Fréttir - Eyjafréttir - 10.06.2015, Síða 4
4 Eyjafréttir / Miðvikudagur 10. júní 2015
Er áfengi vandamál í þinni fjölskyldu?
Al-Anon
fyrir ættingja og vini alkóhólista
Fundir á þriðjudögum kl. 20.30
Byrjendafundir kl. 20.00
að Heimagötu 24
AA fundir
eru haldnir sem hér segir
að Heimagötu 24:
Mánudagur: kl.20.30
Miðvikudagur: kl.20.30
Fimmtudagur: kl.20.30
Föstudagur: kl.23.30
Laugardagur: kl.20.30 opinn fundur
Sunnudagur: kl.11.00
Athugið, allir fundir reyklausir
Móttaka nýliða hálfri klst.
fyrir hvern auglýstan fundartíma.
Ath.símatíma okkar, sem eru hvern dag,
hefjast 30 mín. fyrir ákveðinn
fundartíma og eru 2 klst. í senn.
Sími 481 1140
>> Smáauglýsingar
Matgæðingur vikunnar
Landakirkja
Fimmtudagur 11. júní:
Kl. 20.00. Æfing hjá kór Landa-
kirkju.
Sunnudagur 14. júní:
Kl. 11.00. Messa á öðrum sunnu-
degi eftir þrenningarhátíð. Kór
Landakirkju syngur undir stjórn
Kitty Kovács. Sr. Guðmundur Örn
prédikar og þjónar fyrir altari.
Miðvikudagur 17. júní, Þjóðhá-
tíðardagurinn:
Kl. 11.00. Helgistund á Hraun-
búðum.
Viðtalstímar presta eru þriðjudaga
til föstudaga milli 11.00 og 12.00.
Vatktsími: 488-1508
Hvítasunnu-
kirkjan
Fimmtudagur kl. 20:00
Bænastund.
Sunnudagur kl. 11:00
Lilja Óskarsdóttir prédikar, lesin
verður raunveruleg saga fólks sem
sætir ofsóknum um þessar mundir,
söngur, kaffi og spjall.
Allir hjartanlega velkomnir.
Kirkjur bæjarins:
Aðvent-
kirkjan
Laugardagur
Kl. 12:00 Samvera.
Allir velkomnir.
Eyjamaður vikunnar
Er áhugamálasjúkur
Ágúst Halldórsson er frumkvöðull-
inn af stofnun Karlakórs Vest-
mannaeyja sem þreytti frumraun
sína á sjómannadaginn. Ágúst er
nýr gjaldkeri sjómann0adagsráðs og
stóð sig með stakri prýði sem kynnir
á bryggjufjöri á laugardaginn og
hefur verið ráðinn þar ævilangt.
Nafn: Ágúst Halldórson.
Fæðingardagur: 26. apríl 1985.
Fæðingarstaður: Græna flísalagða
herbergið á þriðju hæðinni á Sjúkra-
húsi Vestmannaeyja.
Fjölskylda: Við erum orðin fjögur.
Konan mín Guðbjörg Erla Rík-
harðsdóttir, Emilíana Erla Ágústs-
dóttir og nýjasti meðlimurinn,
Sveinn Jörundur Ágústsson. Ég er
að reyna að fá það í gegn að sletta í
þriðja krakkann sem fyrst og geta
síðan farið í “herraklippingu”.
Draumabíllinn: Á hann nú þegar,
rauður Austin Mini með hvítum
sportröndum og hvítum topp.
Uppáhaldsmatur: Skata.
Versti matur: Þoli ekki matvendni.
Uppáhalds vefsíða: Youtube.
Hvaða tónlist kemur þér í gott
skap: Er búinn að hlusta mikið á
fyrstu plötu Gísla Pálma síðasta
mánuðinn, einnig er ég mikið búinn
að vera að youtube-a karlakóra
íslenska og erlenda. En heilt yfir er
ég mjög breskur í tónlistarvali,
Bítarnir, Peter Doherty, Oasis,
Arctic Monkeys og svo framvegis.
Síðan hlýnar í hjarta við að heyra
Eyjalögin og tala nú ekki um þegar
Vigga í Bankanum syngur þau.
