyrir ýmsum málum eins og t.d. smá- bátahöfninni. Þar hafa verið settar fram ákveðnar tillögur og teikning- ar sem eru sniðnar eftir fjárhags- getu og því raunhæfar. Einnig samræmast þær vilja þeirra sem málið varðar. Svona vinnubrögð eru sjaldgæf hér, því miður. Ann- ars standa mörg spjót á því fólki sem að Magna stendur nú. Það virðist liggja í loftinu að stefna þess hafi óvenju greiðan meðbyr í kosningaslagnum. Því reyna and- stæðingar nú að grafa upp óvirð- ingar sem venja hefur verið í kosn- ingahríð. Slíkt ber ekki alltaf ár- angur. Annars vekur það athygli hve samtaka sá hópur er sem stendur að B-lista og útgáfu Magna. Enginn ágreiningur hefur komið upp vegna röðunar í sæti listans. Prjófkjörið batt aðeins þrjú efstu sætin og almenn ánægja með þá niðurstöðu að tvær dug- miklar konur skuli skipa 2. og 3. sæti á listanum. Þar gefst Skaga- fólki kostur á að tryggja kvenþjóð- inni verðuga fulltrúa I bæjarstjórn. Því kona hefur ekki setið þar kjörin í 40 ár. Annars er það víst yfirlýst stefna B-lista fólks að gildi hvers einstaklings ráðist af athöfn og æði, en ekki kynferði, enda munu fulltrúar B-lista skoða sig sem full- trúa fólks, beggja kynja jafnt. Framtak blað D-listans, er að mörgu leyti á sama báti og Magni, að þar skrifa margir efnið. Þar eru höfundar oftast málefnalegir, lítið um persónulegt hnútukast, gagn- stætt því sem tíðkast í Dögun og Skaga, þar sem persónuleg óvild G. Vé. og Berta í garð annarra bæjarfulltrúa er oft aðal uppistað- an í skrifunum. Annars virðist það lítið álitamál að þeir bæjarfulltrúar sem láta persónufega óvild í ann- ara garð ráða ferðinni við af- greiðslu mála eins og tíðkast hefur hér blygðunarlaust og opinbert, eiga ekkert erindi í bæjarstjórn, því þeir „legátar” sem ekki eru menn til að stjórna skapi sínu svo vel sé, þeir stjórna ekki annarra málum af viti. Svo eru hér menn sem beita þannig vinnubrögðum hælast af þeim opinbert, og telja sjálfa sig sjálfsagða og ómissandi í bæjarstjórn og allt sem heitir op- inber stjórnun. I Framtak skrifar t.d. Guðjón Guðmundsson bæjar- fulltrúaefni D-lista. Hans skrif eru sérlega vönduð og öfgalaus. Með því betra sem hér sést. Talsverð keppni varð í prófkjöri um sætin ofarlega á D-lista sem enginn þar getur í dag ógnað veldi Valdimars. D-listinn hefur ekki enn sett fram neitt nýtt mál fyrir kosningarnar. Dögun, blað G-lista hefur verið að nokkru sér á báti. Það blað er skrifað mikið af 1 -2 manneskjum í hvert sinn. Síðasta kjörtímabil voru skrif í Dögun oft í anda Gróu sálugu frá Leiti og engum til sóma. Félagi Engilbert er að sjálfsögðu aðalpenni Dögunar. Ekki virðist hann hafa úr of miklu efni að moða yfirleitt. Hefur hann nú undanfarið brugðið á það ráð að birta nokkur heilsíðuviðtöl við tengdaföður sinn, Jónas Árnason hinn mæt- asta mann. Þá hefur Ragnheiður Þorgrímsdóttir nú undanfarið út- helt miklu blekflóði á síðum Dög- unar. Hún skipar 2. sæti á G-lista. Því lætur hún sem mest á sér bera að hætti „stjörnuframbjóðanda” og tjáir sig um útgangsop skolp- ræsa vorra og inntaksmannvirki neysluvatns og allt þar á milli og hefur lausnir á hraðbergi á flestu, svona almennt orðað. Svona skyndisprettur gegnum öll málefni bráðum 6000 manna bæjarfélags er víst kallaður ,,að frambjóðand- inn kynni sig”. Þá eru oft notuð mörg orð til að segja nánast ekki neitt. En hvað um það, þegar kosningu lýkur í gamla skólahús- inu við Skólabraut að kvöldi 22. maí munu liggja fyrir í kjörkössun- um vilji kjósenda um hverjir af frambjóðendunum skuli fara með umboð þeirra næstu 4 ár. Talning atkvæða mun leiða í Ijós hverjir það verða. Á meðan býðurmargur með öndina í hálsinum og úrslitin munu færa sumum gleði og öðr- um sár vonbrigði. Kjósendur hafa haft síðasta orðið og fellt sína dóma og honum verður að hlýta, því þetta er jú lýðræði í reynd. Stefán Lárus Pálsson \ Haraldur Bððv- arsson með mestan afla Afli togaranna sem gerðir eru út héðan frá Akranesi, var sem hér segir frá áramótum og fram til 11. maí sl. Bjarni Ólafsson ......... 271 HaraldurBöðvarsson..... 1450 Krossvík.............. 1259 Óskar Magnússon........ 988 Sem fyrr teljum við Bjarna Ólafsson með togur- unum, þó svo að kannske mætti kalla hann togbát. Bjarn1 hefur að vísu ekki stundað þessar veiðar eins langan tíma og hinir, en við látum afla hans fijóta hér með. Einarsbúð eftir breytingarnar. AUKIÐ RÝMI í EINARSBÚÐ

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.