Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Side 2
2 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015
Útgefandi: Eyjasýn ehf. 480278-0549.
ritstjóri: Ómar Garðarsson - omar@eyjafrettir.is.
blaðamenn: Gígja Óskarsdóttir - gigja@eyjafrettir.is
Ásta Sigríður Guðjónsdóttir - asta@eyjafrettir.is
Sæþór Þorbjarnarson. - sathor@eyjafrettir.is og
Íþróttir: Guðmundur Tómas Sigfússon
ábyrgðarmaður: Ómar Garðarsson.
Prentvinna: Landsprent ehf.
ljósmyndir: Óskar Pétur Friðriksson og blaðamenn.
aðsetur ritstjórnar: Strandvegur 47,
Vestmannaeyjum.
Símar: 481 1300 og 481 3310.
netfang: frettir@eyjafrettir.is.
veffang: www.eyjafrettir.is
Eyjafréttir koma út alla miðvikudaga. Blaðið er
selt í áskrift og einnig í lausasölu á Kletti, Tvistinum,
Toppnum,Vöruval,Herjólfi,Flughafnarversluninni,
Krónunni, Kjarval og Skýlinu.
Eyjafréttir eru prentaðar í 2000 eintökum.
Eyjafréttir eru aðilar að Samtökum bæjar-
og héraðsfréttablaða.
eftirprentun, hljóðritun, notkun ljósmynda og
annað er óheimilt nema heimilda sé getið.
Eyjafréttir
Sjávarútvegur leggur sitt í sameiginlega sjóði þjóðarinnar:
Tekur til sín 41,5% af verðmæta-
sköpun VSV umfram almennan
rekstrar- og fjármagnskostnað
:: Fær stærri hlut en launamaðurinn sjálfur :: Alls 340 stöðugildi 2014
Í samantekt sem kynnt var á
fundinum (Aðalfundi Vinnslu-
stöðvarinnar 2. júní) kemur í
ljós að hið opinbera, ríki og
sveitarfélag, tekur til sín 41,5%
af verðmætasköpun Vinnslu-
stöðvarinnar (VSV) umfram
almennan rekstrarkostnað og
fjármagnskostnað. Hlutur
launafólks fyrirtækisins er
35,5%, hluthafanna 15% og
lífeyrissjóða 8%. „Sagt á annan
hátt: Ríki og sveitarfélag fá að
jafnaði samtals í sinn hlut sem
svarar til nær 700 þúsund króna
á mánuði af verðmætasköpun
hvers einasta starfsmanns VSV,“
segir í frétt frá VSV.
Þessi ályktun var dregin af
útreikningum KPMG á skattaspori
VSV og tekur til allra greiðslna
viðkomandi fyrirtækis til ríkis,
sveitarfélaga og lífeyrissjóða, auk
skatta sem innheimtir eru fyrir hið
opinbera og skilað til þess. „Í
þjóðfélagsumræðunni er því oft
staðfastlega haldið fram að sjávarút-
vegur landsmanna skili litlu til
samfélagsins og sé jafnvel fremur
þiggjandi en veitandi í þeim efnum.
Skattasporið sýnir glöggt hve fráleit
slík umræða er og víðs fjarri
veruleikanum.“
Vinnslustöðin skapaði verðmæti
sem námu 12 milljörðum króna árið
2014, rekstrartekjur, afkoma,
umboðssölu, fjármunatekjur og
söluhagnaður. Þessum verðmætum
var ráðstafað á ýmsan hátt til
samfélagsins: með launagreiðslum
til starfsfólks, greiðslu launatengdra
gjalda, kaupa á aðföngum, greiðslu
veiðigjalda og annarra opinberra
gjalda o.fl. Skattaspor Vinnslu-
stöðvarinnar 2014 nam tæplega 2,9
milljörðum króna sem eru gjald-
færðir og innheimtir skattar.
Hjá VSV voru um 340 stöðugildi
2014. Launagreiðslur, að launa-
tengdum gjöldum frádregnum,
námu um þremur milljörðum króna,
sem svarar til tæplega 26%
fjárhagslegrar verðmætasköpunar
fyrirtækisins. Veiðigjöld Vinnslu-
stöðvarinnar námu nær sömu
upphæð 2014 og öll lögboðin gjöld
vegna starfsmanna og voru mun
hærri en sem nam tekjuskatti af
hagnaði fyrirtækisins.
