Bæjarblaðið - 14.05.1982, Blaðsíða 5

Bæjarblaðið - 14.05.1982, Blaðsíða 5
Bcejarbladid Það má segja að í dag sé Ingi Þór Jónsson sundkappi einn af okkarfremstu afreksmönnum og á það við um landið allt. Við Akur- nesingar megum vissulega vera örlítið grobbnir af honum Inga Þór okkar og ekki úr vegi að stilla hon- um upp við vegg og skjóta að hon- um nokkrum vel völdum spurning- um. „Byrjaði í knattspyrnunni Jæja, hvenær hófst þín iþrótta- mennska? Ja, fyrst byrjaði ég í knattspyrnu í 6. og 5. flokki eins og hver annar sannur Skagamaður, en ellefu ára fór ég yfir í sundið. Hver var ástæðan fyrir því að þú fórst í sundið? Hún er frekar óljós, en ég varð að velja á milli og ég valdið sundið og vona jafnframt að ég hafi valið rétt. Já, það er á öllu að sjá, en hve- nær fórstu að hala inn þína fyrstu titla? Það var um leið og ég byrjaði að æfa, 11 ára, enda var það til þess að ég var ekkert á því að hætta þessu strax. Nú hefur maður heyrt af þér á flakki hér og þar um heiminn, hvar, hvert og hvenær fórstu iþína fyrstu keppnisferð út í heim? Það var til Færeyja 1975 að keppa á Ólafsvöku. Þar keppti ég m.a. við dana nokkurn sem heitir Jón Hestoy og ég svoleiðis burst- aði hann. 12 sekúndum á undan í 100 m. í dag er Hestoy orðinn stór- stjarna dana og æfir hjá banda- rískum háskóla eins og allflestar þær íþróttastjörnur sem skjótast upp á stjörnuhimininn. Það er nokkuð eðlilegt að maður sé upp með sér að vinna svona karla, enda læt ég einskis ófreistað með að grobba mig af þessum segir Ingi og hlær. Grobb, ertu grobbinn? Það þykir eðlilegt að þegar menn ná teljandi árangri þá verði þeir grobbnir. Ég vona að í mínu tilviki sé það ekki svo slæmt að nokkur maður líði sálarkvalir fyrir. Hins vegar heyri ég af sumum, að ég sé nú bókstaflega að springa En mig grunar að svona lagað sé sprottið eins og svo oft áður, úr hugum vanþroska einstaklinga, er þurfa sífellt að öfundast. Hvað hefur þú unnið þér inn margar metaiíur? Úff, á ég nú að fara að telja þær. En ég hef orðið 43 sinnum ís- landsmeistari á sl. 3 árum. Á þessu ári hef ég þegar orðið 5 sinnum meistari. SKAGA POPP , Við erum nú orðnir leiðir á þeirri hugmynd sem kom upp síðast að samræma lista Bjargsins og Portsins, því höfum við sundrað þeim aftur. PORTIÐ 1. Breyttirtímar 2. BeintíMark 3. Fivemilesout 4. Bestof... 5. Rokk í Reykjavík 6. IV 7. Beauty and the beat 8. Gætieinsverð g. chase the dragon 10. ASIA Ego Ýmsir Mike Oldfield Tammy Winatte Ýmsir TOTO Go Go’s Þursaflokkurinn Magnum ASIA BJARG 1. Breyttir timar Ego 2. Beint í mark Ýmsir 3. Rokk í Reykjavík ymsjr 4. Five miles out Mike Oldfield 5. Gaeti eins verið Þursaflokkurinn 6. Haircut one hundred PelicanWest 7. Grýlumar Grýlurnar 5 AFREKSMAÐUR Á SVIÐI ÍÞRÓTTA Kjör íþróttamanns ársins Þú hefur verið valinn íþróttamaður ársins hér á Akranesi? Jú, jú, árið 1980. Það þótti þér þá vera æði mikill heiður, að sumu leyti fannst mér eins og vissu marki hafi verið náð. En svo vil ég bæta því við hér við að mér hefur engu að síður þótt nokkur ólykt af þessu kjöri íþróttamanns ársins, þar sem öll ráð innan ÍA kjósa. Ég hafði persónulega álitið að það sé verið að velja þann íþróttamann sem hefur afrekað hvað mest á árinu. í fyrra var Ingólfur vinur minn Gissurarson