Aðaláhugamál: Er áhugamála-
sjúkur sem lýsir sér þannig að ég fæ
óstjórnlega mikinn áhuga á
einhverju, les allt um áhugamálið,
kaupi allt í kringum það, stunda það
af miklum áhuga og síðan eins og
hendi sé veifað þá hverfur áhuginn
og ég sit uppi með fullt af drasli
sem ég hef engan áhuga fyrir.
Ég væri að ljúga ef ég myndi ekki
segja að þetta færi svolítið í
taugarnar á Guðbjörgu minni. En
sem betur fer er hún byrjuð að
stjórna mér betur þegar ég fæ
áhugann, sest niður með mér og
segir eitthvað eins og: “hugsaðu
þetta alla leið” eða “heldur þú
virkilega að þú þurfir að eiga
snjóbretti og fimm metra flugdreka í
Vestmannaeyjum”.
Hvaða mann/konu myndir þú
vilja hitta úr mannkynssögunni:
Manninn sem barnaði Maríu mey
og hún sá sig tilkomna til að verja
og segja að heilagur andi hafi
barnað sig sem Jósef trúði.
Fallegasti staður sem þú hefur
komið á: Vestmannaeyjar.
Uppáhalds íþróttamaður og
íþróttafélag: Uppáhalds íþrótta-
maðurinn minn er enginn annar en
boccia landsliðsmaðurinn okkar
Gunnar Karl Haraldsson og mitt
íþróttafélag er Manchester City,
Innsigling FC og auðvitað er ég
Þórari.
Ertu hjátrúarfull/ur: Svona bæði,
veðja aldrei stórum fjárhæðum á
leiki ef Himmi “asía” Björnsson
segir eitthvað öruggt þegar maður
veit að hann er kominn í bjórinn.
Stundar þú einhverja hreyfingu:
Já, lyfti mikið um borð í Álsey
undir handleiðslu Daða Ólafssonar.
Sem er alveg ljónharður.
Uppáhaldssjónvarpsefni:
Heimildarmyndir, helst um
mannlegt atferli og afhverju við
gerum það sem við gerum.
Sjómenn eru: Burðarstólpar þessa
lands.
Erfiðast við að vera sjómaður:
Fjarveran.
En skemmtilegast: Frelsið, finna
vindinn leika um hrjóstugan vanga
sinn og sigla inn í höfn með fullt
skip.
Hvers vegna datt þér í hug að
stofna karlakór Vestmannaeyja:
Veit það ekki, ég fæ mikið af
góðum hugmyndum í kollinn á
hverjum degi. Þessi hitti bara
naglann á höfuðið og ásamt
hrikalega flottum peyjum á öllum
aldri náðum við að hóa saman og
stofna Karlakór Vestmannaeyja.
Finnst þér gaman að syngja: Já,
mamma söng mikið fyrir mig í
gamla daga og líður mér eins og ég
sé í hlýju faðmlagi móður minnar
þegar ég syng.
Ætlar þú á þjóðhátíð: Já það ætla
ég að gera. Hef þrisvar verið á sjó
yfir þjóðhátíð og reynir maður að
komast í frí ef maður getur. Pétur
Eyjólfsson vill vera á sjó yfir
þjóðhátíðina fyrir mig og vildi
koma því á framfæri hér.
Eitthvað að lokum: Ég vil koma
þökkum á ykkur öll sem komuð og
gerðuð sjómannadagshelgina að
þeirri glæsilegustu í ára raðir. Ég
skora svo á Eyjapeyja á öllum aldri
að koma í kórinn, þetta er frábær
félagsskapur og rosalega gaman.
ágúst Halldórsson
er Eyjamaður vikunnar
Ég þakka mömmu fyrir áskorunina
en hún hefur nú verið mín fyrirmynd
í matargerð. Ég ætla að bjóða upp á
svínalund á grillið, en ef það rignir
óvart eins og stundum gerist, er
ekkert mál að henda henni í ofninn.
Kryddlegin svínalund
2 svínalundir.
3 hvítlauksrif.
Nýmalaður pipar.
1 ½ dl soyasósa.
1 dl matarolía.
1 msk Worchestershiresósa.
Nokkrir dropar Tabascosósa.
Merjið hvítlauksrifin og hrærið öllu
saman. Látið svínalundirnar liggja í
kryddleginum í klukkutíma (mega
vera lengur). Glóðið á útigrilli eða
steikið snöggt á pönnu og látið svo í
ofn þar til kjötið er eldað í gegn en
alls ekki of lengi (miðlungs
svínalund er u.þ.b. 20 mínútur í
ofni).