Ómar GarðarSSon
omar@eyjafrettir.is
Skýringarmynd frá KPMG um hvernig fjárhagsleg verðmæti VSV
2014 skiptust í. grófum dráttum.
Pæjumót TM hefst í dag, 650
ungar og efnilegar knattspyrnu-
konur hafa lagt leið sína til
Vestmannaeyja ásamt 150
þjálfurum og fararstjórum. Alls
eru 76 lið sem keppa á mótinu
frá 26 félögum. Veðurspáin lítur
vel út næstu daga en búast má
við smá vætu á föstudags-
morgun, en stelpurnar munu
eflaust ekki láta það á sig fá.
Stelpurnar munu spila frá
fimmtudegi til laugardags en
ýmislegt annað verður gert en að
spila fótbolta þessa daga. Diskó-
sund, bátsferð, kvöldvaka, Idol
keppni, landleikur og grillveisla.
Pæjumót í Vestmannaeyjum hefur
verið haldið síðan 1990 en 5.
flokkur kvenna leikur á mótinu en
það eru stelpur sem eru 11-12 ára.
650 stúlkur
á Pæjumóti
TM sem
hefst í dag
Vinnslustöðin (VSV)
auglýsir eftir 1 til 2
háskólanemum til starfa
Starfið er sumarvinna og felst í aðstoð við stjórnun,
skráningar og utanumhald um rekstur félagsins í ýmsum
deildum þess. Með starfinu gefst nemunum tækifæri á að
kynna sér alla þætti sjávarútvegs, veiðar, vinnslu, sölu- og
markaðsmál ásamt stýringu tækja og uppbyggingu véla og
búnaðar. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í
sumar.
Ef þú hefur áhuga á sjávarútvegi og hyggur á háskólanám í
einhverjum af eftirtöldum greinum:
• Verkfræði eða öðrum tæknigreinum.
• Viðskiptafræði eða tengdum greinum s.s. markaðsfræði.
• Matvælafræði, vöruþróun eða öðrum tengdum greinum.
• Sjávarútvegsfræði eða öðrum greinum sem nýtast innan
sjávarútvegsins.
Skoðum allar umsóknir sem uppfylla ofangreind skilyrði
með opnum huga.
Áhugasömum nemum er boðinn styrktarsamningur á
meðan á námi stendur. Í styrktarsamningi felst:
• Peningastyrkur til nema á hverri önn.
• Nemum tryggð vinna á námstíma.
• Nemar vinni verkefni tengd sjávarútvegi í námi sínu.
• Nemum tryggð vinna að námi loknu.
Nánari upplýsingar veitir Lilja Björg Arngrímsdóttir, lilja@
vsv.is / 893-1144. Þú sækir um með því að senda tölvupóst
á vsv@vsv.is. Umsóknarfrestur rennur út sunnudaginn 21.
júní nk.
Hafnargötu 2 | 900 Vestmannaeyjar | Sími 488 8000
vsv@vsv.is | www.vsv.is
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
Letur svart
Fjórlitur
76c + 8m
100c + 65m + 30k
OPNUNARTILBOÐ
FIMMTUDAG - LAUGARDAGS
TÖKUM AÐ OKKUR ÝMIS VERKEFNI TENGD OKKAR FAGI.
GRAFÍSK VINNA, SAUMAVERKEFNI, FATABREYTINGAR
ÁSAMT ÞVÍ AÐ SELJA OKKAR EIGIN VÖRUR.
FIMMTUDAGINN
11.JÚNÍ14:00 - 18:00
VIÐ OPNUM
WWW.FACEBOOK.COM/NOSTRAVERZLUN
V
ER Z L U N & V E R K
S T
Æ
Ð
I
NOSTRA
2015
STOFNAÐ
IC
EL
ANDIC DESIGN
NOSTRA VERZLUN & VERKSTÆÐI VESTMANNABRAUT 33
Fjör á Cross-
fitmóti Hressó
í Skvísusundi
Það vel tekið á Crossfitmóti
Hressó í Skvísusundi á laugar-
daginn. Óskar Pétur, ljósmynd-
ari leit við. Hér er Gyða Arnórs á
fleygiferð með ketilbjöllur og
Hörður Orri bíður eftir að röðin
komi að sér. – Rakel Hlyns
yfirdómari fylgist með því að allt
fari rétt fram.