íþróttamaður ársins, og er það vel. Ingólfur átti það fyllilega skilið framar öllum öðrum, en síðan er oft fólk sem gutlar í ýmsum greinum og er þ.a.l. innundir hjá hinum ýmsu ráðum, en nær hvergi neinum af- gerandi árangri. Ég veit að sam- kvæmt þeim árangri er ég náði á síðasta ári var meiri en svo að ég ætti að vera í fimmta sæti. Það er hægt að gera ósköp einfaldan samanburð á afrekum okkar Ing- ólfs til að sjá að það er enginn fimm sæta munur á okkur. Það má kannski segja að ég hafi móðgast örlítið og eftir þetta hef ég álitið að kjör íþróttamanns ársins hér sé ekki gífurlega mikill heiður. Hins vegar voru þeir hjá Vísi með kjör íþróttamann mánaðarins í fyrra. Og einmitt um það leyti er kjörið fór hér fram, var ég í 3ja sæti í maí, 2. sæti i júni og fyrsta sæti í júlí og það þótti mér virkilega vera heið- ur. Þú viltþá meina að vissu leyti að kjörið fari ekki eftir afrekum á ár- inu. Já, alveg hikstalaust. „Ferlega hjátrúarfullur” Svo við snúum okkur að öðru, ertu hjátrúarfullur? 8. ASIA ASIA 9. Picture this Huges Lewis 10.’ Kiss ELDER Egoið hans Bugga hefur aldeilis sótt sig í veðrið og trónir nú í efsta sæti beggja listanna. „Beint í mark” fer nú að síga niður á við. Mike Oldfield gamli er nú mjög of- arlega á báðum listunum með nýj- ustu plötu sína „Five miles out”, einnig hefur heyrst að kippur hafi komið í eldri plötur kappans. Rokk í Reykjavík hefur nú hlotið aldeilis Já, alveg ferlega. Ég keppist við að reyna að fá skáp eða snaga nr. 9. Þá má líka geta þess hér með, að nú síðast þegar ég var að keppa í Finnlandi, þá voru um 60- 70 strákar þátttakendur og mönn- um var útbýtt lyklum að skápum af algjöru handahófi, sem ereðlilegt, því það er ómögulegt að eltast við sérþarfir hvers og eins. Ég varð að vonum mjög órólegur en þegar ég fékk lykilinn í hendurnar hafði ég fengið nr. 9, það lá við að ég gengi berserksgang af gleði. Svo verður þú að minnast á hann Hnút, tusku- brúðuna mína sem ég fékk í af- mælisgjöf í fyrra með því skilyrði að hann yrði lukkudýrið mitt. Hnút- ur hefur alltaf fylgt mér síðan og aldrei brugðist. Það er að vísu ekki mjög algengt meðal íslenskra keppenda að hafa með sér lukku- dýr, en það eru margir erlendir keppendur sem eru með alls kyns dinglumdangl í fórum sínum. Hvernig líður þér fyrir mót, ertu órólegur? Já, heilmikið, og þettaferversn- andi með árunum. Maður virðist vera orðinn svo hræddur um að standast ekki einhverjar ákveðnar kröfur. Ég get aldrei sofið einni nóttu fyrir mót. Ég veit ekki hvort það kemur niður á getunni, því ég þekki það ekki að sofa vært fyrir keppni. Ég er yfirleitt mjög óróleg- ur alveg þar til ég er kominn á pallinn. Þá verð ég aftur kaldur og rólegur og ekkert annað kemst að en að sigra. Það er kannski ágætt að taka út stressið og taugaó- styrkinn áður en startskotið ríður af. Þú keppir í öllu nema bringu- sundi, hvernig stendur á því? Það er einfaldlega sökum þess, að ég kann ekki að synda bringu- sund, eða svona næstum því, það góða umfjöllun og auglýsingu vegna þeirra krónísku taugaveikl- unar þess opinbera að þegja öll þjóðfélagsleg vandamál í hel. Þursaflokkurinn fer nú að færast æ neðar eða úr fjórða í fimmta og áttunda sæti. Hljómsveitin ASIA er geysiat- hyglisverð, skipuð gömlum