Köld sósa með kjötinu:
200 g sýrður rjómi.
1 dl majones.
½ dl ferskur graslaukur.
½ dl fersk steinselja.
¼ dl ferskt dill.
Tabascosósa.
Worchestershiresósa.
Saxið kryddjurtirnar og hrærið öllu
saman (þurrkaðar kryddjurtir ganga
líka alveg í stað ferskra, en nota
þarf þá minna af þeim). Best er að
láta sósuna standa í ísskáp í
klukkutíma.
Með þessu er gott að hafa
sætkartöflusalat með rúsínum:
600 g sætar kartöflur.
2-3 msk ólífuolía.
1 tsk Maldon salt.
½ tsk pipar.
Hitið ofninn í 180°C og skerið
kartöflurnar í munnbita, setjið
ólífuolíu, salt og pipar á þær og
bakið í um 30 mínútur.
2 cm bútur blaðlaukur.
2 msk söxuð steinselja.
2 msk saxaður kóríander (má
sleppa).
4 msk ólífuolía.
2 msk hunang.
1 msk balsamedik.
1 msk sítrónusafi og 2 msk.
Appelsínusafi.
3 msk rúsínur (eða döðlur, trönu-
ber).
50 g pekanhnetur.
Örlítill kanill.
½ tsk Maldon salt.
Saxið blaðlauk og kryddjurtir og
blandið svo öllu saman og hellið
yfir kartöflurnar þegar þær koma úr
ofninum.
Ég ætla að skora á blakvinkonu
mína, hana ninu Önnu Dau, sem
hristir örugglega eitthvað fram úr
erminni með þýsku ívafi.
Kryddlegin svínalund
og sætkartöflusalat
Andrea Elín Atladóttir
er matgæðingur vikunnar
Herbergi óskast
Herbergi óskast til leigu í sumar.
Uppl. í s. 694-4556.
-------------------------------------------
Íbúð óskast um þjóðhátíð
Er einhver húsráðandi í Vestmanna-
eyjum sem leigir út herbergi og
getur leigt dætrum mínum tveim 24
og 26 ára og kærasta annars þeirra
sem er 24 ára í tvær nætur. Þessir
einstaklingar eru mjög áreiðanlegir
og ekkert vesen sem fylgir þeim
það get ég alveg ábyrgst. Þau geta
vel verið í einu herbergi ef rúmpláss
er fyrir 3. Koma laugardaginn 1.
ágúst um miðjan dag og ætla að
upplifa þjóðhátíð og fara aftur
mjög seint á sunnudagskvöld
tilbaka. Þau eru öll háskólanemar
tvö erlendis og önnur stelpnanna
hér heima. Þætti vænt um að heyra
frá þeim sem gæti hjálpað til gegn
eðlilegu leiguverði. Uppl. í mínum
síma 899 0560 Ingibjörg eða á
igu@primeraair.com.
-------------------------------------------
Tuðra til sölu
Harðbotna tuðra (5,2 m) með
Suzuki 90 hestafla fjórgengis mótor
og kerru. Báturinn er keyptur
haustið 2010 og er vélin keyrð um
50 klst. Áhugasamir hringi í 694
1006 eða 898 9888. Verð tilboð.
-------------------------------------------
Sjónvarp til sölu
42“ Panasonic flatskjár, 10 ára
gamalt, vel með farið. Bara einn
búinn að horfa á það. Verðhugmynd
kr. 50 þús. Uppl. í s. 481-1728 eða
899-2598. Viðar Togga.
-------------------------------------------
Eyjafréttir vilja eindregið hvetja
brúðhjón til að senda inn mynd
til birtingar sem og foreldra
nýrra Eyjamanna.
Myndir og upplýsingar sendist á
frettir@eyjafrettir.is
Börn og brúðhjón
Flugfélagið Ernir gerði smá mistök
á föstudag þar sem tveir farþegar
komust ekki með seinni parts
vélinni. Þeir voru hinsvegar fljótir
að bjarga málunum og fengu þær
útsýnisflug til Eyja með fjögurra
sæta vél. Ber að virða þessa góðu
þjónustu sem þeir sýndu og þakka
fyrir.
guðgeir
matthíasson
Hrósa
skal því
sem vel
er gert
Stimplar
Ýmsar gerðir og litir
Eyjafréttir
Strandvegi 47 | S. 481 1300