kemp- um eins og Carl Palmer úr ELP„ ASIA hefur þegar komið sér inn á listann. hlægja allir þegar ég reyni að synda bringuna. Það væri ómögu- legt að keppa ef allur áheyrenda- skarinn veltist um af hlátri. „Styrkur bæjarbúa” Hvernig finnst þér viðbrögð bæj- arbúa gagnvart sundafrekum þín- um? Þau eru hreint út sagt frábær Það er geysimikill styrkur að hafa bæjarbúa að baki sér, það er eitt sem ég myndi ábyggilega sakna mikið ef ég reyndi og kæmist í há- skóla í Bandaríkjunum, s.s. að maður hefur ekki þennan góða stuðning, heldur er maður gjör- samlega einn. Einnig hefur bær- inn verið mér hjálplegur að öðru leyti, hann hefur yfirleitt borgað allar mínar keppnisferðir erlendis og ég vil hér með skila sönnu þakklæti. Hvað með framtíðina, hefur þú ekki sett þér einhver markmið? Jú, eins og hjá mörgum íþrótta- mönnum þá eru Olympíuleikarnir mjög spennandi og það sakar ekki að stefna á þá, því við nálgumst jú lágmarkið óðfluga. Það er líka vonandi að valnefndin verði ekki jafn neikvæð gagnvart sundinu og síðast. Það þarf vist reglusemi til að ná árangri? Jú, mikil ósköp, ég er reglusem- in uppmáluð, segir Ingi glottandi. Ég reyki ekki, drekk ekki vín né kaffi en kvennafar flokka ég ekki undiróreglu. Og þá svona í lokin, okkar á milli, áttu ekki mikinn séns í stelpurnar? Ha, ha, ha, jú mikil ósköp svarar hann, enda er draumurinn að komast út í háskóla í Amerku og heilsa upp á allar fallegu steplurn- ar í kók og shampóauglýsingun- um. Bæjarblaðið þakkar Inga Þór fyrir spjallið og vonast eftir að sjá hann í beinni útsendingu frá næstu Olympíuleikum. íbúðir í verka- mannabústöðum 77/ sölu eru 6 íbúöir að Einigrund 7-9, ein 3ja herb. og 5 fjögurra herbergja. íbúðir þessar eru seldar skv. lögum nr. 51/1980 og reglugeró nr. 527/1980 um verkamannabústaði. Þeir einir koma til greina sem uppfylla skilyrði þessara laga s.s. um lögheimili og hámarkstekj- ur. Umsóknum skal skilað á bæjarskrifstofu á sérstökum eyðublöðum sem þar fást fyrir 28. maí 1982. Eldri umsóknir þarfað endurnýja. F.h. stjórnar verkamannabústaða á Akranesi, Bæjarritarinn á Akranesi. Kosningadagurinn 22. MAÍ Gæðið ykkur á síldarbökkunum við kosningasjónvarpið. Pantið fyrir kl. 19. Keyrum út pantanir milli kl. 19-21 Veitingahúsið SGIIholt STTLLHOLT1 2 - AKRANESI - SlMI (93)2778 TÍBRÁ í STÚDÍÓ Tíbrá hefur að undanförnu verið að vinna í Hljóðrita í Hafnarfirði við upptökur á nýju plötunni. Að sögn þeirra meðlima, gengur þetta geysivel. Heyrst hefur á skotspónum að nýtt útgáfufyrirtæki sem heitir DOLFUS ÁRBÍT sf„ eða eitthvað í þá áttina hafi verið stofnaö og gefi út þessa skífu. Það er rétt að geta þess hér að nú nýverið lék hljómsveitin á Hótel Borg í Reykjavík og var gagnrýni sú er skrifuð var mjög jákvæð í þeirragarð. Þarsagði m.a.: „Tíbrá-flokkurinn hefur allaburði til þess að sláígegn”. Þeir félagar hafa nú sótt um styrk til bæjarins vegna þessara framkvæmda og vonast þeir eftir aðframlag þeirratil menningarmála og kynningar bæjarins verði ekki síður metin en annara. Bæjarblaðið óskar þeim Tíbrármönnum góðs gengis í þessum harða „bransa”.

x

Bæjarblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið
https://timarit.is/publication/1353

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.